Gervi-móðurkviður gæti aukið lífslíkur fyrirbura

Gervi-móður­kviður hefur verið hannaður með það í huga að hann væri sem líkastur aðstæðum í legi móðurinnar. Gæti hjálpað fyrirburum í fram­tíðinni.

Vísinda­menn hafa þróað tækni sem heldur lömbum sem fæðst hafa fyrir tímann lifandi í nokkrar vikur í einskonar "plast­pokalegi" sem líkir eftir aðstæðum í móður­kviði. Vonir standa til að í fram­tíðinni verði hægt að nýta tæknina til að hjálpa fyrirburum að þroskast áfram utan móðurkviðs.

Í dag er fyrirburum komið fyrir í hita­kössum og öndunar­vélum til að auka líkur á því að börnin nái að þroskast eðlilega utan móðukviðs. Þrátt fyrir þá tækni sem er til staðar í dag eru lífslíkur barna sem fæðast við 23 viku aðeins um 15%, 55% við 24 viku og 80% við 25 viku. Það var því ætlun rannsóknar­hópsins þróa tækni með það í huga að auka lífslíkur barna sem fæðast langt fyrir tímann og hjálpa þeim að halda áfram að þroskast og vaxa á sem eðlilegastan hátt.

Gervi-móður­kviðurinn var hannaður með það í huga að hann væri sem líkastur aðstæðum í legi móðurinnar. Í honum er að finna blöndu af volgu vatni og söltum sem svipar til legvatns og gegnir því hlutverki að vernda fóstrið. Vatns­blandan er endurnýjuð reglulega til að halda blöndunni hreinni.

Til að fá nægilegt súrefni í gegnum nafla­strenginn var tæki sem tók að sér hlutverk legkökunnar tengt var við nafla­strenginn. Hjarta lambsins pumpaði því blóði úr líkama sínum í tækið sem endurnýjaði það og sendir það aftur í gegnum nafla­strenginn til lambsins.

Lömbin sem notuð voru í rann­sókninni voru tekin úr móðurkvið við svipað þroska­stig og mannsbarn á 23 viku. Lömbin virtust þroskast eðlilega í pokanum og voru fjarlægð úr honum eftir 28 daga, þegar lungu þeirra höfðu þroskast nægilega vel.

Til að kanna áhrif tækisins voru lömbin aflífuð eftir að þau voru fjarlægð úr pokanum til að hægt væri að skoða heila þeirra og líffæri og meta þroska þeirra. Síðar í rannsóknar­ferlinu fengu lömbin að lifa lengur og virtust þau þroskast á eðlilegan hátt.

Þessi nýja tækni er ekki gallalaus og fylgir henni til dæmis aukin hætt á sýkingu, saman­borið við leg móðurinnar auk þess sem erfitt er að áætla rétt magn hormóna og næringar­efna til að dæla inn í pokann. Þrátt fyrir að áskoranirnar séu margar vekja niður­stöðurnar vonir um að tæknin geti nýst til að auka lífslíkur fyrirbura í fram­tíðinni. Næstu skref felast í því að prófa tæknina áfram á dýrum en enn er langt í að tæknin geti nýst börnum.

Niður­stöður rann­sóknarinnar voru birtar í tíma­ritinu Nature Communications fyrr í vikunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár