Íslendingar með meirihluta í Marriott hótelinu við Hörpu

Hópur sem leiddur er af framtaks­sjóði í stýringu sjóð­stýringar­félags Arion banka á nú 66 prósent í félagi sem byggir fimm stjörnu hótel við Reykja­víkurhöfn.

Lengi vel var hola þar sem hótelið er nú að rísa. Í dag er verkefnið hins vegar vel á veg komið og vísir að reisulegu hóteli og íbúðaþyrpingu búinn að myndast.
Lengi vel var hola þar sem hót­elið er nú að rísa. Í dag er verk­efnið hins vegar vel á veg komið og vísir að reisu­legu hót­eli og íbúða­þyrp­ingu búinn að mynd­ast. Mynd: Þórður Snær Júlíusson

Íslenskir fjár­festar hafa lagt móður­félagi Marriott-Edition hótels sem rís við Hörpu til mikla fjármuni undan­farin tvö ár. Heildar­skuld­binding þeirra, í gegnum félagið Mandólín, jafn­gildir nú um 5,2 milljörðum króna miðað við gengi dagsins í dag og kom umtalsverður hluti þess fjármagns til á síðustu tveimur árum auk þess sem hópurinn hefur skuld­bundið sig til að setja 1,7 milljarða króna til viðbótar í félagið. Vegna þessa eiga íslensku fjár­festarnir – einka­fjárfestar, lífeyris­sjóðir og trygginga­félög – alls 66 prósent í móður­félaginu, Cambridge Plaza Venture Company, sem stendur og áformað er að endanlegur hlutur Íslendinganna verði 70 prósent.

Frá þessu er greint i Markaðnum, fylgiriti Frétta­blaðsins um efnahagsmál og viðskipti, í dag.

Átti að opna 2018

Fjár­mögnun á bygg­ingu fimm stjörnu Marriott-Edition hót­eli við hlið Hörpu lauk í október 2016. Þá átti hótelið að vera tilbúið til opnunar 2018. Nú hefur þeim áformum verið frestað fram á vorið 2020 hið minnsta. Áður hafði bandaríska fast­eigna­þró­un­ar­fé­lagið Carpenter & Company, sem íslenski fjár­festir­inn Egg­ert Þór Dag­bjarts­son er meðal annars hluthafi í, keypt lóðina undir hótelið af Arion banka.

Stofnað var félagið Cambridge Plaza Hotel Company ehf. sem var þá í meiri­hluta eigu hol­lenska félags­ins Cambridge Nether­lands Investors B.V. Eig­endur þess eru Carpenter & Company. Eign­ar­hlutur líf­eyr­is­sjóð­a og annarra íslenskra fjárfesta er vistaður í félag­inu Mand­ólín ehf. Stærsti eig­andi þess er SÍA III slhf., félag sem sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefn­ir, í rekstri Arion banka, rek­ur.

Stefnir er rekið af Arion banka sem seldi bygg­ing­ar­rétt­inn undir Marriott hót­elið og er auk þess stærsti lán­veit­andi verk­efn­is­ins.

Milljarðakostnaður

Upphaf­lega lagði Carpenter & Company fram stórt eigin­fjárframlag í verkefnið og átti til að mynda 61,5 prósent í verk­efninu í lok árs 2016. Síðan þá hafa nýir peningar í verkefnið komið frá íslenskum fjár­festum. Markaðurinn reiknar með að eigin­fjárframlag í verkefnið í heild verði um 7,4 milljarðar króna og annar kostnaður sem fellur til við það verði lánsfé, aðallega frá Arion banka.

Í Markaðnum segir að næst­stærstu hluthafar Mandólíns, á eftir Framtaks­sjóðnum SÍA III, séu félögin Snæból, í eigu hjónanna Finns Reyrs Stef­ánssonar og Stein­unnar Jóns­dóttur, og Stormtré, í eigu Hreggviðs Jónssonar, aðal­eiganda Veritas Capital. Snæból er einnig á meðal stærstu eigenda leigu­félagsins Heima­valla. Þá á Vitinn Reykjavík, aðallega í eigu Jónasar Hagan Guðmunds­sonar og Gríms Garðars­sonar, 9,4 prósenta hlut og Feier, félag hjónanna Hjörleifs Jakobs­sonar og Hjördísar Ásberg, á 4,1 prósent.

Almenni lífeyris­sjóðurinn (6,2) prósent og Festa lífeyris­sjóður (5,4 prósent) eiga einnig stóran beinan hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár