Bakgrunnur Brynjars: Líkir femínistum við nasista og efast um byrlanir

Hanna Björg Vilhjálms­dóttir, kennari og aktivisti, segir skipun Jóns Gunnars­sonar sem innan­ríkis­ráðherra og ráðningu Brynjars Níels­sonar sem aðstoðar­manns hans vera stríðs­yfirlýsingu við baráttu­fólk gegn kynferðis­ofbeldi.

Áreitni ekki kynbundin
Áreitni ekki kyn­bundin Brynjar Níelsson hefur verið ráð­inn sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar inn­an­rík­is­ráð­herra. Brynjar hefur sagt að dóms­kerfið eigi ekki að eiga við öll mál og á þar við áreitni og þar að auki segir hann áreitni ekki vera kyn­bundna. Mynd: xd.is

Yfir 2.600 manns hafa skrifað undir áskorun á Katrínu Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra um að víkja Jóni Gunnars­syni úr embætti innan­ríkis­ráðherra, eða það sem áður hét dómsmála­ráðherra. „Eftir að hafa séð tekin skref síðastliðin ár í dómsmála­ráðuneytinu til að bæta kerfið fyrir þolendur ofbeldis er sorglegt að sjá nýja ríkis­stjórn skipa mann eins og Jón Gunnarsson í sæti dómsmála­ráðherra,“ segir í yfir­lýsingunni sem fylgir undir­skrifta­söfnuninni. 

Í áskoruninni er ráðning Brynjars Níels­sonar einnig ávörpuð. Hann var nýlega ráðinn aðstoðar­maður Jóns ásamt Hreini Loftssyni. „Til að bæta gráu ofan á svart þá velur Jón Gunnarsson sér Brynjar Níelsson til aðstoðar. Brynjar sem hleypur til í hvert skipti sem einhver ýtir við eða bara rétt kitlar feðra­veldið.“

Katrín Jakobs­dóttir sagði síðar í viðtali við RÚV að hún treysti Jóni til að vinna af heilindum þegar kæmi að kynbundnu ofbeldi. „Stjórnar­sáttmálinn er algjör­lega skýr í þessum efnum, þar stendur til meðal annars að gera úrbætur á réttar­stöðu brotaþola og halda áfram að vinna í þeim málum, sem hefur verið unnið mjög ötullega að,“ sagði hún. 

Að því loknu var Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, spurður út í afstöðu sinnar varðandi skipan Jóns og ráðningu Brynjars. Hann sagði að lýðræðislegar kosningar hefðu sýnt það umboð sem Jón hefði frá almenningi. Bjarni sagði jafnramt að spurning frétta­manns um það hvort Brynjar væri hæfur til að sinna starfi aðstoðar­manns dómsmála­ráðherra væri út í hött. „Og mér er sömuleiðis ómögulegt að skilja hvað átt er við með því að Brynjar Níelsson sé ekki hæfur, ég bara átta mig ekki á því… Mér finnst þessi spurning þín algjör­lega út í hött,“ sagði hann við frétta­konu RÚV.

Sömuleiðis sagði Bjarni þá sem mótmæltu ráðningu Brynjars vera hluta af „litlum minnihluta­hópi“.

Jóni og Brynjari muni vera veitt aðhald

Flokks­systur Katrínar, Jódís Skúla­dóttir og Svandís Svavars­dóttir, voru á sitt hvorum vettvanginum spurðar út í ráðningu Brynjars, Jódís í Silfri Egils og Svandís í Viku­lokunum.

Aðspurð hvort hún treysti þessum tveimur mönnum sagði Jódís að hún hefði „ekkert endilega valið þessa tvo“. 

„Ég er mikill feministi og mér var alveg brugðið. Ég verð að trúa því og stóla á það að það sem fram kemur í stjórnar­sáttmála, starfs­fólk ráðuneyta og annað standi sína plikt. Við skulum bara sjá hvernig þessir átján mánuðir verða og auðvitað verður mikið aðhald, bæði utan úr samfélaginu en ekki síður frá öðrum flokkum.“

„Ég er mik­ill fem­inisti og mér var alveg brugðið.“
Jódís Skúla­dóttir, nýr þing­maður VG

Svandís dró upp svipaða mynd í Viku­lokunum þegar hún var spurð út í ráðningu Brynjars.  „Þetta dregur upp ákveðna mynd og við verðum að vera tilbúin að ræða þá mynd.“ Sömuleiðis talaði hún um að þeim yrði veitt aðhald svo að þau mál sem undir þá falla í stjórnar­sáttmála yrðu kláruð og að Katrín myndi til að mynda veita það aðhald.

Sjálfur sat Jón í þættinum með Svandísi og var spurður út í þessa ráðningu. Hann sagði Brynjar hafa yfirburða­þekkingu og reynslu af mörgum mála­sviðum ráðuneytisins.

 „Brynjar er hæstaréttar­lögmaður og hefur áratuga reynslu alveg eins og Hreinn Loftsson (...) grundvallar­atriði og gríðar­lega mikilvægt í svona samstarfi að það ríki mikið traust á milli aðstoðar­manna og ráðherra og það er fyrir hendi nú þegar. Ég þarf ekkert að kynnast þessum mönnum.“

„Hefði ekki þurft einhvern sem ríkir meiri sátt um út á við?“, spurði þátta­stjórnandi þá.

„Ég velti þessu ekkert fyrir mér. Þetta var ákvörðun tekin á faglegum nótum og ég hef engar áhyggjur af þessari umræðu, hún bara truflar mig ekkert,“ svaraði Jón. 

Aðför að dómstólum hættuleg

Brynjar Níelsson mætti Þórarni Hjartar­syni í hlaðvarpi þess síðarnefnda, Ein pæling, þann 21. nóvember síðastliðinn, skömmu áður en hann var ráðinn aðstoðar­maður Jóns Gunnars­sonar.  

Brynjar NíelssonFyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Brynjar Níelsson, hefur verið ráð­inn aðstoða­maður Jóns Gunn­arsssonar inn­an­rík­is­ráð­herra.

Í þættinum fer Brynjar yfir 25 ára reynslu sína sem lögmaður í dómsal fyrir Þórarni. Hann nefnir sem dæmi venjulegt fólk í venju­legum einka­málum sem deila um stað­reyndir. „Menn segja bara það sem þeim sýnist eftir því hvar hagsmunir þeirra liggja og það er ekkert nýtt. Ég horfi á fólk í forsjár­deilum lýsa því hvað gerist í þeirra sambúð og menn segja bara sitt hvorn hlutinn. Ég get aldrei sett mig í einhvert dómara­sæti í því hverjir eru að ljúga og hverjir eru ekki að ljúga. Sumir bara upplifa veru­leikann með mjög mismun­andi hætti.“

Þá segir hann að það eigi ekki að beita viðurlögum við því eingöngu sem fólk segir en það sé orðin krafa réttinda­baráttunnar. „Dómsalur myndi aldrei sæta sig við þetta með núverandi stjórnar­skrá. Þess vegna er aðförin að dómstólunum, þeir eru orðnir ómögulegir og menn sjá ekki hvað þetta er hættuleg þróun og það er full ástæða til að hafa miklar áhyggjur.“

„Þessi fem­in­ismi núna, þau eru að breyta þessu í ofstæk­is­hópa sem taka þetta yfir. Eins og ger­ist bara með þessi vinstri þjóð­ernis rót­tækni, þetta er bara ofstæk­is­fólk“
Brynjar Níelsson

Þórarinn bendir Brynjari þá hóp kvenna sem segir dóms­kerfið brotið og fólki sem sé þeim sammála. Hann spyr Brynjar hvort ekki sé hægt að komast til móts við þennan hóp og hvort það sé ekki eitthvað í þessum mála­flokki sem hægt sé að bæta. Brynjar segir hins vegar gagnrýninina vera byggða á misskilningi. 

„Það er mikill misskilningur að kerfið taki ekki á móti þessu eða sinni þessu ekki. Menn verða að átta sig á því að menn kvarta stundum yfir því hvað þetta tekur langan tíma, þeir sem kvarta eru þeir sem kærðu ekkert og þekkja það ekkert. Það eru auðvitað fullt af málum sem eru kærð sem falla niður, þau falla niður af ýmsum ástæðum, bara vegna þess að þetta er ekki brot eftir lýsingu þolandans, innan gæsalappa. Málin tefjast oft því hlutirnir passa ekki, standast ekki, það sem sagt er og hægt er að upplýsa, það stemmir ekki.“

Dómskerfið á ekki að eiga við allt

Brynjar segir mikið ákært í kynferðis­brotamálum og það hafi myndast ákveðinn þrýstingur að ákæra en dómstólar, „sem eru kletturinn í hafinu,“ sýkna og þá sé ráðist á dómstóla. Þar að auki segir hann máls­meðferð slíkra mála á Íslandi vera styttri en í mörgum en það sem þó teppi dóms­kerfið sé vegna þess að „menn kæra öll mál, til dæmis ef menn lenda í einhverjum stympingum í einhverju rifrildi.“

„Það dynur á dóms­kerfið allskonar mál sem fólk á bara að leysa sjálf. Við eigum ekki að láta dóms­kerfið eiga við allt. Stundum er bara einföld fyrirgefning sem bara báðir aðilar bera ábyrgð á,“ segir hann og heldur áfram:

„Ég er bara almennt að tala um svona ofbeldismál. Ég er ekki bara að tala um, einhver strýkur á læri, eða strýkur á öxl eða rass, er það dóms­kerfið sem þarf að eiga við þetta. Mér finnst að fólk eigi bara að eiga við þetta sjálft. Vissulega getur þetta verið stórmál fyrir einhverjum, ég útiloka það ekki. Ég held að nánast allir karlmenn hafa lent í því sama, einhverju svona,“ segir hann svo og útskýrir að áreitni sé ekki „kynbundið á annað kynið“. 

„Þetta er bara hluti af samskiptum sem auðvitað geta verið klaufaleg, sérstak­lega ef fólk er undir áhrifum en það er svolítið mikið til þess ætlast að réttar­vörslu­kerfið geti afgreitt þetta allt saman.“

„Þetta er ekki brot eftir lýs­ingu þol­and­ans, innan gæsalappa“
Brynjar Níelsson

Ennfremur segir hann í því samhengi að „físískar nauðganir, þar sem er beitt líkamlegu afli“ séu afar sjaldgæf vanda­málið sé iðulega í kringum fyllerí. „Þetta snýst venjulega um það að viðkomandi er ölvaður, það er mjög sjaldgæft að þú beitir físísku afli til að ná fram vilja þínum. Vanda­málið er í kringum þetta fyllerí.“

Þá segir hann að í þeim málum sem hann kom að á sínum starfs­ferli sem lögmaður hafi „reglulega komið upp þar sem því hafi verið haldið fram að viðkomandi hafi verið byrlað“ þegar „eitthvað fer úrskeiðis í líkamanum“. „Aldrei kom það út úr blóð­prufunum í neinu einasta máli sem ég tengdist, það kom aldrei nein merki þess að það hafi verið byrlun.“

Réttindabarátta árás á vestræna lýðræðisríkið

Í þættinum ræddu þeir einnig réttinda­baráttu hreyfinga á borð við Metoo- og Black lives matter hreyfinguna sem Brynjar vildi skilgreina sem pólitíska. „Við erum öll sammála um það að berjast gegn hvers konar misrétti, kynþátta­misrétti eða „whatever,“ berjast gegn ofbeldi. En þessar byltingar snúast um miklu meira en það. Þú sérð alveg hvaða pólitísku öfl eru að taka þetta yfir. Black lives matter er ekki bara spurning um kynþátta­misrétti, þetta er miklu stærri pólitík heldur en bara það. Sama á við um Metoo byltinguna og þessa feminísku baráttu, þetta er hluti af ákveðinni pólitík og þú getur séð þetta líka í umhverfis og náttúru­verndar baráttu.“

Því næst útskýrir Brynjar hvernig þessar hreyfingar hafa reynt að breyta „hinu frjálsa vestræna lýðræðis­ríki sem mörgum er í nöp við“.

„Það ætla allir að hanna sitt réttláta samfélag og maður er alltaf að verja þetta. Ég er gamall að því leytinu til að gamla vestræna lýðræðis­ríkið er eina samfélagið sem við getum kallað siðlegar reglur réttar­ríkisins. Þetta kerfi erum við búin að búa til og það mótmælir því enginn en það er alltaf verið að reyna að vega að því með einhverjum hætti og allt þetta er hluti af því.“

Líkir aktivistum við nasista

Skömmu áður eða þann 16. september síðastliðinn hafði Brynjar einnig rætt við Þórarinn í hlaðvarpi hans og enn var umræðu­efnið réttinda­barátta og þá sérstak­lega réttinda­barátta brotaþola kynferðis­ofbeldis. Hanna Björg Vilhálms­dóttir kom til tals í því samhengi.

Þórarinn benti Brynjari á atvik sem hafði komið upp í öðru hlaðvarpi eða The Mike show, undir stjórn Huga Halldórs­sonar og Mikaels Nikulássonar, þar sem annar þátta­stjórnanda gagnrýndi Hönnu fyrir að hafa skrifað pistilinn Um KSÍ og kven­fyrirlitningu, en pistilinn er einmitt gagnrýni á KSÍ fyrir að taka afstöðu með gerendum innan hreyfingarinnar en pistilinn varð síðar til þess að stjórna­menn KSÍ sögðu af sér fyrir að hafa tekið illa á kynferðis­brotamálum innan hreyfingarinnar og formaður hennar, Guðni Bergsson, logið um að hafa ekki vitneskju um þau í Kastljósi. 

Hugi segir KSÍ ekki hafa átt að svara Hönnu, hún væri „kona með lyklaborð sem viti ekkert um íþróttir.“ „Til hvers að svara þessu? Það eru margar ritvélar réttlætisins í dag,“ sagði Hugi svo í hlað­varpinu. 

„Hvernig geta þau gert þetta? Hvernig geta hinir, sem eru ekki beinir aðilar að þessu, setið hjá og sagt ekk­ert?“
Hanna Björg

Þórarinn hafði hins vegar áhyggjur af því í samtali síns og Brynjars að Dominos hafi dregið sig til baka sem styrktar­aðili hlað­varpsins í kjölfar þessara ummæla. „Ég ætla bara að hætta versla við Dominos,“ sagði Þórarinn við Brynjar og Brynjar svarar um hæl:

„Hefði ég átt Dominos hefði ég bætt við stuðninginn. Mér finnst þetta svo aumingjalegt og ég held að þetta skaði þetta fyrirtæki til lengri tíma.“

Í fram­haldinu lýsir Brynjar því yfir að hann hafi engan húmor fyrir þessu að ráðleggur fólki almennt að taka sér taki. „Við ætlum ekki að láta þetta ofstækis­fólk stjórna þessu íslenska samfélagi. Þetta er eins og gerðist á þriðja áratug síðustu aldar í Þýska­landi. Hvernig þessi ofstækisöfl náðu völdum með því að „terror-isera“ fyrirtæki og fólk, það er það sem er verið að gera. Þetta er svo hættulegt samfélaginu. Þessi feminismi núna, þau eru að breyta þessu í ofstækis­hópa sem taka þetta yfir. Eins og gerist bara með þessi vinstri þjóðernis róttækni, þetta er bara ofstækis­fólk.“

Brynjar segir þá einnig að ofbeldis­hugtakið sé notað yfir alla hegðun sem sé skelfileg þróun sem þurfi að standa í lappirnar gegn. „Við erum svo miklir aumingjar öll, hvort sem við heitum stjórn KSÍ eða fyrirtæki. Það stendur enginn í lappirnar. Menn bara láta og leyfa fólki að finna að ofstækið virkar og þá gengur það á lagið og við erum allir sömu aumingjarnir,“ sagði Brynjar við Þórarinn. 

Síðar sagði Brynjar í viðtali við Dagmál Morgun­blaðsins að „aðförin að KSÍ er bara pólitík“.

„Þetta er stríðsyfirlýsing“

„Mér finnst þetta eins og kjafts­högg,“ segir Hanna Björg Vilhjálms­dóttir, í samtali við Stundina, um skipun á Jóni Gunnars­syni sem dómsmála­ráðherra og ákvörðun hans um að ráða Brynjar Níelsson þingmann sem aðstoðar­mann sinn.

Þetta er eins og kjafts­högg

„Annað hvort eru menn algjör­lega úr tengslum við alla samfélags­lega umræðu um kynferðis­brot og viðbrögðum við þeim eða þetta er bara stríðs­yfirlýsing,“ segir hún.

Hún segir Jón og Brynjar vera „þær tvær raddir, með mikil formleg völd, sem hafa staðið gegn kven­réttindum“:

„Jón var á móti breyttum lögum um þungunarrof, hann var fylgjandi fleiri en einu frumvarpi um að refsa vegna tálmunar. Hann var talsmaður þess að refsa. Þetta var til höfuðs konum sem voru að vernda börnin sín fyrir ofbeldi. Það er alveg hægt að segja það þó frumvarps­fylgjendur myndu ekki túlka það þannig.“

Hvað varðar Brynjar segir hún eftir­farandi: „Brynjar hefur haft mjög hátt um og haldið uppi vörnum fyrir gerendur eða meinta gerendur. Hann hefur smættað þolendur og þeirra viðleitni í að tjá sig og gert lítið úr þeim. Hann hefur bara gert lítið úr konum. Það er eins og hann þrífist á því stundum að smætta konur og alla viðleitni þeirra til þess að auka jafnrétti og réttlæti.“

„Það á að lemja okkur niður“

Hanna segir Jón og Brynjar ekki einungis hafa mikil völd í höndunum heldur einnig örlög þolenda. „Við erum í miðri Metoo-bylgju, það hefur sjaldan verið eins mikil og hávær umræða þar sem við erum að ná ákveðnum árangri. Við erum að afhjúpa gerenda­meðvirkni í samfélaginu, sem er ákveðinn árangur,“ segir hún og bætir við að skipan Jóns og ráðning Brynjars upplifi hún eins og verið sé að „lemja okkur niður“. 

„Þegar ég segi okkur þá er ég að meina fólk sem er að berjast fyrir auknu réttlæti fyrir brotaþola kynferðis­ofbeldis. Blaut tuska er vanmat á aðstæðum, þetta er bara stríð upplifi ég. Það á að lemja okkur niður, það á að lemja umræðuna niður, það á að þagga niður í okkur.“

Hún segir það form af því sem hún kallar félagslegt ofbeldi. „Það er verið að beita aðferðum í samskiptum og beita völdum með þeim hætti að það er verið að kæfa niður raddir réttlætis. Þetta er bara svo ofsa­fengið, þetta er ofsa­fengin ákvörðun um að láta þessa menn hafa þessi völd þegar við erum að sjá glitta í árangur. Þá er ég að meina að fá einhverjar lagalegar úrbætur um meðferð mála, hvort sem það er hjá lögreglunni eða hjá þeim sem flytja mál hjá dómstólum.“

„Við látum ekki þagga niður í okkur“

Þrátt fyrir að upplifa að hún hafi verið „kýld í magann“ eins og hún orðar það, segist hún ekki ætla láta þetta stoppa sig. „Auðvitað læt ég ekki þessa karla stoppa mig. Auðvitað höldum við áfram, við látum ekki þagga niður í okkur, við látum ekki reka okkur ofan í einhverja andlega holu þangað sem þessir menn vilja að við förum og höldum kjafti.“

„Þetta er bara stríð“
Hanna Björg

Þá segist hún hafa fundið fyrir mikilli reiði í kringum sig vegna þessa. „Ég finn fyrir reiði í kringum mig, heilagri, réttlátri reiði. Reiði yfir því að stjórn­völd komi svona fram við fólkið sitt. Hvernig geta þau gert þetta? Hvernig geta hinir, sem eru ekki beinir aðilar að þessu, setið hjá og sagt ekkert? Aðilar sem kenna sig við feminisma. Þetta er náttúru­lega bara stríðs­yfirlýsing, það er ekkert öðruvísi, við baráttu­fólk gegn kynferðis­ofbeldi, við viðbrögðum stjórn­valda, dómstóla og yfirvalda við þeim.“

Tálmun eitt alvarlegasta sem hægt er að gera barni

Brynjar hefur fjallað um mál sem hann sjálfur skilgreinir sem ofbeldi á þingi. Hann lagði til dæmis fram frumvarp til breytinga á barna­lögum sem varða tálmun og lagði til fimm ára fangelsis­vist við henni og Jón Gunnarsson var meðflutningsmaður frum­varpsins.. Á þinginu sagði Brynjar eftir­farandi:

„Einhvern veginn hefur það verið svo undarlegt í meðferð þessa máls áður á þinginu að þeir sem hafa kannski talað hæst um mikilvægi réttinda barna, haldið margar ræðurnar um réttindi barna, um ofbeldi gegn börnum, en svo þegar kemur að ofbeldi af þessu tagi, að svipta barn foreldri sínu, umgengni við foreldri sitt, sem er auðvitað með því alvarlegasta sem hægt er að gera barni, það getur haft alvarlegar afleiðingar, þá allt í einu kemur þögn í salinn, ótrúleg þögn. Þeir fáu sem hafa kannski eitthvað mótmælt þessu frumvarpi viðurkenna þó að þetta sé ákveðið ofbeldi, en þetta mál hefur meira og minna farið snúast um einhvers konar kynja­réttindamál eða kven­réttindamál eða ofbeldi gegn konum og svo framvegis. Þetta snýst ekkert um það. Þetta snýst um ótvíræðan rétt barnsins og mikilvægi þess að það fái að umgangast báða foreldra.“

Brynjar kaus, eins og Jón Gunnarsson, gegn frumvarpi heilbrigðis­ráðherra um þungunarrof og gegn því að jafna hlut kynja í stjórn fyrir­tækja.  

Eins og Jón hefur Brynjar verið fjar­verandi meðferð ýmissa mála á þingi, sum þeirra falla nú undir málefna­svið innan­ríkis­ráðherra, eins og atkvæða­greiðslu um umsáturs­einelti sem varðar almenn hegningarlög og kynferðis­lega friðhelgi. Þá var hann einnig fjar­verandi meðferð þingsins á afmörkuðum hluta þess á aðgerðum gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, þann anga sem snéri að rekstrar­aðilum sérhæfðra sjóða. Þá kaus hann gegn frumvarpi um sjálfstætt eftirlit með starfsemi og starfs­háttum lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hvernig getum við viðurkent ráðgjafa í Dómsmálaráðuneti sem bar MÚTUR á fyrverandi Forsætisráðherra þótt svo það hafi verið Davíð .Ég ber virðingu fyrir embætti forsætisráðherra þót svo Katrín beri ekki virðingu fyrir þessu sama embætti.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Mér finnst hvorugur þessa tveggja vera traustvekjandi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár