Hafna ásökunum Vilhjálms um að Landsvirkjun sé að „slátra“ Elkem

Land­virkjun hafnar því að sýna stór­iðju­fyrirtækjum óbilgirni með því að selja raforku á hærra verði til þeirra en áður. Vilhjálmur Birgisson vill að Lands­virkjun dragi úr arðsemi sinni til að bæta rekstrar­skilyrði Elkem og Norðuráls á Grundar­tanga.

Vilhjálmur Birgisson, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness.
Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness. Mynd: Bára Huld Beck

„Lands­virkjun er falið að semja fyrir hönd þjóðarinnar við alþjóðleg stór­fyrirtæki um sölu á endurnýjanlegri orku. Því fylgir mikil ábyrgð, þar sem um er að ræða eina mikil­vægustu viðskipta­samninga sem gerðir eru á Íslandi og eru miklir hagsmunir undir. Að undan­förnu höfum við legið endur­tekið undir ámæli frá formanni Verkalýðs­félags Akraness fyrir að ætla að „slátra“ viðskipta­vinum okkar eins og Elkem með óbilgirni í samninga­viðræðum. Ekkert er fjær sanni.“

Þetta segir í stöðu­uppfærslu á Facebook sem Lands­virkjun, orku­fyrirtæki í 100 prósent eigu íslenska ríkisins, birti í dag.

Tilefnið eru ummæli Vilhjálms Birgis­sonar, formanns Verkalýðs­félags Akraness, um raforku­samninga sem Lands­virkjun hefur gert við Elkem og Norðurál, sem hefur starfsemi á Grundar­tanga en starfs­menn fyrir­tækisins eru að uppistöðu félags­menn Vilhjálms.

Vilhjálmur ásakaði Lands­virkjun um óbilgirni gagnvart Elkem í stöðu­uppfærslu á Facebook þann 21. ágúst vegna hækkunar á raforku­verði til fyrir­tækisins í nýjum samningi sem tók gildi 1. apríl 2019. Þar fjallaði hann líka um end­­ur­nýj­aðan samn­ing við Norðurál tekur gildi í nóv­­em­ber 2019 og gildir til loka árs 2023. Í stöðu­uppfærslunni kom fram að Vilhjálmur óttaðist um starfs­öryggi félags­manna sinna og að hann vildi að Lands­virkjun myndi niður­greiða störf hjá stór­iðju­fyrir­tækjunum tveimur með því að stilla arðsemi sinni af raforku­sölu í hóf.

Hörður Arnarson svaraði honum í grein sem birtist í Kjarnanum daginn eftir. Þar hafnaði hann því að samningarnir væru ósann­gjarnar og sagði að þeir væru þvert á móti sann­gjarnir og samkeppnis­hæfir. Auk þess sagði hann að það væri engin „ástæða fyrir aðila, sem standa utan samn­ings­sam­bands fyr­ir­tækj­anna, að ger­ast hags­muna­gæslu­menn alþjóð­legra stór­iðju­fyr­ir­tækja á opin­berum vett­vangi í samn­inga­við­ræðum við Lands­virkjun um raf­orku­verð. Þau eru full­fær um að gæta sinna hags­muna sjálf.“

Vill að íslenskir stjórnmálamenn grípi til aðgerða

Í byrjun síðustu viku var Vilhjálmur í viðtali á Bylgjunni þar sem hann ræddi um ótta sinn við að gríðarleg hækkun á raforku­verði til Norðuráls og Elkem Ísland á Grundar­tanga „muni ógna atvinnu­öryggi og lífs­viðurværi minna félags­manna.“

Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar, kom í viðtal í saman þátt, Reykjavík síðdegis, daginn eftir til að svara fyrir ávirðingar Vilhjálms og hafnaði þeim enn og aftur.

Í pistli sem Vilhjálmur skrifaði í kjölfarið, þar sem hann gagnrýnir Hörð harðlega, segir hann meðan annars að það sé „eins og forstjóri Lands­virkjunar átti sig ekki á hlutverki forystu­manna í stéttar­félögum, en eitt af aðal­störfum okkar er að verja atvinnu­öryggi og lífs­viðurværi okkar félags­manna og það er ég að gera, enda er klárlega verið að ógna lífs­viðurværi þúsunda fjöl­skyldna í þessum iðnaði[...]ú er tími til kominn að íslenskir stjórn­málamenn og stjórn­völd grípi í taumana í þessu máli áður en það verður of seint og þúsundir fjöl­skylda missi lífs­viðurværi sitt og leggja afkomu sveitar­félaga sem byggja tekju­stofna sína á þessum iðnaði nánast í rúst.“

Viðskiptastríðið lækkar afurðaverð

Í stöðu­uppfærslu Lands­virkjunar fyrr í dag segir að markmið fyrir­tækisins í þeim samningum sem gerðir hafa verið við Elkem og Norðurál sé að bjóða samkeppnishæf kjör, sambærileg því sem best gerist annars staðar. „Við höfum áður sagt að samningur við Elkem á Grundar­tanga, eftir ákvörðun gerðar­dóms, feli í sér rafmagns­verð sem nái ekki meðal­kostnaðar­verði virkjana okkar. Fram hafa komið stað­hæfingar um að þar höfum við einungis átt við kostnaðar­verð nýrra virkjana­kosta, en það er rangt. Raforku­verð í nýjum samningi Elkem nær hvorki kostnaðar­verði núverandi virkjana Lands­virkjunar né nýrra virkjana­kosta.

Við höfum einnig sagt að samningur Elkem sé á meðal þeirra hagstæðustu sem í gildi séu í heiminum. Fram hafa komið stað­hæfingar um að ríkis­styrkir séu ekki séu teknir með við samanburð okkar, en það er rangt. Greiningar Lands­virkjunar eru unnar í samvinnu við stór alþjóðleg ráðgjafar­fyrirtæki sem sérhæfa sig í greiningum af þessu tagi. Í þeim saman­burði tökum við tillit til ríkis­styrkja sem fyrirtæki njóta, m.a. í Noregi. Að teknu tilliti til alls þessa er raforku­samningur Elkem einn sá hagstæðasti sem er í boði.

Hafa ber í huga að rekstrar­umhverfi stór­iðju­fyrirtækja um allan heim er krefjandi um þessar mundir og þar með talið á Íslandi – ekki vegna raforku­verðs Lands­virkjunar – heldur fyrst og fremst vegna lágs afurða­verðs sem má meðal annars rekja til viðskipta­stríðs Banda­ríkjanna og Kína.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár