Leiðbeiningar um hvernig minnka má spillingu á Íslandi

Samtökin Gagnsæi, sem berjast gegn spillingu, leggja fram lista yfir umbætur sem þarf að gera á Íslandi. Eitt atriðið er að minnka leynd.

Ísland úr lofti
Ísland úr lofti Leynd yfir upp­lýs­ingum og til­heyr­andi eft­ir­lits­leysi ýtir undir spill­ingu. Mynd: NASA

Samtökin Gagnsæi, sem berjast gegn spillingu á Íslandi, vara við því að „meiriháttar endur­skoðun á íslenskri stjórn­sýslu [sé] óhjá­kvæmileg“, sama hvaða flokkar fari með sigur af hólmi eftir komandi alþingis­kosningar.

„Stjórnar­slitin sýna að venjur kerfisins – ógagnsæ stjórnsýslu­ferli og þar með venju­bundnar ákvarðanir sem í raun þola ekki dagsins ljós – geta ekki gengið lengur,“ segir í ályktun stjórnar Gagnsæis eftir stjórnar­slit sem urðu í kjölfar trúnaðar­brests vegna leyndar og hagsmuna­tengsla í upplýsingum um veitingu uppreistar æru til handa dæmdum brota­mönnum.

Samtökin segja að það sem í ljós hafi komið eftir að leynd var aflétt, að sakamenn gátu fengið uppreist æru og „óflekkað mannorð“, án eftirlits, yfirsýnar eða aðkomu dómstóla, „sýni veikleika kerfis okkar í hnotskurn“. 

„Það sem nú hefur loksins komið upp á yfir­borðið er aðeins eitt dæmi um kerfis­læga spillingu. Það verður vart augljósara þegar spurt er hvaða rök geti staðið til þess að einstaklingar sem gerst hafa sekir um jafnvel margra ára kynferðis­ofbeldi geti fengið stað­reyndir um fortíð sína þurrkaðar út úr kerfinu og hagað sér eins og það sem þeir voru dæmdir fyrir hafi aldrei gerst.“ 

Gagnsæi leggur til leið­beiningar í fimm liðum sem þurfi að fylgja eftir á Íslandi, meðal annars að vernda gagn­rýnendur og uppljóstrara, að auka skilning á hættum hagsmuna­árekstra stjórn­málamanna og svo minnka leynd.

Svona minnkum við spillingu*

1. Tryggja þarf að þeir sem benda á starfsemi eða venjur sem standast ekki lög eða siðferði­lega mæli­kvarða njóti þeirrar verndar sem lög geta veitt gegn ofsóknum.

2. Nauðsynlegt er að vinna með alþjóða­stofnunum á borð við OECD, GRECO og Sameinuðu þjóðirnar til að auka gagnsæi í stjórn­sýslu og draga úr spillingar­hættum.

3. Efla þarf vitund um mikilvægi þess að ekki sé reynt að leyna hagsmunum og hagsmuna­tengslum. Alltof algengt er að stjórn­mála- og embættis­menn sinni ekki þessari grundvallar­skyldu. 

4. Stjórn­völd eiga að kosta kapps um að veita almenningi upplýsingar sem leyfilegt er að veita, frekar en að halda því leyndu sem lög krefjast ekki að upplýst sé um.

5. Tryggja að enginn hluti stjórn­sýslunnar sé eftirlits­laus.

 

* Listinn kemur frá Gagnsæi, fyrirsögn er fjöl­miðilsins.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár