„Ótrúlegt hvað þessir stjórnarliðar leita langt til þess að snúa öllu á hvolf“

Þingmenn stjórnar­andstöðunnar halda áfram að gagnrýna viðbrögð ríkis­stjórnarinnar við vendingum vikunnar varðandi Íslands­banka­söluna.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunnarsson er einn þeirra þingmanna sem hefur tjáð sig opinber­lega um atburðarás síðastliðinna vikna er varðar sölu ríkisins á 22,5 prósenta hluta í Íslands­banka í mars síðastliðnum. Hann segir meðal annars að það sé „ótrúlegt hvað þessir stjórnar­liðar“ leiti langt til þess að snúa öllu á hvolf.

Ríkis­endurskoðun og Fjármála­eftirlit Seðla­bankans hafa hafið rannsókn á útboði Banka­sýslunnar en mörgum innan stjórnar­andstöðunnar þykir það ekki nægilegt og vilja að sérstök rann­sóknarnefnd Alþingis verði skipuð til að rannsaka málið.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra hefur sagt að hún vilji fyrst frá niður­stöðu þessara tveggja stjórnsýslu­eininga áður en áfram er haldið. Ekki margir VG liðar hafa tjáð sig um málið undan­farið en Steinunn Þóra Árna­dóttir þingmaður VG sagði í stöðu­uppfærslu á Facebook fyrr í dag að þau í VG hefðu frá upphafi verið skýr með það að fara yrði nákvæmlega yfir það hvernig staðið var að framkvæmdinni á sölu Íslands­banka. „Fjármála­eftirlit Seðla­bankans og Ríkis­endurskoðun, sem er algerlega sjálfstæð í vinnu sinni, hafa þegar hafið athugun á málinu. Mér finnst mikilvægt að Alþingi sýni Ríkis­endurskoðun fullt traust til að ljúka rannsókn sinni,“ skrifar hún á Facebook.

Rannsókn á sölunni á Íslandsbanka í réttum farvegi

Telur Steinunn Þóra að þeirri rannsókn lokinni verði hægt að leggja mat á það hvort stofna beri sérstaka rann­sóknarnefnd um málið til að upplýsa það enn frekar.

Hún segir að það að byrja rann­sóknina hjá Ríkis­endurskoðun sé eðlilegur upphafs­punktur rann­sóknar. Í lögum um rann­sóknar­nefndir Alþingis sé fjallað um hvenær rétt sé að skipa rann­sóknarnefnd. Þar segi meðal annars að við undir­búning slíkrar tillögu og áður en hún er lögð fram skuli sérstak­lega leggja mat á tilefni og grundvöll rann­sóknar, hvert sé mögulegt umfang hennar og afmörkun og hvort önnur úrræði séu tiltæk.

Þá segi enn fremur að áður en tillaga um skipun rann­sóknar­nefndar er lögð fram skuli leita umsagnar forseta Alþingis um þau atriði sem tilgreind eru í lögum. Við undir­búning hennar sé forseta Alþingis heimilt að leita umsagnar ríkis­endur­skoðanda og umboðs­manns Alþingis um tillöguna.

Vísar Steinunn Þóra jafnframt í greinar­gerð með frum­varpinu en þar segir að rétt sé að árétta að skipun rann­sóknar­nefndar sé úrræði sem beri einungis að nota ef einsýnt er að ekki er unnt að notast við hin hefð­bundnu rannsóknar­úrræði. Úrræðið sé sérúrræði og mikilvægt að á það sé litið sem slíkt og að til þess sé ekki gripið nema nauðsynlegt sé.

„Á þessu má sjá að rannsókn á sölunni á Íslands­banka er í réttum farvegi,“ skrifar þingmaður VG.

Af hverju að bíða?

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata bregst við þessum orðum Stein­unnar Þóru í dag og spyr á Facebook af hverju bíða eigi eftir Ríkis­endurskoðun þegar heimilt sé að leita umsagnar um skipan rann­sóknar­nefndar.

„Þegar ríkis­endurskoðun klárar núverandi rannsókn – ef þingið telur tilefni til þess að koma á fót rann­sóknarnefnd þá þarf mögulega aftur að leita til ríkis­endur­skoðunar um álit á tillögu um rann­sóknarnefnd. Af hverju ekki að stofna rann­sóknarnefnd fyrst – og biðja um umsögn ríkis­endur­skoðunar við því?“ spyr hann.

Björn Leví segir að ef ríkis­endurskoðun myndi telja óþarft að stofna rann­sóknarnefnd þá kæmi það fram í umsögninni. „Það er ótrúlegt hvað þessir stjórnar­liðar leita langt til þess að snúa öllu á hvolf.“

„Gilda hin svokölluðu armslengdarsjónarmið um hæfi ekki við þær aðstæður?“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir þingmaður Viðreisnar fjallaði um málið á Facebook-síðu sinni í gær og benti á að forsætis­ráðherra hefði talað um það að bíða þyrfti niður­stöðu rann­sóknar áður en dómar væru felldir um hvernig til tókst með útboðið á tæpum fjórðungs­hluta í Íslands­banka. Engu að síður hefði Katrín sjálf ekki beðið niður­stöðu neinnar rann­sóknar áður en hún kynnti frumvarp um að leggja Banka­sýsluna niður.

„Ljóst er af orðum hennar að stofnunin verður einmitt og akkúrat lögð niður í beinum tengslum við hvernig til tókst. Hún beið hvorki niður­stöðu Ríkis­endur­skoðunar né Fjármála­eftirlitsins áður en frétta­tilkynning var send út um endalok Banka­sýslunnar.

Forsætis­ráðherra hefur hins vegar ekkert nefnt í hvaða stöðu ráðherra er þegar eftirlits­stofnun sem heyrir undir hann rannsakar mál sem hann ber ábyrgð á. Undir fjármála­ráðuneytið fellur opinbert eftirlit með fjármála­starfsemi samkvæmt vefsíðu fjármála­ráðuneytis. Fjármála­ráðherra er samkvæmt því æðsti yfirmaður Fjármála­eftirlits sem nú rannsakar þætti sem hann ber ábyrgð á. Undir­stofnun hans er um leið í þeirri stöðu að rannsaka þætti sem fjármála­ráðherra ber ábyrgð á. Gilda hin svokölluðu armslengdar­sjónarmið um hæfi ekki við þær aðstæður?“ spyr hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár