Nýr kafli í sögu Írans

Forsetinn og utanríkisráðherrann fallast í faðma á íranska þinginu í dag.
For­set­inn og utan­rík­is­ráð­herr­ann fall­ast í faðma á íranska þing­inu í dag. Mynd: EPA

Nýr kafli er haf­inn í sam­skiptum Írans við heim­inn eftir að alþjóð­legum við­skipta­þving­unum á ríkið hefur verið lyft. Þetta segir Hassan Rouhani for­seti lands­ins.

Við­skipta­þving­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna, Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins hafa haft mikil áhrif á efna­hag Írans. Hluti af kjarn­orku­sam­komu­lag­inu sem náð­ist við Íran á síð­asta ári fól það í sér að við­skipta­þving­unum yrði létt ef ákveðnum skil­yrðum væri mætt. Í gær var til­kynnt um það að Íranir hefðu upp­fyllt þau skil­yrði, og því yrði haf­ist handa við að aflétta þving­unum. Þessu hefur verið fagnað víða síðan þá. Talað er um dag­inn sem inn­leið­ing­ar­dag­inn, eða Implementation Day á ensku.

Banda­ríkin og Íran hafa skipst á föngum sem hafa verið í haldi í hvoru landi um sig. Íranir slepptu úr haldi fimm föngum, meðal ann­ars Jason Rezaian, blaða­manni Washington Post, sem hefur verið í haldi grun­aður um njósnir í meira en ár. Allir fang­arnir eru með tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt í Banda­ríkj­unum og Íran. Þeim var sleppt í skiptum fyrir sjö Írani sem hafa verið í haldi banda­rískra yfir­valda fyrir brot á við­skipta­þving­un­unum.

Rouhani vill að almenn­ingur í land­inu finni fyrir áhrifum breyt­ing­anna áður en þing­kosn­ingar verða haldnar í Íran í febr­úar. Fljót­lega munu bankar í Íran opna á sam­skipti sín við evr­ópska fjár­mála­kerfið. 30 millj­arðar Banda­ríkja­dala, sem hafa verið frosnir und­an­farin ár, verða strax aðgengi­legir Írönum, en alls hafa 100 millj­arðar dala verið frosnir.

Nú verður ekki lengur bannað að flytja íranska olíu til Evr­ópu­sam­bands­ríkja, og það mun hafa áhrif á alþjóð­lega olíu­mark­að­inn. Stjórn­völd í Íran munu lík­lega bæta hálfri milljón hrá­ol­íu­tunna á mark­að­inn á dag - sem mun að öllum lík­indum lækka olíu­verðið enn frekar. Búist er við því að hálfri milljón tunna til við­bótar verði bætt við eftir ein­hvern tíma. Nú þegar flytja Íranir út um 1,1 milljón tunna á dag.

Enn fremur hefur Barack Obama Banda­ríkja­for­seti lyft banni við sölu á flug­vélum til Írans. BBC greinir frá því að Íranir vilji kaupa 114 nýjar far­þega­flug­vélar frá Airbus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár