Forseti alþjóðalögreglunnar Interpol horfinn

Hann sást síðast í Frakk­landi, og var þá á leið til Kína.

Forseti Alþjóða­lögreglunnar Interpol, Kínverjinn Meng Hongwei, er horfinn. Frá þessu er greint á vef breska ríkis­útvarpsins BBC, en síðast er vitað um ferðir hans þegar hann var að leggja í hann til Kína frá Lyon í Frakk­landi, 25. september.

Jurgen Stock, næst­ráðandi Interpol, hefur tekið við stjórnar­taumunum í fjarveru Hongwei, af því er segir í tilkynningu frá Interpol.

Heimildar­menn sem AFP vitnar til, segja að hann sé ekki talinn vera í Frakk­landi, og því líklegast að hann hafi horfið í Kína. Hins vegar hafa frönsk yfirvöld ákveðið að hefja rannsókn á málinu. Í tilkynningu Interpol segir að kínversk stjórn­völd séu einnig að rannsaka málið.

Í umfjöllun BBC kemur fram að fjölskyldu­meðlimir Hongwei hafi leitað til franskra yfirvalda vegna málsins, en hvarf Hongwei þykir falla vel í mynstur svipaðra mála undan­farinna ára, þar sem háttsett fólk í kínverska Kommúnista­flokknum hefur beinlínis horfið af sviði stjórn­mála eða stofnana.

Hongwei tók við sem forseti Interpol í nóvember 2016 og nær ráðningar­tímabil hans fram á árið 2020. Hann hefur yfir 40 ára reynslu af lögreglu­störfum, og var um tíma aðstoðar­ráðherra á sviði þjóðar­öryggismála í Kína. Hann er 65 ára gamall.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár