Bankar hafa hafnað að millifæra til og frá Íslandi vegna gráa listans

Íslensku við­skipta­bank­arnir hafa fundið fyrir því að greiðslur til þeirra eða við­skipta­manna þeirra hafa taf­ist vegna veru Íslands á gráum lista FATF. Þá hafa erlendir bankar hafnað því að hafa milli­göngu um greiðslur til Íslands.

Ákvörðun Financial Action Task Force (FATF) að setja Ísland á gráan lista sam­tak­anna hefur haft þau áhrif að upp hafa komið til­vik þar sem greiðslur til íslenska við­skipta­banka eða við­skipta­manna þeirra hafa taf­ist. Auk þess eru dæmi um að erlendir bankar hafi hafnað því að hafa milli­göngu um greiðslu til og frá land­inu.

Þetta kemur fram í frétt á vef Seðla­banka Íslands þar sem greint er frá því að Fjár­mála­eft­ir­litið, sem nú heyrir undir Seðla­bank­ann, hafi kallað eftir upp­lýs­ingum frá 15 eft­ir­lits­skyldum aðilum í lok des­em­ber síð­ast­liðnum um hvort ákvörðun FATF að setja Ísland á gráa list­ann hafi haft áhrif á starf­semi þeirra.

Um var að ræða alla fjóra við­skipta­bank­anna (Lands­bank­ann, Arion banka, Íslands­banka og Kviku), þrjá greiðslu­þjón­ustu­veit­endur, öll fjögur trygg­inga­fé­lögin (VÍS, TM, Sjóva og Vörður), þrjá líf­eyr­is­sjóði, Kauphöll Íslands og Nasdaq verð­bréfa­mið­stöð. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sem Fjár­málaft­ir­litið fékk virð­ist ákvörðun FATF enn sem komið er ekki hafa haft áhrif á starf­semi vátrygg­inga­fé­laga, líf­eyr­is­sjóða, Kaup­hall­ar­innar og verð­bréfa­mið­stöðv­ar­innar.

Í til­viki við­skipta­banka hafi við­skiptum við þá eða við­skipta­menn þeirra ekki verið slitið en upp hafi komið ein­stök til­vik þar sem greiðslur hafa taf­ist. „Einnig eru örfá dæmi um að erlendir bankar hafi hafnað því að hafa milli­göngu um greiðslu til og frá land­inu. Í nokkrum til­vikum hefur þó verið óskað eftir frek­ari skýr­ingum og/eða upp­lýs­ingum frá eft­ir­lits­skyldum aðilum í tengslum við aukna áreið­an­leika­könnun. Fram kom í svörum frá ein­hverjum aðilum að erfitt væri að greina á milli þess hvort við­brögð erlendra aðila mætti rekja til veru Íslands á FATF-list­anum eða til auk­innar árvekni almennt gagn­vart pen­inga­þvætti.“

Svört skýrsla leiddi til viðbragða

Alþjóð­legur vinnu­hópur um um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, Financial Action Task Force (FATF), skil­aði kol­svartri úttekt á frammi­stöðu Íslands í mála­flokknum í apríl í 2018. Í kjöl­farið var gripið til mik­ils átaks sem í fólst að upp­færa lög, reglu­verk og fram­fylgni eft­ir­lits með pen­inga­þvættis hér­lendis.

Allt kom fyrir ekki og á end­anum reynd­ust aðgerð­irnar ekki nægj­an­legar. Ísland var sett á gráan lista fyrir að bregð­ast ekki nægi­lega vel við fjöl­mörgum athuga­semdum sam­tak­anna um brotala­mir í vörnum gegn pen­inga­þvætti á Íslandi í októ­ber síð­ast­liðnum. Auk Íslands bætt­ust Mongólía og Simbabve á list­ann. Á meðal ann­arra ríkja sem þar er að finna, og talin eru að séu með alvar­lega ann­marka á sviði varna gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, eru Kam­bó­día, Jem­en, Sýr­land og Panama.

Ein af athuga­semd­unum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raun­veru­legum eig­endum félaga á Íslandi. Enda felst í því að þekkja ekki við­skipta­vin­inn, að þekkja ekki hvaðan pen­ing­arnir hans koma.

Kjarninn greindi frá því 22. des­em­ber síð­ast­lið­inn að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði gert athuga­semdir við mat allra íslensku við­skipta­bank­anna á upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur fjár­muna eða félaga sem eru, eða hafa verið, í við­skiptum við þá. Í nið­ur­stöðum athug­ana eft­ir­lits­ins á pen­inga­þvætt­is­vörnum þeirra, sem hófust í kjöl­far þess að FATF birti skýrslu sína um slakar pen­inga­þvætt­is­varnir Íslands, voru gerðar athuga­semdir við þeir hafi ekki metið upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur með sjálf­stæðum hætti.

Nokkur dæmi þegar opinberuð

Þótt að FATF hafi ekki kallað eftir því sér­stak­lega að sér­stakar og umfangs­meiri áreið­an­leikak­ann­anir yrðu fram­kvæmdar á íslenskum við­skipta­vinum alþjóð­lega á meðan að Ísland væri á gráa list­anum þá er vera Íslands á honum mik­ill orð­spors­hnekkir, og getur leitt til þess að fyr­ir­tæki taki slíkt upp sjálf.

Þegar hefur verið greint frá dæmum þar sem veran á gráa list­anum hefur valdið vand­ræðum fyrir íslenska aðila. Jón Sig­­urðs­­son, for­­stjóri Öss­­ur­­ar, sagði við Kjarn­ann í októ­ber að fyr­ir­tækið hefði fengið fyr­ir­­spurn um veru Íslands á gráa list­anum þegar það var í við­ræðum um fjár­­­mögnun skömmu áður. Vera Íslands á list­­anum hefði þó ekki áhrif á starf­­semi eða fjár­­­mögnun Öss­urar þar sem að hún fari fram í gegnum erlend dótt­­ur­­fé­lög. Það væri hins vegar mjög alvar­­legt mál að Ísland sé á lista sem þess­um að mati Jóns.

Í nóv­em­ber í fyrra var greint frá því að Ísland hefði verið sett á ista þró­un­ar­banka Kýpur (Cyprus Develop­ment Bank eða CDB) yfir lönd sem ekki er heim­ilt að opna á milli­færslur af neinum toga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár