Velta dróst saman um 3,6% í júní vegna Costco

Velta dagvöru­verslana dróst allmikið saman í júnímánuð, en talið er að það sé vegna komu Costco.

Áhrif Costco eru víða.
Áhrif Costco eru víða.

Velta dagvöruverslana hefur dregist saman um 3,6% milli júní­mánaða 2016 og 2017, samkvæmt mælingum Rannsókna­seturs verslunarinnar. Mælingin náði ekki til Costco og er því líklegt að samdráttur veltu sé vegna komu verslunar­risans. Þetta kemur fram í tilkynningu Rannsókna­setursins.

Fjarvera Costco í könnuninni útskýrist af forsvars­mönnum verslunarinnar, en þeir kusu að veita RSV ekki ekki upplýsingar um veltu sína. Lækkun þessa mánaðar sker sig úr miðað við þróun síðustu ára, en velta dagvöru­verslanna hefur aukist jafnt og þétt undan­farin misseri. Því telur Rannsóknar­setrið líklegt að Costco hafi „klipið af“ markaðs­hlutdeild þeirra verslana sem fyrir voru á markaði og að það skýri samdráttinn.

Í tilkynningunni er einnig vísað í verðlags­mælingar Hagstofu, en verð á dagvöru lækkaði hraðari í júní en sést hefur um allangt skeið. Verð á dagvöru var 3,9% lægra í júní í ár en í júní í fyrra. Verð­mælingin nær þó ekki til verðlags í Costco.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár