ESB hafnar „svokölluðum“ kosningum í Rússlandi

Kaja Kallas, æðsti fulltrúi ESB í utanríkis- og öryggis­málum, segir þing­kosningarnar í Rússlandi aðeins yfirvarp lýðræðis. Flokkur Vladimir Pútíns Rúss­lands­forseta vann stórsigur um helgina.

Kaja Kallas, æðsti fulltrúi Evrópu­sambandsins í utanríkis- og öryggis­málum, kallaði í morgun þing­kosningarnar í Rússlandi „yfirvarp“ lýðræðis og sagðist leggja til refsiaðgerðir gegn þeim sem aðstoðuðu við að halda kosningarnar á hernumdum svæðum Úkraínu.

Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútíns Rúss­lands­forseta, vann mikinn meirihluta gegn málamynda­andstöðu. Engum flokki sem lagðist gegn stríði Rússlands í Úkraínu var heimilað að bjóða fram.

„Svokallaðar Dúmu­kosningar marka enn eitt stórt áfallið fyrir lýðræðið í Rússlandi. Aldrei lék vafi á niður­stöðunni,“ skrifaði Kallas á X.

„Stjórn­völd í Kreml þögguðu niður andófs­raddir, komu í veg fyrir framboð eina skráða flokksins sem lagðist gegn stríðinu í Úkraínu og útilokuðu alþjóð­lega kosninga­eftirlits­menn. Aðeins yfirvarp lýðræðis er eftir í Rússlandi.“

Kallas sagðist hafa „lagt til aðgerðir gegn þeim sem greiða fyrir þessum sýndar­kosningum á hernumdum svæðum Úkraínu“.

Evrópu­sambandið hefur þegar beitt um 3.000 embættis­menn, einstaklinga og lögaðila refsiaðgerðum vegna stríðsins í Úkraínu, þar á meðal …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár