Vélmenni sem hleypur og hoppar eins og maður

Fyrir­tækið Boston Dynamics heldur áfram að koma fram með nýjungar í þróun vélmenna.

Fyrir­tækið Boston Dynamics hefur á undan­förnum árum leitt þróun á vélmennum, meðal annars í samstarfi við Bandaríkjaher. Nýjasta vélmennið frá fyrir­tækinu hleypur um eins og maður og getur haldið jafnvægi með hoppum á öðrum fæti, upp á kassa. Það sem kemur upp í hugann, þegar horft er á mynd­bandið, sem tækni­vefurinn TechCrunch frumbirti, er að þarna sé maður á ferðinni, frekar en vélmenni.

Boston Dynamics var stofnað sem fyrir­tækið árið 1992, en varð til á tilrauna­stofum MIT háskólans í Boston. Fyrir­tækið hefur sérhæft sig í þróun gervi­greindar og jafnvægis­búnaðar í vélmennum, en hin síðari ár hefur það þróað vélmenni sem meðal annars eru þjálfuð til að bera miklar þyngdir og hjálpa til við hin ýmsu verk sem menn hafa unnið í gegnum tíðina.

Japanska fyrir­tækið SoftBank á fyrir­tækið núna eftir að hafa keypt það frá Google. Bandaríkjaher gerði samning við fyrir­tækið árið 2009, og hefur síðan unnið að þróun vélmenna sem geta gagnast við hin ýmsu verkefni sem Bandaríkjaher sinnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár