Mannréttindalögfræðingur handtekinn

Nasrin Sotoudeh hefur verið fangelsuð fyrir það að taka að sér mál konu sem mótmælti því að þurfa að ganga með slæðu í Íran.

Nasrin Sotoudeh
Nasrin Sotoudeh Mynd: EPA

Nasrin Sotoudeh mann­réttinda­lögfræðingur hefur verið fangelsuð fyrir það að taka að sér mál konu sem mótmælti því frið­samlega að þurfa að ganga með slæðu – þ.e. hijab – í Íran. Nú á hún yfir höfði sér fimm ára dóm fyrir að „dreifa áróðri gegn kerfinu“ og að „leggja á ráðin gegn þjóðar­öryggi“.

Frá þessu er greint á vefsíðu Amnesty á Íslandi en nú stendur yfir netákall þar sem þess er krafist að hún verði skilyrðis­laust leyst úr haldi.

Samkvæmt Amnesty braust út hreyfing árið 2017 sem berst gegn því að konur í Íran séu skyldaðar til að ganga með slæður. Þá setti kona á svið táknrænan gjörning sem fól í sér mótmæli gegn þessari kvöð en það gerði hún með því að taka af sér slæðuna og setja á stöng sem hún veifaði hljóða­laust. Fjöldi kvenna í Íran fóru að fordæmi hennar og mótmæltu með sama hætti.

Konurnar sem þekktar eru sem „Stelpurnar af Byltingar­stræti” hafa nú allar verið lögsóttar.

Í umfjöllun Amnesty segir að með því að handtaka og fangelsa Nasin hafi yfirvöld í Íran komið í veg fyrir að þær hafi aðgang að áhrifa­ríkum og reynslu­miklum lögmanni.

„Konur eiga að geta ákveðið hverju þær klæðast og lögfræðingar ættu að geta varið réttindi þeirra. Þar sem Nasrin er fyrir­munað að verja konurnar frá því að fara í fangelsi, hyggst hún halda mótmælum sínum áfram á bak við lás og slá með því að fjarlægja af sér höfuðslæðuna þangað til henni er sleppt úr haldi,“ segir í umfjöllun Amnesty.

Nasrin hefur áður verið handtekin en árið 2010 var hún dæmd í sex ára fangelsi fyrir störf sín en sat inni í þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár