Danir loka varanlega á alla minkarækt

Danska landbúnaðar­ráðuneytið tilkynnir um endalok minka­ræktar.

Minkarækt
Minka­rækt Myndin sýnir minka í búri í Kína. Mynd: GREG BAKER / AFP

Danmörk hefur lengi verið í fremstu röð í minkarækt í heiminum en mun nú leggja greinina niður til frambúðar. Danska landbúnaðar­ráðuneytið tilkynnti þetta í dag.

„Danmörk mun ekki sækja um sérstaka undanþágu til að dönsk minkarækt geti haldið áfram þegar bann Evrópu­sambandsins við minkarækt tekur gildi í ágúst á næsta ári,“ sagði ráðuneytið í yfir­lýsingu.

Í nóvember 2020 fyrir­skipaði ríkis­stjórn Danmerkur að um 15 milljónum minka í landinu skyldi lógað. Rann­sóknir höfðu bent til þess að afbrigði veirunnar sem fannst í sumum dýranna gæti dregið úr virkni framtíðar­bóluefna gegn Covid-19.

Fjölda­lógunin varð þó fljótt pólitískt áfall fyrir ríkis­stjórnina þegar síðar kom í ljós að engin laga­heimild var til að knýja bændur til að lóga dýrunum.

Í kjölfarið var öll ræktun minka bönnuð árin 2021 og 2022.

Banninu við minkarækt var aflétt 1. janúar 2023 en greinin tók aðeins lítillega við sér. Í ágúst 2026 …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Flott að sé lokað á minkarækt, þó ég hafi litla samúð með minkunum. Eina dýrategundin fyrir ytan manninn, sem ég veit um, sem drepur sér til ánægju, ekki bara til matar
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár