Bóluefnaframleiðsla loks að hefjast í Afríku

80 prósent af íbúum Afríku, heimsálfu þar sem yfir 1,3 milljarður manna býr, hafa ekki enn fengið einn einasta skammt af bóluefni gegn COVID-19. Loksins stefnir í að bólu­efna­framleiðsla hefjist í nokkrum Afríku­ríkjum í gegnum frumkvæðis­verkefni WHO.

Ríkari þjóðir heims hafa ekki að fullu staðið við þær skuldbindingar sínar að deila með fátækari ríkjum bóluefni gegn COVID-19
Ríkari þjóðir heims hafa ekki að fullu staðið við þær skuld­bind­ingar sínar að deila með fátæk­ari ríkjum bólu­efni gegn COVID-19 Mynd: EPA

Sex ríki Afríku, Egypta­land, Kenía, Nígería, Senegal, Suður-Afríka og Túnis, verða þau fyrstu í álfunni til að fá tækni­búnað til að framleiða sitt eigið mRNA-bóluefni. Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin, WHO, hefur unnið að því að gera Afríku­löndum það kleift að framleiða sjálf bóluefni og hafa samningar þar um loks náðst.

Þegar fram­leiðslan verður komin af stað þurfa Afríku­lönd, að sögn WHO, ekki lengur að stóla eingöngu á efnaðri ríki hvað varðar bóluefna­skammta gegn COVID-19. Sú hefur verið raunin hingað til sem hefur orðið til þess að Afríka er langt á eftir öðrum álfum heims þegar kemur að bólu­setningum. Þá hafa lyfja­fyrirtækin mörg hver neitað að gefa eftir einka­leyfi til fram­leiðslunnar og önnur verið treg til þess.

BioNtech, fyrir­tækið sem bjó til mRNA-bóluefni gegn COVID-19 sem Pfizer fram­leiðir, hefur einnig tilkynnt að það ætli sér að koma til Afríku­landa færanlegum bólu­efna­verksmiðjum, búnum til úr flutninga­gámum.

WHO vonast til þess að einnig hægt verði að nýta tækja­búnaðinn til að framleiða önnur lyf og bóluefni, m.a. insúlín, krabbameinslyf og mögulega bóluefni gegn malaríu, berklum og HIV en þeir sjúkdómar eru í dag útbreiddir í mörgum Afríku­ríkjum.

Frá því að bólu­efna­framleiðsla hófst fyrir rúmu ári hefur WHO harðlega gagnrýnt efnaðri þjóðir fyrir að hamstra bóluefni og standa ekki við skuld­bindingar um gjafir til fátækustu ríkja heims líkt og samið hafði verði um áður en fram­leiðsla bólu­efnanna hófst. Því þegar á hólminn var komið tróðu Vestur­lönd sér mörg hver fremst í röðina hjá fram­leiðendum bóluefna, með peninga og völd að vopni og voru farin að bólusetja íbúa sinna landa í þriðja sinn áður en þau höfðu uppfyllt loforð um að gefa með sér til þeirra fátæku.

Þau tíðindi að BioNTech ætli að flytja til Afríku færanlegar rannsóknar­stofur og verksmiðjur hefur verið fagnað en ákvörðunin hefur einnig verið gagnrýnd því með þessu fyrir­komulagi á ekki að deila þekkingu á fram­leiðslu bólu­efnanna, líkt og WHO hefur krafið lyfja­fyrirtækin um að gera. Lyfja­fyrirtæki sem nutu gríðar­legs meðbyrs og fjármuna frá ríkjum, opinberum stofnunum og fleiri aðilum, til að þróa bóluefni og mala nú gull af fram­leiðslunni.

„Enginn annar viðburður í sögunni en COVID-19 hefur sýnt að það að vera háður fáum fyrir­tækjum um nauðsyn­lega framleiðslu­vöru er takmark­andi og hættulegt,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmda­stjóri WHO, er hann heimsótti Suður-Afríku nýverið.

Enn hafa 116 ríki heims ekki náð að bólusetja 70 prósent íbúa sinna og sum eru langan veg frá því. 80 prósent íbúa Afríku hafa ekki fengið einn einasta skammt af bóluefni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár