Sjúkrahúsið á Akureyri segir 500 milljónir skorta inn í reksturinn

Í minnis­blaði frá SAk til fjár­laganefndar segir að 500 milljónir vanti inn í grunn­rekstur stofn­un­ar­innar á næsta ári. Stjórn­endur SAk segja það eiga að vera á hendi stjórn­valda að taka ákvarðanir um þjónustu­minnkun.

Sjúkrahúsið á Akureyri er varasjúkrahús fyrir Landspítala. Framlög til sjúkrahússins nema 10 milljörðum á fjárlögum næsta árs, en stjórnendur segja 500 milljónir vanta til viðbótar inn í grunnreksturinn.
Sjúkra­húsið á Akureyri er vara­sjúkra­hús fyrir Land­spít­ala. Framlög til sjúkra­húss­ins nema 10 millj­örðum á fjár­lögum næsta árs, en stjórn­endur segja 500 millj­ónir vanta til við­bótar inn í grunn­rekst­ur­inn.

Sjúkra­húsinu á Akureyri (SAk) vantar um 500 milljónir króna aukalega inn í rekstrar­grunn stofnunarinnar til þess að geta haldið áfram að veita sömu þjónustu og veitt er í dag. Til viðbótar við það er komin mikil viðhalds­þörf á húsnæði stofnunarinnar, sökum þess að síðustu ár hefur verið dregið úr og frestað meiriháttar viðhaldi til að vinna á móti halla­rekstri sjúkra­hússins.

Í minnis­blaði frá forstjóra SAk til fjár­laganefndar Alþingis segir að „mjög óskynsamlegt“ væri að halda áfram að fresta viðhaldi sjúkra­stofnunarinnar og viðhalds­skuldinni lýst sem gríðarlegri.

Í skila­boðum sjúkra­hússins til fjár­laganefndar segir að slæm fjárhags­staða SAk hafi áhrif á rekstur og möguleika til þróunar starfseminnar, auk þess sem mikið álag hafi verið á starfs­fólki og greinileg hættu­merki séu hjá öllum faghópum sem bregðast þurfi við, en í því samhengi er átt við lang­þreytu, veikindi og manneklu.

Leyfisgjöld til Microsoft tugmilljónum yfir fjárveitingum

Fram kemur í minnis­blaðinu að helstu ástæður rekstrar­vanda sjúkra­hússins séu þær að veikindi starfs­fólks hafi aukist og kostnaður vegna þessa séu um 151 milljón króna á verðlagi ársins 2022. Þá hafi stöðu­gildum læknanema, sérnáms­grunnlækna og sérnáms­lækna fjölgað um 10,1 frá 2015, sem tilkomið sé vegna breytinga á fyrir­komulagi sérnáms­lækna. Kostnaðurinn við þetta er sagður 219 milljónir króna.

Að auki er nefnt að lyfja­kostnaður, annar en við leyfis­skyld lyf, hafi aukist um 30 milljónir króna umfram hækkanir rekstrar­framlaga frá árinu 2018 og kostnaður SAk við sjúkra­flug hafi vaxið umtals­vert á síðustu árum, þannig að í það stefni að það kosti sjúkra­húsið 45 milljónir króna umfram fjár­veitingar.

Þá segir að kostnaður SAk vegna leyfis­gjalda fyrir tölvu­þjónustuna Microsoft 365 hafi aukist gífurlega frá árinu 2017, leyfis­kostnaður sjúkra­hússins hafi verið 34 milljónir króna umfram fjár­veitingar í fyrra og stefni í að verða 67 milljónir króna á þessu ári. Til viðbótar hafi svo verið gerð 47 milljóna króna aðhalds­krafa á stofnunina í fjár­veitingum þessa ári.

Samkvæmt fjár­laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar fyrir árið 2023 er áætlað að framlög úr ríkis­sjóði til rekstur SAk nemi rúmum 10 milljörðum króna, en þar af eru 200 milljónir króna áætlaðar til kaupa á tækjum og búnaði.

Stjórnvöld eigi að taka ákvörðun um niðurskurð þjónustu

Í minnis­blaðinu frá SAk segir að þrátt fyrir þá rekstrar­erfiðleika sem stofnunin hefur glímt við hafi engri þjónustu verið hætt á árinu, þar sem talin sé þörf á allri þeirri þjónustu sem í boði er. Þó er sagt frá því að skerðing hafi verið á starfsemi Krist­nesspítala auk þess sem gripið hafi verið til tíma­bundinnar lokunar á dag- og göngu­deild geðdeildar. Í minnis­blaðinu segir að greina þurfi áhrif þessa á legu­deildir, því lokanir á þjónustu auki álag á öðrum starfs­einingum þar sem þörfin fyrir þjónustuna hverfi ekki.

Í minnis­blaðinu segir frá því að SAk ætli ekki að skera niður í klínískri þjónustu sinni nema ákvörðun verði tekin um að hætta með einhverja þjónustu­einingu. „Hvaða þjónustu­eining yrði lögð niður eða flutt til telja stjórn­endur SAk vera stefnu­markandi ákvörðun stjórn­valda,“ segir í minnis­blaði SAk til fjár­laganefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár