Auka útgjöld til sjúkrahúsa þremur milljörðum meira en fyrri stjórn ætlaði

Fjár­framlög vegna málefna öryrkja og aldraðra verða samtals um 3 milljörðum hærri en til stóð og útgjöld vegna samgöngu- og fjar­skiptamála um 1,7 milljörðum meiri.

Ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Vinstri grænna og Framsóknar­flokksins ætlar að auka framlög til sjúkrahús­þjónustu um 3 milljarða til viðbótar við það sem til stóð samkvæmt fjár­laga­frumvarpi fyrri ríkis­stjórnar. 

Þá verða fjár­framlög vegna málefna öryrkja og aldraðra samtals um 3 milljörðum hærri og framlög vegna samgöngu- og fjar­skiptamála um 1,7 milljörðum hærri.

Þetta má sjá af frumvarpi Bjarna Benedikts­sonar til fjárlaga sem dreift var á blaðamanna­fundi í fjármála­ráðuneytinu nú um níuleytið og birtist á vef stjórnar­ráðsins rétt í þessu.

Samkvæmt fjár­laga­frumvarpi Benedikts Jóhannessonar, fyrr­verandi fjármála­ráðherra, áttu heildar­útgjöld til sjúkrahúss­þjónustu að hækka úr 83 milljörðum upp í 88,5 milljarða á fjárlaga­árinu 2018. 

Svandís Svav­ars­dóttirer heil­brigð­is­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar

Í frumvarpi Bjarna er hins vegar gert ráð fyrir 91,5 milljörðum til málefna­sviðsins á árinu 2018.

Jafnframt aukast framlög til heilbrigðis­þjónustu utan sjúkra­húsa 1,3 milljörðum meira en til stóð og framlög vegna lyfja og lækninga­vara verða 3 milljörðum hærri. 

Þetta er nokkur breyting frá stefnu fyrri ríkis­stjórnar að því er varðar eflingu samneyslunnar.  

Hins vegar er ljóst að jákvæði tekju­mismunurinn milli fjár­laga­frumvarps Benedikts og fjár­laga­frumvarps Bjarna er að mestu til kominn vegna þess að efnahagslegar forsendur og þjóð­hagsspár hafa breyst.

Af þessum sökum, og vegna fyrir­hugaðrar hækkunar fjármagns­tekjuskatts, verða tekjur hins opinbera hátt í 7 milljörðum meiri samkvæmt fjár­laga­frumvarpi nýrrar stjórnar heldur en gert var ráð fyrir í fjár­laga­frumvarpi Benedikts. Afgangurinn af rekstri ríkis­sjóðs er áætlaður 35 milljarðar á árinu 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár