600 tonn af merablóði þarf til að framleiða 20 kíló af efni í frjósemislyf fyrir húsdýr

Ísteka hyggst opna nýja starfsstöð og auka fram­leiðslu sína á lyfjaefni sem notað er í frjósemislyf fyrir húsdýr. Til að auka fram­leiðsluna úr um 10 kílóum á ári í 20 kíló þarf um 600 tonn af blóði úr fylfullum merum.

Blóð er tekið úr um 5.000 merum á ári hér á landi til framleiðslu á frjósemislyf fyrir önnur húsdýr, fyrst og fremst svín.
Blóð er tekið úr um 5.000 merum á ári hér á landi til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyf fyrir önnur hús­dýr, fyrst og fremst svín. Mynd: Anton Brink

Líftækni­fyrirtækið Ísteka fram­leiðir nú um 10 kíló á ári af efni sem notað er í lyf til að auka frjósemi svína og fleiri húsdýra í land­búnaði. Til stendur að auka fram­leiðsluna um 100 prósent á næstu árum en til að framleiða 20 kíló af lyfja­efninu þarf um 600 tonn af blóði úr fylfullum merum.

Þetta er meðal þess fram kemur í greinar­gerð fyrir­tækisins sem fylgir tilkynningu þess til Skipulags­stofnunar vegna fyrir­hugaðrar stækkunar. Lyfja­framleiðsla Ísteka, auk rannsóknar­stofu, lagers og skrif­stofu er nú til húsa að Grensás­vegi en verið er að bæta við starfsstöð á Eirhöfða. Þar verður móttaka hráefnis, mera­blóðsins, forvinnsla þess auk rannsóknar­stofu. Skipulags­stofnun hefur komist að því að framkvæmdin, þ.e. hin nýja starfsstöð, sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtals­verð umhverfis­áhrif og því ekki háð mati á umhverfis­áhrifum.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, lagði fram frumvarp á Alþingi í vetur um að bannað verði að taka blóð úr fylfullum merum í þeim tilgangi að selja það eða vinna úr því vöru til sölu. Frum­varpið, ekki síst greinar­gerð þess, vakti hörð viðbrögð sem birtist m.a. í umsögnum nokkurra dýralækna og annarra sem að blóð­merahaldi koma.

Fylfullar hryssur framleiða hormón sem kallast equine chorion gonadotropin (eCG), áður kallað pregnant mare serum gonadotropin (PMSC). Blóðtaka úr fylfullum merum, sem hormónið er svo unnið úr, hefur farið fram hér á landi allt frá árinu 1979 eða í rúmlega 40 ár. Um 100 bændur eru í samstarfi við Ísteka og halda þeir samanlagt um 5.000 merar til blóðtöku. Í maí er stóð­hestum sleppt „ í mátulega stóra hryssu­hópa“, líkt og fram kemur í umsögn Dýra­læknafélags Íslands um fyrir­komulagið og teknir úr þeim á tilskildum tíma þannig að sem flestar hryssur toppi í meðgöngu­hormóninu ECG á blóð­söfnunar­tímabilinu. Blóðtakan, sem dýra­læknar framkvæma, fer fram í blóðtöku­bási á búinu, að undan­genginni stað­deyfingu, á viku fresti. Að hámarki fimm lítrar eru teknir úr hverri meri í hvert sinn. Tekið er blóð úr hverri hryssu að jafnaði fimm sinnum að sumri og aldrei oftar en átta sinnum. Miðað við þessar upplýsingar af síðu Ísteka má reikna með að 25-40 lítrar af blóði séu teknir úr hverri fylfullri meri.

Í dag er nánast allt lyfja­efnið sem unnið er úr hryssu­blóðinu hjá Ísteka flutt út. Úr því eru svo unnin frjósemislyf sem notuð eru um allan heim í land­búnaði „til meðferðar frjósemis­vandamála í húsdýrum og samstillingar gangmála,“ líkt og segir íumsögn Félags atvinnu­rekenda um frumvarp Ingu Sæland.

Verðmæti úr hreinni náttúru

Á heimasíðu Ísteka segir að fyrir­tækið sé líftækni­fyrirtæki sem skapi „velferð og verðmæti með skynsamlegri nýtingu hugvits og hreinnar íslenskrar náttúru“. Það hafi verið stofnað árið 2000 og þar starfi nú um 40 starfs­menn. Ísteka starfar samkvæmt leyfi frá Lyfja­stofnun.

Á nýlega birtu upplýsinga­blaði sem finna má á vef Ísteka segir að svokallaðir velferðar­samningar hafi verið gerðir við þá 99 bændur sem eru í samstarfi við fyrir­tækið. Í þessum samningum er að finna ýmis ákvæði, s.s. hvað varðar gæði beitar­lands hryssanna og að Ísteka hafi eftirlits­heimild á bæjum þeirra. Í samningunum eru auk þess bann­ákvæði. Bannað er að eyða fóstrum hryssa sem blóð er tekið úr og blóðtaka er ekki heimil á þeim bæjum þar sem „velferðar­frávik“ hafa komið upp samkvæmt Matvæla­stofnun.

„Verðið á gjafa­blóðinu hefur hækkað langt umfram aðrar landbúnaðar­vörur síðustu 20 ár,“ skrifar Arnþór Guðlaugsson, framkvæmda­stjóri Ísteka,í nýlegri grein á vef fyrir­tækisins. „Bændum í samstarfi við Ísteka hefur jafnframt fjölgað mikið og eru þeir dreifðir um allt landið og hjálpa víða til við að tryggja búsetu í brot­hættum byggðum. Í tengslum við kórónu­veiru­faraldurinn ákvað Ísteka að greiða samstarfs­bændum sínum sérstaka eingreiðslu eftir seinasta tímabil. Nam auka­greiðslan 6% af verðmæti innlagðra afurða 2020.“ Velta fyrir­tækisins á ári er um 1, 7 milljarður króna.

Í greinar­gerð með frumvarpi Flokks fólksins, sem lagt var fram á Alþingi í febrúar og er nú á borði atvinnu­veganefndar, segir að blóðtaka úr lifandi hrossum sé „virkur iðnaður“ á Íslandi og að á nokkrum stöðum sé hann orðinn að „stór­búskap“ þar sem haldnar séu allt að 200 merar í blóð­framleiðslu. „Blóðmerar eru látnar ganga með folöld eins oft og mögulegt er þar til hormónið fyrir­finnst ekki lengur í blóði þeirra og þá er þeim slátrað,“ segir í greinar­gerðinni. „Folöldin fara að jafnaði beint í slátur.“ Þá segir að það brjóti gegn „öllum sjónar­miðum um velferð dýra að rækta hross til blóð­framleiðslu í gróða­skyni“.

Ekki frábrugðið öðru búrfjárhaldi

Blóðtaka úr fylfullum hryssum til fram­leiðslu á frjósemis­lyfjum fyrir önnur húsdýr er í „megin­dráttum ekki frábrugðin öðru afurða­gefandi búfjár­haldi,“ segir í umsögn Dýra­læknafélags Íslands um frum­varpið. Á blóð­söfnunar­tímabilinu meti dýra­læknar heilsufar hryssanna. Folöldum þeirra sé ýmist slátrað, sett á sem „framtíðar blóð­gjafar“ eða sem reið­hestar.

Það er mat félagsins að þau skilyrði sem Matvæla­stofnun setji um starfsemina og það eftirlit sem haft er með henni í dag tryggi velferð dýranna. „Dýra­lækna­félagið getur því alls ekki tekið undir það sem kemur fram í greinar­gerðinni [með frum­varpinu] að starfsemin hafi slæm áhrif á líf og líðan þeirra dýra sem notuð eru.“

Flutningsmönnum og þingi til vansa

Í umsögn tveggja dýralækna, Gests Júlíussonar og Elfu Ágústs­dóttur, segir að frum­varpið sé aðför að starfs­heiðri stéttarinnar og „flutnings­mönnum og þinginu til vansa“. Þá er það þeirra mat að blóðtakan úr hryssunum sé ekki „mikið inngrip í líf eða velferð“ þeirra og sé „á pari við mjólkun, járningar eða rúning og augljós­lega minna inngrip en slátrun“.

Gestur og Elfa telja engin vísindaleg rök hníga að því að hryssum verði meint af blóð­tökunni. „Stærsta ógn við dýraríkið,“ segja þau svo, „má ekki vera öfgafull dýra­velferð þar sem velferðin er svo mikil að ekki verði nein dýr eftir“.

Guðmar Aubertsson dýra­læknir, sem kemur að því að taka blóð úr hryssunum, skrifar í sinni umsögn að það blóð sé tekið í hóflegu magni og segist ekki hafa orðið var við að gengið sé of nærri hryssunum. Nefnir hann að blóð­merahald hafi haldið lífi í mörgum bændum og „stuðlað að því að sveitir landsins haldist í byggð“.

Í umsögn Helga Sigurðs­sonar dýra­læknis, sem kom að blóðtöku úr hryssum fyrir fjörutíu árum en fylgdist með þeim aftur síðasta sumar, kemur fram að segja megi að eina þvingunin sem merarnar séu beittar í dag sé múll sem á þær er settur til að festa þær í blóðtöku­básinn. Þeirri þvingun aðlagist þær fljótt. „Þá er það mikil breyting frá því fyrir 40 árum að nú er notað deyfilyf á stungu­stað þannig að blóðtakan verður sársauka­laus,“ skrifar Helgi. „Ef það er þessi þvingun sem fer í bága við dýra­verndarlög má með sömu rökum banna það að temja hesta. Þar er ögunin og þvingunin margfalt meiri auk þess sem maðurinn situr klofvega á hestunum og lætur hann lúta sínum vilja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár