„Þess vegna þurfum við óttalausu stúlkuna“

Borgar­stjórinn í New York gefur lítið fyrir kvartanir höfundar nautsins á Wall Street.

Borgar­stjórinn í New York, Bill De Blasio, segir að umkvartanir ítalska hönnuðarins Arturo Di Modica, sem hannaði nautið á Wall Street, benda til þess að það sé mikil þörf fyrir Óttalausu stúlkuna. „Menn sem kvarta yfir því að stúlkur sé að taka of mikið pláss eru einmitt ástæðan fyrir því að við þurfum Óttalausu stúlkuna,“ segir De Blasio á Facebook síðu sinni.

Lögmaður Di Modica segir að hann ætli að leita réttar síns, eftir að New York borg heimilaði það að stúlkan yrði áfram á Wall Strett, beint gegn nautinu, eftir að hafa staðið þar í einn mánuð til að minna fyrirtæki á það að leita meira til kvenna.

Nautið var upphaf­lega sett upp árið 1987, í skjóli nætur, en fékk síðan leyfi til að vera áfram eftir að það varð vinsælt meðal ferða­manna og almennings. Það átti upphaf­lega að tákna endur­reisn markaðarins, en varð síðan táknmynd græðginnar á Wall Street.

De Blasio gaf leyfi til að Óttalaus stúlkan fengi að standa í það minnsta fram á næsta ár. Hann sagði hana senda góð skilaboð um jafnrétti kynjanna, og minnti á nauðsyn þess að gefa konum tækifæri í bandarískum fyrir­tækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár