Ný hverfi í byggingu á mögulegu áhrifasvæði eldgosa

Stjórn­mála­menn berj­ast fyrir því að víkka byggð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Nýtt hættu­mat Veð­ur­stof­unnar fyrir eld­gos bendir til þess að áhættan vaxi með efri byggð.

Ásland í Hafnarfirði Nýjasta hverfið í byggingu í Hafnarfirði er Ásland 4 skammt frá Skarðshlíð.

Stórir hlutar efri byggða höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins liggja á svæði þar sem hugs­an­legt er að hraun renni eða eld­gosa­opnun verði. Ný byggð sem verið er að reisa í Hafn­ar­firði og Reykja­vík falla undir þessi svæði, með mis­mik­illi áhættu.

Þrír af fimm lík­leg­ustu far­vegum hraun­flæðis, sem Veð­ur­stofa Íslands hefur skil­greint, renna í gegnum Hafn­ar­fjörð eða Garðabæ, en hinir tveir liggja í átt­ina að Elliða­ár­dal í gegnum Elliða­vatn eða hverfið Norð­linga­holt.

Nýtt hverfi í Hafn­ar­firði, Skarðs­hlíð, sem selst hefur upp, liggur á svæði þar sem taldar eru „tölu­verðar“ líkur á hraun­rennsli, ef til með­al­stórs goss kemur ofan byggð­ar­innar.

Hafn­ar­fjörður hefur einnig í boði lóðir fyrir hest­hús í Grá­hellu­hrauni, þar sem taldar eru „miklar líkur“ á hraun­flæði.

Nýjasta upp­bygg­ing­ar­hverfið, Ásland 4, er ekki stað­sett í lík­leg­ustu far­vegum eld­gosa, sem skil­greindir eru af Veð­ur­stof­unni, en þar eru þó „litlar“ líkur á upp­tökum eld­goss. Það gildir um mörg önnur upp­bygg­ing­ar­svæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hugsanleg gosupptök

Efri hluti höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins nær inn á eld­stöðv­ar­kerfi Krýsu­víkur, sem liggur allt frá Krýsuvík við suð­ur­strönd Reykja­nesskaga til norð­aust­urs yfir í Mos­fells­dal. Vegna þess eru stór svæði skil­greind sem mögu­leg upp­töku­svæði eld­gosa. Það er því ekki ein­göngu hættan á að hraun flæði niður í byggð, heldur að gos hefj­ist innan byggðar.

Norð­linga­holt var byggt á þekktu sprungu­svæði og eru bæði  „litlar“ líkur á gos­upp­tökum og svo „nokkrar“ líkur á hraun­flæði. Norð­linga­holtið liggur í tveimur af fimm lík­leg­ustu hraun­far­vegum sem Veð­ur­stofan hefur skil­greint á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna sviðs­mynda eld­gosa fyrir ofan byggð. 

Innan Reykja­vík­ur­borgar hefur verið skipu­lögð 6 þús­und manna byggð í Keldum, við botn Graf­ar­vogs­ins. Þar eru taldar „litlar“ en ein­hverjar líkur á gos­upp­tökum, hvenær sem það skyldi verða.

Reykja­vík­ur­borg hyggur á bygg­ingu 3.500 íbúða í Höllum í Úlf­arsár­dal, þar sem „litlar“ líkur eru á gos­upp­tökum og hraun­rennsli, sem og á aust­ur­reitum Úlf­arsár­dal.

Ekki er talin eld­gosa­hætta á helstu þétt­ing­ar­reitum Reykja­víkur, til dæmis í Ártúns­höfða eða gamla Vest­ur­bænum, en allur norð­ur­hluti borg­ar­innar, eins og Kjós­ar­hreppur, Kjal­ar­nes og Sel­tjarn­ar­nes, liggja utan eld­gosa­vár. Sama gildir um flug­vall­ar­svæðið, sem Reykja­vík­ur­borg skil­greinir sem „fram­tíð­ar­svæði“ upp­bygg­ingar, en hefur ekki náðst sátt um að færa.

Ásland 4Nýtt hverfi við útjaðar Hafn­ar­fjarðar er ekki innan lík­leg­asta far­vegs hraun­rennslis, en á svæði þar sem eru mögu­leg upp­tök eld­gosa, þó ólík­leg séu.
Úlf­arsár­dalur„Litlar“ líkur en ein­hverjar á eld­gosi og hraun­rennsli eru í nýrri byggð Reykja­vík­ur­borgar í Úlf­arsár­dal.
Byggt við far­veg eld­gosaNýbygg­ing efst í Hafn­ar­firði, en „mjög miklar“ líkur telj­ast á að eld­gos verði í fjöll­unum fyrir ofan, þótt hraun­rennsli nái ekki endi­lega til byggð­ar­innar.

Vilja víkka vaxtarmörk

Sveit­ar­fé­lögin sjö á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sömdu sín á milli um vaxt­ar­mörk árið 2015.

Ásdís Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­stjóri í Kópavogi, hefur talað fyrir því að víkka þau mörk til þess að rúma áfram­hald­andi fólks­fjölgun á svæð­inu, eins og Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík.

„Síð­ast­lið­inn ára­tug hafa for­sendur að baki vaxt­ar­mörk­unum gjör­breyst, mann­fjöld­inn hefur auk­ist langt umfram spár og hús­næð­is­þarfir fjöl­skyldna breyt­ast í sífellu. Þau svæði sem hafa verið skil­greind fyrir hús­næð­is­upp­bygg­ingu munu aldrei nægja til að mæta þörf­inni á hús­næð­is­mark­aði, það er raun­veru­leik­inn”, sagði Hildur Björns­dóttur í yfir­lýs­ingu frá borg­ar­stjórn­ar­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins haustið 2024.

Sama hefur odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Hafn­ar­firði, Orri Björns­son, nýlega lagt áherslu á. „Vandinn liggur ekki í skorti á vilja til upp­bygg­ingar í Hafn­ar­firði, heldur í þeim skorðum sem settar hafa verið. Þær skorður skrif­ast á vaxt­ar­mörk höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og and­stöðu vinstri flokk­anna í sveit­ar­stjórnum, sér í lagi í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, til að gera nauð­syn­legar breyt­ingar,“ skrif­aði hann í grein á Vísi.is í síð­ustu viku þar sem hann lagði til að „afnema vaxt­ar­mörkin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu“. 

Veð­ur­stofa Íslands leggur til í nýju hættu­mati sínu að tekin verði upp skil­grein­ing á því hvað telst „ásætt­an­leg áhætta“ fyrir byggð, með til­liti til hættu af eld­gosum.

Hætta á hraun­rennsliLík­leg­asta hraun­rennsli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Mjög miklar“ líkur eru taldar 20 sinnum meiri en „litlar“ líkur. Gulmerkt á mynd­inni er nýtt hverfi í Áslandi 4 í Hafn­ar­firði.
Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    ENURHÖNNUN HÖFUÐBORGAR, FLUGVALLARMÁL OG NÝ BYGGÐ
    Þörf fyrir nýja stefnu. Mannfjöldaþróun hefur farið langt fram úr fyrri spám og aukin áhætta vegna náttúruvár, einkum hraunflæðis, kallar á endurskoðun á skipulagi höfuðborgarsvæðisins. Núverandi þróun, þar sem byggð er þanin út inn á áhættusvæði, er hvorki sjálfbær né skynsamleg til lengri tíma.
    Til að auka áfallaþol landsins þarf að dreifa byggð betur með nýrri borg á vesturlandi og skapa þannig raunhæft mótvægi við höfuðborgina. Nýr alþjóðaflugvöllur er lykilforsenda fyrir þróun slíkrar borgar.
    FLUTNINGUR REYKJAVÍKURFLUGVALLAR GENGUR ILLA
    Undirbúningur flutnings Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni hefur staðið yfir í meira en tvo áratugi. Þrátt fyrir fjölda skýrslna og greininga hefur lítið áunnist og engar afgerandi ákvarðanir verið teknar. Flugvöllurinn er enn í Vatnsmýrinni.
    Áhersla hefur að mestu verið á flugrekstrarlega þætti en þjóðhagsleg sjónarmið fengið minni athygli. Umræðan hefur því mótast af hagsmunum tengdum fluginu, á meðan heildstæð stefnumótun með þjóðhagslegar áherslur hefur setið á hakanum.
    Verkefnið hefur einnig liðið fyrir skort á öflugri verkefnisstjórn með reynslu af stórum og flóknum innviðaverkefnum („megaprojects“). Þetta hefur leitt til veikrar þjóðhagslegrar greiningar og ómarkvissrar kynningar til almennings.
    REYNSLA FRÁ TORONTO – FYRIRMYND
    Í Toronto hefur verið unnið að sambærilegu, en umfangsmeira verkefni tengdu flugvallarmálum. Þar hefur verkefnið verið leitt af mjög reyndu alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki með víðtæka reynslu af stórum innviðaverkefnum, „Megaproject“. Skortur á slíkri reynslu hefur haft slæmar afleiðingar fyrir Reykjavíkur flugvallar verkefnið.
    Einkenni Toronto verkefnisins eru: Skýr þjóðhagsleg markmið í forgrunni, markviss og fagleg verkefnisstjórn risaverkefnis, öflug kynning á þjóðhagslegum ávinningi og þátttaka almennings. Þessi nálgun hefur skilað farsælli framvindu og auknum stuðningi samfélagsins.

    NÝJA BORG OG ALÞJÓÐAFLUGVÖLLUR Í BORGARFIRÐI
    Borgarfjörður er raunhæfur kostur fyrir nýjan öflugan þéttbýliskjarna og alþjóðaflugvöll. Svæðið hefur þegar sterka stöðu sem ferðamannasvæði, sem skapar grundvöll fyrir flugvöll og tengda atvinnustarfsemi.
    Hugmyndin felur í sér: Nýja Borg (sbr. York, New York) á Mýrum, 10–20 km frá Borgarnesi. Alþjóðaflugvöllur sem forsenda byggðaþróunar . Betri varaflugvöllur en Reykjavíkurflugvöllur. Flugbrautir og varaflugvöllur kostað af lóðasölu í Vatnsmýri en uppbygging alþjóðaflugvallar umfram það einkaframkvæmd.
    Slík uppbygging myndi hægja á vexti á Keflavíkurflugvelli og draga úr vexti umferðar á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða gæti uppbygging samgangna í Borgarfirði tengt svæðið betur við aðra landshluta og styrkt atvinnusvæði á Vesturlandi.
    Stutt er til höfuðborgarinnar og góðir möguleikar á vatns- og hitaveitu. Hraðbraut milli Akraness og Borgarness (og seinna til Skagafjarðar) mundi tengja bæina betur saman í eitt atvinnusvæði sem gæti orðið ámóta og Akureyri eða stærra þegar fram líða stundir. Þannig yrði stórefld byggð í annars fámennu Norðvesturkjördæmi.
    Þessi og margir fleiri ámóta kostir fyrir alþjóðaflugvöll hafa því miður ekki verið til almennilegrar skoðunar undanfarna áratugi í tengslum við flutning Reykjavíkurflugvallar.
    VATNSMÝRI – TÆKIFÆRI TIL ÞEKKINGARUPPBYGGINGAR
    Vatnsmýri býður upp á einstakt tækifæri til að byggja upp þekkingarklasa („Kísildal Íslands“).
    Helstu kostir: Nálægð við Háskóli Íslands og Háskóla Reykjavíkur. Nálægð við háskólasjúkrahús. Samlegð með nýsköpunarfyrirtækjum. Flestir starfsmenn á svæðinu byggju í göngufæri frá vinnustaðnum. Á Vatnsmýrinni og á aðliggjandi þéttingarsvæðum gæti risið 25–30 þúsund manna byggð sem myndi: Draga úr umferðarþunga. Styðja við fjölgun hálaunastarfa.
    Þetta er eitt mikilvægasta tækifæri landsins til að efla þekkingarhagkerfi til framtíðar og styddi við nýja atvinnustefnu ríkisstjórnar. Erfitt er að sjá að annað jafn gott tækifæri til uppbyggingar svæðis fyrir þekkingarklasa, eigi eftir að gefast í fyrirséðri framtíð.
    Þekkingarklasinn í Vatnsmýrinni mundi auðvelda mjög umferðar- og fasteignamál, einkum íbúðarhúsnæði, í höfuðborginni næstu 20-25 árin ásamt auðvitað Nýju Borg í Borgarfirði.
    NÝR INNANLANDSFLUGVÖLLUR
    Við val á nýjum innanlandsflugvelli þarf líklega að skoða fleiri kosti en gert hefur verið hingað til. Áhersla þarf að vera á að draga úr kostnaði og umhverfisáhrifum með því að einblína á innanlands- og sjúkraflug og nýta þróun hljóðlátari og umhverfisvænni flugvéla á næstu árum.
    Aðrir flugstarfsemiþættir (t.d. æfinga- og einkaflug) mætti færa á sérhæfðari og fjarlægari staði sem síður truflar íbúðabyggð.
    Heildarniðurstaðan er nær örugglega sú að þjóðhagslegur ávinningur af uppbyggingu kringum þekkingarklasa í Vatnsmýri gæti vel staðið undir kostnaði við nýjan innanlandsflugvöll og varaflugvöll í Borgarfirði.
    SAMANTEKT. Helstu niðurstöður og tillögur eru:
    • Nauðsynlegt er að dreifa byggð og auka áfallaþol landsins með nýrri borg utan höfuðborgarsvæðisins.
    • Flutningur Reykjavíkurflugvallar hefur tafist vegna skorts á heildstæðri stefnu, veikrar verkefnisstjórnar og ófullnægjandi þjóðhagsgreiningar.
    • Erlend dæmi (t.d. Toronto) sýna að sterk og reynd verkefnisstjórn risa innviðaverkefna, „Megaproject“ og skýr markmið og vönduð kynning á þjóðhagslegri þýðingu verkefnis skiptir sköpum.
    • Borgarfjörður er raunhæfur kostur fyrir nýjan alþjóðaflugvöll og Nýja Borg.
    • Vatnsmýrin er kjörsvæðisvæði fyrir þekkingariðnað og hálaunastörf. Annað jafn hentugt svæði er vandfundið í fyrirsjáanlegri framtíð. Svæðið er lykill að innleiðingu nýrrar atvinnustefnu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldsumbrot á Reykjanesskaga

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár