Píratar með „metnaðarfyllstu“ loftslagsstefnuna samkvæmt úttekt

Úttekt hóps­ins París 1,5, sem berst fyrir því að mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum verði efnd, leiðir í ljós að Píaratar, Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin eru með „metn­að­ar­fyllstu stefn­una“ í lof­st­lags­málum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vermir botns­ætið en Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins svör­uðu ekki og fá því fall­ein­kunn.

Umferðin í Reykjavík
Umferðin í Reykja­vík Í Reykja­vík er ein hæsta tíðni notk­unar á einka­bílnum af evr­ópskum borgum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur minnsta áherslu á að vinna gegn lofts­lags­breyt­ingum í stefnu sinni, en Píratar þá metn­að­ar­fyllstu, sam­kvæmt úttekt Par­ís­ar­hóps­ins svo­kall­aða, sem berst fyrir því að Ísland geri sitt til að stöðva hlýnun jarðar við 1,5 gráðu og forða þar með frá afdrifa­rík­ari breyt­ingum á nátt­úr­unni.

Píratar fengu 8,5 í ein­kunn en Björt fram­tíð kom fast á eftir með 8,1, Sam­fylk­ingin 7,8 og Vinstri græn 7,6.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var neðstur með 4,7, en næst­lægstur var Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 5,5. 

„Átta flokkar stand­ast prófið eins og staðan er í dag og eru Píratar með metn­að­ar­fyllstu stefn­una miðað við þetta rýni,“ segir í nið­ur­stöð­unum. „Lítið vantar uppá að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stand­ist matið og virð­ist bara lít­il­lega vanta uppá metn­að­inn við að setja skýr­ari mark­mið og aðeins ítar­legri stefnu, en það þarf ekki mikið til og það virð­ist vera áhugi fyrir hendi þannig að þau geta von­andi gert enn betur í fram­tíð­inni.“

Þess ber að geta að hvorki Mið­flokk­ur­inn né Flokkur fólks­ins svar­aði spurn­ingum hóps­ins og eru því ekki með í úttekt­inni.

„Lofts­lags­stefnur flokk­anna miðað við þau svör og stefnur sem flokk­arnir leggja fram fyrir kosn­ing­arnar 2017 virð­ast betri en var fyrir ári síðan,“ segir í umfjöllun hóps­ins. „Ef við göngum ekki vel til verks í þessum efnum í dag, þá skipta öll hin málin miklu minna máli. Við erum hluti af borg­urum jarð­ar­innar og við þurfum öll að gera okkar til að minnka kolefn­is­fót­spor af manna­völdum, því fyrr sem við byrjum þá mik­il­vægu vinnu, því betra.“

Nið­ur­stöður úttekt­ar­innarParís 1,5 greindi fram­boð til Alþingis út frá sex grunn­spurn­ingum.

Í úttekt­inni voru flokkar spurðir út í stefnu þeirra í sex málum: 1. Olíu­vinnslu á Dreka­svæð­inu. 2. Tölu- eða tíma­sett mark­mið í losun koltví­oxíðs. 3. Hagræna hvata gegn losun koltví­oxíðs. 4. Tillögur um breyt­ingu inn­viða til að mæta vand­anum, til dæmis um flýt­ingu raf­bíla­væð­ingar. 5. Tillögur varð­andi end­ur­heimt vot­lendis og skóg­rækt. 6. Annað almennt um lofts­lags­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2017

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár