Kostnaðarsamt stríð og hikandi bandamenn

Stríðs­átökin í Íran gætu orðið flókin og langvinn ólíkt því sem forseti Banda­ríkjanna vonar. Þá hjálpar ekki að bandamenn eru hikandi. Íranir aftur á móti virðast ekki finna sína bandamenn, og standa einir.

Íran
Íran Banda­ríkja­menn og Ísrael standa í ströngu þessa dag­ana. Mynd: IBRAHIM AMRO / AFP

Alls er óvíst að Donald Trump Bandaríkja­forseta verði að ósk sinni, að árásum Bandaríkja­hers og þess íraelska á Íran ljúki fljótt. Pólitískt úrfall gæti orðið honum dýrkeypt. 

Stríðið virðist vera að teygja anga sína til nágranna­ríkja Írans, sem hafa orðið fyrir barðinu á flugskeyta­árásum frá Sameinuðu arabísku fursta­dæmunum til Sádi-Arabíu auk Ísraels og Íraks. Þá er ljóst að efnahagsleg áhrif stríðsins gætu orðið umtals­verð á heiminn allan, þar á meðal okkur Íslendinga. Þar snýst allt fyrst og fremst um gas- og olíuverð.

Vandinn er þó ekki síður pólitískur. Stríðið er að mati margra álitið ólögmætt og úr hefur orðið pólitísk spenna á milli Banda­ríkjanna og Evrópu. Þar má helst nefna Spán sem neitar að heimila bandaríska hernum að notast við herstöðvar sínar. Það gerðu Bretar einnig í upphafi þó að þeir hafi mildast í afstöðu sinni. Þá var flug­skeytum skotið í áttina að Tyrklandi, sem hefði dregið NATO …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Laufey Eiríksdóttir skrifaði
    Af hverju ætli það sé, að almennir borgarar í olíuríkjunum við Persaflóa fögnuðu þegar sprengjur féllu á herstöðvar Bandaríkjamanna? Gæti verið að þar leyndust bandamenn Írana? Spyr sá sem ekki veit.
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það eru í raun fleiri hálvitar við stjórnvölinn í heiminum í dag en ég ímyndaði mér.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár