Olíuverð lækkar og Bandaríkjaþing samþykkir aðstoð til bænda

Tolla­stríð Banda­ríkjanna og Kína er farið að valda fjár­festum miklum áhyggjum, og bændur í Banda­ríkjunum hafa víða farið illa út úr því.

Banda­ríkjaþing hefur samþykkt að styrkja bændur um 16 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um tvö þúsund milljörðum króna, vegna skaðlegra áhrifa af tolla­stríði Banda­ríkjanna og Kína.

Áhrifin af því hafa stig­magnast að undan­förnu og leitt til þess að fjár­festar óttast nú að heims­búskapurinn gæti verið á leið inn í meiri hægagang.

Í umfjöllun Wall Street Journal segir að fjár­festar óttist að allir muni tapa á tolla­stríðinu, bæði Banda­ríkin og Kína.

Hefur þessi ótti meðal annars smitast út á markaðina, en hlutabréfa­verð hefur fallið síðustu daga.

Þá hefur olíuverð lækkað mikið. Í dag lækkaði það um 5,5 prósent, sé mið tekið af verðinu á tunnunni af hráolíu. Tunnan kostar nú um 58 Bandaríkja­dali en fyrir þremur vikum kostaði hún 70 Bandaríkja­dali.

Bændur í Banda­ríkjunum hafa fengið að finna fyrir neikvæðum áhrifum af tolla­stríðinu. Vegna hærri tolla inn á markaðs­svæði í Kína, hefur illa gengið að koma fram­leiðslu þeirra á markaði á góðum verðum. Þá hefur verð á ýmsum tækjum sem þeir nýta í fram­leiðslu hækkað verulega, vegna hærri tolla á innflutning til Banda­ríkjanna, meðal annars á málmum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár