Eggert Þór segir skilið við Festi í sumar

Eggert Þór Krist­ófersson, sem verið hefur forstjóri N1 og síðar Festi frá árinu 2015, segir skilið við fyrir­tækið í sumar og hefur komist að samkomu­lagi við stjórn um starfslok. Hann segir rétt að Festi finni sér nýjan forstjóra á þessum tíma­punkti.

Eggert Þór Kristófersson hættir sem forstjóri Festi hf. í sumar.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son hættir sem for­stjóri Festi hf. í sumar. Mynd: Festi

Eggert Þór Krist­ófersson forstjóri Festi hf. hefur sagt starfi sínu lausu frá 1. ágúst næst­komandi og gert hefur verið samkomulag um starfslok hans, samkvæmt tilkynningu Festi til Kaup­hallar.

Í tilkynningu um starfslok forstjórans segir að Festi, sem í dag rekur N1, Krónuna, Elko, Bakkann og fasteigna­félag Festi, standi nú á tímamótum eftir uppbyggingu undan­farinnar ára og að Eggert telji að á þessum tímamótum sé æskilegt að leitað verði til nýs einstaklings til að leiða starfsemina.

Eggert Þór hóf störf hjá N1 árið 2011 sem fjármála­stjóri og varð forstjóri félagsins árið 2015. N1 keypti svo gamla Festi, þ.e. ELKO, Krónuna, Festi fasteignir og Bakkann vöruhótel árið 2018 og tók nýja móður­félagið upp nafnið Festi. Haft er eftir Eggert í tilkynningu að það hafi verið „stefnu­mótandi og mikilvæg kaup til að undirbúa félagið að orku­skiptum og þeim breytingum sem eru að verða í okkar samfélagi.“

„Ég hef verið lánssamur að vinna með frábæru samstarfs­fólki á þessum árum sem hafa gert Festi og dóttur­félög af því sem þau er í dag. Ég mun sakna þess að vinna með þessu fólki en er einnig spenntur fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér,“ er einnig haft eftir Eggerti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár