Jens Stoltenberg nýr seðlabankastjóri Noregs

Fyrrum forsætis­ráðherra Noregs og núverandi framkvæmda­stjóri NATO mun setjast í stól seðla­bankastjóra landsins seinna í ár. Hann verður fyrsti fyrrum stjórn­mála­maðurinn til að gegna því embætti í meira en tvo áratugi.

Jens Stoltenberg, nýskipaður seðlabankastjóri Noregs
Jens Stol­ten­berg, nýskip­aður seðla­banka­stjóri Noregs Mynd: EPA

Fjármála­ráðuneyti Noregs hefur ákveðið að skipa Jens Stoltenberg, framkvæmda­stjóra NATO og fyrrum forsætis­ráðherra landsins, sem nýjan seðla­bankastjóra. Þetta kemur fram í frétt á vef NRK.

Samkvæmt fréttinni hefur stjórnar­andstaðan í landinu og ýmsir hagfræðingar varað við skipun Stoltenberg, þar sem stjórnmála­tengsl hans gætu vegið að sjálf­stæði Seðla­banka Noregs.

Stoltenberg er fyrsti skipaði seðla­banka­stjórinn í landinu sem hefur bein tengsl við stjórn­málaflokk frá því á tíunda áratugnum, en líkt og hérlendis hefur fjármála­ráðuneyti Noregs veigrað sér við pólitískum skipunum í embættið.

Fjármála­ráðherra Noregs, Trygve Slagsvold Vedum, segist hins vegar vera öruggur með að Stoltenberg, sem er menntaður þjóð­hagfræðingur, sé hæfasti maðurinn í starfið sökum fyrri reynslu hans. Fjármála­ráðuneytið hefur einnig lýst því yfir að stjórnmála­tengsl hans muni ekki vega að sjálf­stæði Seðla­bankans, þar sem það séu meira en átta ár síðan hann var forsætis­ráðherra.

Jens Stoltenberg sat í ríkis­stjórn Noregs í 19 ár, fyrst frá árinu 1990 til árið 2001 og svo frá árinu 2005 til 2013. Þar var hann fyrst umhverfis- og orku­ráðherra, síðan fjármála­ráðherra og svo forsætis­ráðherra. Árið 2014 var hann svo skipaður framkvæmda­stjóri Atlantshafs­banda­lagsins (NATO) og hefur hann gegnt því embætti síðan þá. Áður en hann tók þátt í stjórn­málum starfaði hann sem blaða­maður og hagfræðingur og var meðal annars framkvæmda­stjóri norsku hagstofunnar.

Samkvæmt Stoltenberg mun hann halda áfram sem framkvæmda­stjóri NATO þangað til 1. október, en mun svo taka við sem seðla­bankastjóri í kringum desember­byrjun. Vara­seðla­bankastjóri landsins, Ida Wolden Bache, mun gegna stöðu seðla­bankastjóra þangað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár