Málaferli vegna synjunar á innflutningi kjöts hafa kostað ríkið 47 milljónir

Mat­væla­stofnun hefur einu sinni hafnað umsókn um inn­flutn­ing kjöts eftir að dómur Hæsta­réttar féll í fyrra.

Mála­ferli vegna synj­unar á heim­ildum til inn­flutn­ings á fersku kjöti hafa kostað íslenska ríkið sam­tals um 47 millj­ónir króna und­an­farin ár. Þetta kemur fram í svari sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóns Stein­dórs Valdi­mars­sonar, þing­manns Við­reisnar. 

Jón Steindór Valdi­mars­sonþing­maður Við­reisnar

Tvö mál hafi verið rekin vegna ákvæða íslenskra laga og reglna um inn­flutn­ing á fersku kjöti. Í fyrra mál­inu, sem má rekja til árs­ins 2012, hóf Eft­ir­lits­stofnun EFTA athugun á sam­ræmi íslenskra laga við skuld­bind­ingar rík­is­ins sam­kvæmt EES-samn­ingnum í kjöl­far kvört­unar frá Samtökum versl­unar og þjón­ustu.

„Var málið sent til EFTA-dóm­stóls­ins 2017 og féll dómur 14. nóv­em­ber 2017. Kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna máls­ins í heild var 35.974.169 kr.,“ segir í svari ráð­herra.

„Í seinna mál­inu stefndi fyr­ir­tækið Ferskar kjöt­vörur ehf. íslenska rík­inu 25. apríl 2014 til greiðslu skaða­bóta vegna synj­unar á inn­flutn­ingi ófrysts kjöts. Lauk mál­inu með dómi Hæsta­réttar Íslands 11. októ­ber 2018 í máli nr. 154/2017. Kostn­aður íslenska rík­is­ins í þessu máli, að skaða­bótum með­töldum, var 11.059.832 kr.“ 

Jón Steindór spurði einnig um áætlað verð­mæti þeirra kjöt­vara í til­vikum þar sem heim­ildar til inn­flutn­ings hefur verið synjað eftir flutn­ing kjöts­ins til lands­ins. „Mat­væla­stofnun hefur hafnað einni umsókn um inn­flutn­ing kjöts eftir að dómur Hæsta­réttar Íslands féll 11. októ­ber 2018. Innihélt sú send­ing 226,5 kg af ófrystu nauta­kjöti að verð­mæti 487.055 kr. (3.623,920 evrur),“ segir í svari ráð­herra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár