Horfði á sjónvarpsfréttir og fann sig knúna til að hefja undirskriftasöfnun

„Stórslys“, sem er í uppsiglingu varðandi heilsu íslenskra kvenna, er hvatinn að undir­skrifta­söfnuninni „Stöðvum aðför að heilsu kvenna“. Aðdrag­andinn er að greining legháls­sýna á að fara fram í Danmörku í stað Íslands. Erna Bjarna­dóttir, forsprakki söfn­un­ar­innar, segir vanta upp á virðingu við notendur krabbameins­skimana.

Erna Bjarnadóttir
Erna Bjarna­dóttir For­sprakki Stöðvum aðför að heilsu kvenna fer fram á að öryggi og heilsu kvenna sé tryggð með því að grein­ing leg­háls­sýna verði fram­kvæmd hér á landi í stað Danmörku

„Greining legháls­sýna hefur verið flutt úr landi, þvert á ráðleggingar sérfræðinga. Við förum fram á að þessu verði breytt og öryggi og heilsa kvenna verði tryggð.“

Með þessum orðum byrjar ákall til heilbrigðis­ráðherra í formi undir­skriftar­söfnunarinnar „Stöðvum aðför að heilsu kvenna“ en vísar til þess að um áramót tók heilsu­gæslan yfir leghál­skimanir af Krabbameins­félaginu en eftir stóðu tvö þúsund og fjögur hundruð sýni ógreind sem send átti til Danmörku til greiningar en svo hefur ennþá ekki verið gert. 

Undir­skrifta­söfnunin var sett af stað þann 21. febrúar síðastliðinn af Ernu Bjarna­dóttur og Margréti Hildi Ríkarðs­dóttur og hafa þegar 2.188 manns skrifað undir. Erna Bjarna­dóttir segir í samtali við Stundina hafa með því að stofna til undir­skriftar­söfnunar vilja reyna að „ljá þeim rödd sem þetta brennur á“.

Nafnið fengið frá varaformanni læknaráðs 

Nafnið er að sögn Ernu fengið úr viðtali við Gunnar Bjarna Ragnarsson, vara­formann læknaráðs Land­spítala, sem birtist síðastliðinn laugardag á RÚV en hann sagði í téðu viðtali að það fyrir­komulag að senda legháls­sýni úr landi til greiningar vera aðför að heilsu kvenna.

„Læknaráð sjái sig knúið til að vekja athygli á því að stórslys sé í uppsiglingu. Þúsund legháls­sýni sem tekin voru í janúar og febrúar hafa enn ekki verið send til greingar í Danmörku,“ sagði í fréttinni. „Þetta er engin smá yfir­lýsing frá þessum stað,“ segir Erna í samtali við Stundina. 

Eftir að hafa séð fréttina ákvað hún yrði að stofna hóp á Facebook undir sama heiti og koma af stað undir­skrifta­söfnun. „Ég var heima hjá mér á laugardags­kvöldinu og horfði á þessar fréttir og horfði á Helga Björns og hugsaði með mér, þetta gengur ekki, það er eitthvað mikið að hérna, það er enginn að ná utan um þessa umræðu og nú þarf eitthvað gott fólk að stíga fram og koma einhverju viti í þetta,“ segir hún.

Hún stofnaði hópinn þá daginn eftir eða á konu­deginum og hugsaði sér að halda barátt­unni áfram fram að 8. mars næst­komandi, sem er alþjóða­legur baráttu­dagur kvenna.

Meðhöndlaðar eins og excel skjal

Sjálf hefur Erna þurft að bíða eftir niður­stöðum úr krabbameins­skoðun en þó aðeins í nokkra daga. „Ég hef einu sinni þurft að fara í ástungu á brjósti eftir að myndataka sýndi eitthvað. Ég man bara hvað mér leið illa að vera bíða eftir einhverjum niður­stöðum og það voru bara nokkrir dagar. Ég hugsa með mér, hvernig líður þessum konum sem eru í þessum sporum, að vera bara meðhöndlaðar eins og eitthvað excelskjal og það skipti engu máli hvort skjalið sé skoðað í dag eða þrjá mánuði, þú færð ekki einu sinni að vita hvar skjalið þitt er í ferlinu.“ Af þessu þykir henni að það vanti virðingu fyrir notendum þjónustunnar.   

Treysta ekki þjónustunni

Um leið og undir­skrifta­söfnunin og hópurinn var kominn í loftið létu viðbrögðin ekki á sér standa. „Ég fékk viðbrögð frá fjöldanum öllum af konum. Margar eru til dæmis óánægðar með það að færa eigi skimunina inn á heilsu­gæsluna, þær hafa verið ánægðar með þjónustuna í Skógar­hlíð en notendur þjónustunnar, konur, eru ekki spurðar álits þegar henni er breytt,“ segir Erna.

Traustið á þjónustunni er að hennar mati algjör­lega rúið. „Þeir sem hafa haft samband við mig lýsa því þannig að þær bera ekki traust til þessa nýja fyrir­komulags. Það vantar mikið upp á fræðslu til þeirra og svo eru þeir aldrei spurðir hvað þeir vilja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár