Þrír kostir koma til greina á landamærum

Þegar núverandi aðgerðir vegna COVID-19 á landa­mærum Íslands falla úr gildi koma þrír kostir til greina hvað fram­haldið varðar. Einn er að aflétta öllum aðgerðum.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í minnis­blaði forsætis­ráðherra, dómsmála­ráðherra, heilbrigðis­ráðherra og utan­ríkis­ráðherra sem lagt var fyrir ríkis­stjórnar­fund í morgun er farið yfir sviðs­myndir fyrir breytt fyrir­komulag á landa­mærum. Núverandi aðgerðir gilda til 28. febrúar.

Þau megin­sjónarmið sem horfa þarf til að mati stjórn­valda við ákvarðanir um breyttar aðgerðir eru samræming við aðgerðir innanlands, þörf á samræmingu við aðgerðir í nágranna­löndum, lagaleg sjónarmið, stefna ESB varðandi áfram­haldandi takmarkanir á ónauðsynlegum ferðum óbólusettra þriðja ríkis borgara til Evrópu og nýlegar leið­beiningar Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunarinnar þar sem ríki eru hvött til að afnema kröfu um bólu­setningar­vottorð á landa­mærum.

Í minnis­blaðinu er greint frá þremur sviðs­myndum um fram­haldið:

  1. Öllum aðgerðum á landa­mærum verði aflétt.
  2. Aðgerðum á landa­mærum aflétt að mestu en tilmælum ESB um að takmarka ferðir óbólusettra þriðja ríkis borgara til Evrópu fylgt.
  3. Aðgerðum viðhaldið að hluta og fyrst og fremst horft til kröfu um bólu­setningar­vottorð eða neikvætt PCR-próf fyrir eða eftir komu til landsins, án kröfu um sóttkví. Taka þyrfti afstöðu til tilmæla ESB gagnvart óbólusettum þriðja ríkis borgurum.

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra sagði eftir ríkis­stjórnar­fund í morgun að til stæði að aflétta öllum samfélags­legum takmörkunum vegna COVID-19 á föstudag og jafnvel fyrr.

„Við erum að fara í samtal með sóttvarna­lækni, embætti land­læknis, almanna­vörnum og heilbrigðis­stofnunum og hvernig við horfum núna inn í fram­haldið,” sagði ráðherrann við blaðamenn eftir fundinn. „Við sjáum fyrir okkur að aflétta hér að fullu bæði innanlands og á landa­mærum.“

Áður hafði verið rætt um að aflétta að fullu um miðjan mars. Hins vegar segir heilbrigðis­ráðherra að vel hafi gengið undan­farnar vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár