„Rigningin er bara andleg hindrun. Það þarf bara að koma sér af stað, yfir þröskuldinn og út úr húsi, því oftast er þetta ekki eins slæmt eins og við höldum, heldur bara mjög gaman,“ segir Brynhildur Ólafsdóttir leiðsögumaður. Hún svarar í síma undir Arnarfelli mikla í Þjórsárverum, þar sem hún er að gera sig klára í göngu dagsins með þrjátíu manna hóp fólks á vegum Ferðafélags Íslands. Hópurinn ætlar að ganga í fimm daga með allan farangur á bakinu, er þegar búinn að vaða yfir Þjórsá og allar hennar kvíslar. Það eru ýmisleg ævintýri fram undan, það er rigningarúði og meira af honum í kortunum. „Samt er enginn inni í tjaldi í fýlu. Það eru allir glaðir,“ fullyrðir Brynhildur og bætir við að einn af kostunum við göngur í rigningu sé að umhverfið fái nýjan svip. „Allur gróður verður fallegri í rigningunni, allir litir verða bjartari og skærari. Svo fylgir …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir