Barnaníðingur, 365 vs. réttarkerfið, flaggstangir og naktar konur

Kjarninn bauð að venju upp á hlaðborð af áhuga­verðu efni um liðna helgi. Hér er hægt að nálgast það allt á einum stað.

Lesendum Kjarnans var að venju boðið upp á hlaðborð frétta­skýringa og skoðana­greina um helgina. Á laugardags­morgun birtist frétta­skýring um þá viðskipta­vini einka­banka­þjónustu og markaðs­viðskipta Arion banka sem fengu að kaupa hlut í Símanum á undir­verði og geta nú selt bréfin með hundruð milljóna króna hagnaði. Um er að ræða best stæðu viðskipta­vini bankans. Samkeppnis­eftirlitið segir ástæðu til þess að hafa áhyggjur af aðstöðumun á fjármála­markaði. Lestu allt um hvernig hinir ríku eru hand­valdir til að græða peninga.

Næst færðum við okkur í alþjóða­málin. Undan­farið hefur verið tekist á um stuðning Íslands við viðskipta­þvinganir gagnvart Rússum. Málflutningur hagsmuna­aðila hefur verið hávær og mikið gert úr fjárhags­legu tjóni þeirra. Bjarni Bragi Kjartansson alþjóða­stjórnmála­fræðingur spurði hvort þjóðar­öryggi Íslands sé einskis virði?

Tækni­varpið var á sínum stað og helgaði sig Windows þessa vikuna og ræddi við Microsoft-sérfræðingana Atla Jarl og Þorstein Þorsteins um framtíðar­möguleika fyrir­tækisins.

Ritdeila hefur staðið yfir milli Kristínar Þorsteins­dóttur, aðal­ritstjóra 365, og Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, um meinta þátttöku miðla undir hennar í herferð dæmdra manna gegn trúverðug­leika dóms­kerfisins. Þórður Snær svaraði leiðara sem Kristín birti á laugardag samdægurs. Þar sagði m.a.:„Við Kristín erum alveg sammála um að enginn afsláttur eigi að vera gefinn af reglum rétta­ríkisins, en á mismun­andi forsendum. Ég er þeirrar skoðunar að réttar­ríkið sé ekki sjálf­krafa ónýtt þegar ríkir menn eru dæmdir í fangelsi á meðan að ritstjóri 365 er þeirrar skoðunar að það séu einmitt slíkar niður­stöður sem ónýti réttar­ríkið."

Warren Jeffs var um tíma á meðal þeirra manna sem taldir voru hættulegastir í Banda­ríkjunum að mati FBI. Þó hann sé kominn bak við lás og slá þá er hann enn að stýra lífi þúsunda manna í Banda­ríkjunum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræðingur kynnti sér óhugnalega þræði Jeffs og „dýrlinga“ hans.

„Að treysta núverandi kynslóðum fyrir Alþingis­reitnum er menning í sjálfu sér og besta leiðin til að sýna verkum eldri kynslóða virðingu. Byggjum þar veglegt nútíma borgarhús, skilgreinum okkar eigin notkun á svæðinu og veitum næstu kynslóð reykvískra borgar­húsa innblástur." Þetta er meðal þess sem kom fram í áhuga­verðri aðsendri grein eftir Birki Ingibjartsson, arkitekt, um hugmyndir um uppbyggingu á Alþingis­reitnum.

Krafta­jötuninn Ari Gunnarsson var gestur vikunnar í Grettis­taki, sem fór að venju í loftið á sunnudags­morgun. Hann ræddi æfingar, matarræði og Jakaból við Gretti.

Forstöðu­menn og forstjórar danskra ríkis­fyrirtækja og stofnana á vegum ríkisins (kirkjur þar meðtaldar) hafa kannski margir hverjir gjóað augum á almanakið í síðustu viku þegar þeir lásu bréf sem borist hafði frá Fjármála­ráðuneytinu í Kaupmanna­höfn. Margir þeirra hafa ugglaust haldið að það væri kominn 1. apríl. Bréf ráðuneytisins var hvorki langt né flókið. Þar var einfald­lega að finna fyrirmæli um að telja þær fána­stangir sem tilheyra viðkomandi stofnun og standa utandyra. Borgþór Arngrímsson, frétta­ritari Kjarnans í Kaupmanna­höfn, fór yfir þetta furðulega mál á sunnudag.

Guðrún Ósk Þorbjörns­dóttir er eini Íslend­ingurinn innan hermála­deildar NATO og vinnur að kynjajanfrétti innan aðildar­ríkjanna. Hún var ráðin í starfs­þjálfun fyrir ári en varð fljótt sérfræðingur á jafnréttis­stofu NATO. Fimm ára dóttir hennar talar fjögur tungumál eftir flakk um heiminn. Sunna Valgerðar­dóttir tók afar áhugavert viðtal við Guðrúnu.

Við erum enn jafn furðu­lostin yfir þessu málverki eins og þegar fólk sá það fyrst í París 1863. Hvað er eiginlega að gerast á þessari mynd? Af hverju er konan nakin? Ef þú átt leið um París skaltu gera þér ferð á Orsay-safnið og upplifa undrið, eitthvert áhrifa­mesta og umdeildasta listaverk sögunnar: Le Déjeuner sur l´herbe eftir Manet. Málverk sem markar upphaf nútíma­listarinnar. Freyr Eyjólfsson, frétta­ritari Kjarnans í Frakk­landi, útskýrði undrið í frétta­skýringu á sunnudag.

Nýr kafli hófst í sögu Írans með afléttingu viðskipta­þvingana um helgina. Meðal þess sem Íranir eru sagðir ætla að gera er að kaupa 116 nýjar flugvélar frá Airbus, eftir langt bann við sölu á flugvélum til þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár