Eini Íslendingurinn hjá herdeild NATO vinnur að betri heimi fyrir konur í stríði

Eini Íslend­ing­ur­inn innan her­mála­deildar NATO vinnur að kynja­jafn­rétti innan aðild­ar­ríkj­anna. Hún var ráðin í starfs­þjálfun fyrir ári en varð fljótt sér­fræð­ingur á jafn­rétt­is­stofu NATO. Fimm ára dóttir hennar talar fjögur tungu­mál eftir flakk um heim­inn.

Mynd: Aníta Eldjárn
Mynd: Aníta Eldjárn

Guðrún Ósk Þor­björns­dóttir hefur starfað sem sér­fræð­ingur á skrif­stofu jafn­rétt­is­mála hjá hern­að­ar­yf­ir­völdum NATO í tæpt ár. Hún lærði stjórn­mála­fræði og kynja­fræði við Háskóla Íslands og tók í kjöl­farið masters­nám við Háskól­ann í Árósum í Danmörku í umhverfis- og átaka­fræði (e. Human Security). Hún vann masters­rann­sókn sína á Fiji eyjum.

„Ég fór sem skiptinemi til Nýja Sjálands þegar ég var í mennta­skóla og ákvað að fara þangað aftur þegar ég var komin með fjöl­skyldu til að sýna þeim landið. Við nýttum tæki­færið og fórum í raun hring­inn í kring um hnött­inn og vörðum tölu­verðum tíma á Fiji-eyjum. Þar kynnt­ist Guðrún sam­tökum sem unnu að vald­efl­ingu kvenna í dreif­býli í land­inu, sem varð síðar kveikjan að masters­rann­sókn hennar. Hún gerði eig­ind­lega rann­sókn með við­tölum við 20 konur þar sem hún reyndi að kom­ast að því hvernig vinnan með sam­tök­unum hefði haft áhrif á þeirra líf.

Fimm ára dóttirin talar fjögur tungumál

„Þetta var ynd­is­legur tími. Vinnan með kon­unum gaf mér mjög mikið, enda er ég enn þann dag í dag að vinna að þessum mál­efnum. Á Kyrra­hafs­svæð­inu er póli­tísk þátt­taka kvenna sú minnsta í heim­inum og heim­il­is­of­beldi gagn­vart konum er gríð­ar­lega stórt og mikið vanda­mál. Það var frá­bært að sjá þann árangur sem varð með starfi þess­ara sam­taka og fá að vera þátt­tak­andi í því,” segir Guðrún. „Svo var þetta líka dýr­mætur tími fyrir fjöl­skyld­una mína og að fá að vera með þeim þarna var afskap­lega gott og mikið ævin­týri.”

Guðrún var á Fiji-eyjum með manni sínum, Hólmari Sig­munds­syni, og Ylfu, þriggja ára dóttur þeirra, í fjóra mán­uði árið 2014.

„Dóttir mín fór fljót­lega að tala ensku, sem er eitt þriggja tungu­mála talað á Fiji-eyjum. En sem betur fer var hún ekki alveg búin að gleyma dönsk­unni.”

Dóttir Guðrúnar er fimm ára í dag og talar fjögur tungu­mál: íslensku, dönsku, ensku og frönsku eftir að fjöl­skyldan flutti til Brussel. „Ég verð að við­ur­kenna að danskan fékk aðeins að víkja fyrir frönsk­unni,” segir Guðrún.

Úr UN Women í NATO

Eftir dvöl­ina á Fiji-eyjum flutt­ist Guðrún aftur til Dan­merkur, í þetta sinn til Kaup­manna­hafnar, hvar hún hóf störf hjá UN Women í starfs­þjálfun. Guðrún segir þann tíma hafa verið skemmti­legan og gef­andi.


„En mig lang­aði að vinna meira að þessum mál­efnum sem ég hafði kynnst hjá UN Women, sér­stak­lega þegar kemur að hern­að­ar­málum í stofnun eins og NATO þar sem umhverfið er mjög karllægt,” segir hún. „Ég vissi í raun lítið um þann heim og mig lang­aði til að fræð­ast meira um hann. Og það er svo sann­ar­lega áhuga­vert að vinna að þessum mál­efnum innan her­mála­sviðs­ins.”

Guðrún sótti um starfs­þjálfun hjá NATO og hóf þar störf í byrjun síð­asta árs. Stuttu síðar var hún ráðin sem sér­fræð­ingur á jafn­rétt­is­skrif­stofu her­mála­yf­ir­valda stofn­un­ar­innar. Maður Guðrúnar vinnur sem for­rit­ari hjá íslensku fyr­ir­tæki og vinnur frá Brussel og dóttir þeirra gengur í skóla þar.

„Við erum rosa­lega heppin og það eru auð­vitað mikil for­rétt­indi fyrir mig að hann sé í þannig vinnu að hann geti fylgt mér í þetta,” segir Guðrún.

Hún segir starfið afar fjöl­breytt og snúa fyrst og fremst að stöðu kynj­anna innan her­liða aðild­ar­ríkja NATO. Afar mis­jafnt getur verið eftir löndum hvort lagðar séu áherslur á slíkt innan her­liða ríkj­anna.

„Auk þess leggjum við mikla áherslu á almenn kynja­sjón­ar­mið í aðgerðum banda­lags­ins. Samstarf og sam­skipti við aðild­ar­ríkin og fasta­nefndir þeirra er líka mik­il­vægur hluti af starf­inu, þar sem vinna okkar byggir á sam­stöðu þeirra,” segir hún.

Reglur samþykktar um kynbundið ofbeldi í stríði

Í byrjun síð­asta árs, þegar Guðrún hóf störf, lagði skrif­stofa jafn­rétt­is­mála NATO fram drög að hern­að­ar­legum við­mið­un­ar­reglum um hvernig megi fyr­ir­byggja og bregð­ast við kyn­bundnu ofbeldi í stríðs­á­tökum. Þær reglur voru í kjöl­farið sam­þykktar af aðild­ar­ríkj­unum í sumar, sem var gríð­ar­lega jákvætt skref, að mati Guðrúnar.

Jafn­rétt­is­skrifs­stofa her­mála­sviðs NATO var stofnuð árið 1997 og starfar fyrir nefnd NATO um kynja­sjón­ar­mið, sem verður 40 ára á þessu ári. Sú nefnd byrj­aði sem sam­tök kvenna innan her­liða NATO og var síðar breytt í nefnd um kynja­sjón­ar­mið.

Skrif­stofan sam­anstendur af þremur starfs­mönnum, allt konum; Guðrúnu, yfir­manni hennar, sem er liðs­for­ingi úr tékk­neska flug­hernum, og aðstoð­ar­konu liðs­for­ingj­ans sem kemur úr ítalska hernum.

Mikill meiri­hluti starfs­manna her­mála­deildar NATO kemur úr her­liðum aðild­ar­ríkj­anna, en þó eru þar líka óbreyttir borg­arar, eins og Guðrún.

Safna gögnum um kynferðisbrot

„Við vinnum fyrst og fremst fyrir nefnd NATO um kynja­sjón­ar­mið. Við skipu­leggjum viku­laga ráð­stefnu á ári hverju fyrir nefnd­ina þar sem full­trúar frá aðildar- og sam­starfs­ríkjum NATO koma saman og og þróa til­lögur sem lagðar eru fram fyrir Her­mála­nefnd NATO. Á síð­asta ári fengum við Astrid Prinsessu af Belgíu sem sér­stakan gest á ráð­stefn­una," segir hún.

Skrif­stofa Jafn­rétt­is­mála safnar einnig árlegum skýrslum aðilld­ar­ríkj­anna um stöðu kvenna innan hers­ins.

„Núna er ég að taka saman þau gögn. Þá fáum við til dæmis yfir­sýn yfir verk­ferla í til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot, sam­ræm­ingu vinnu og fjöl­skyldu­lífs, áherslur á kynja­sjón­ar­mið innan hers­ins og í aðgerðum, og fleira," segir Guðrún. „Það getur verið mjög mis­jafnt eftir ríkjum hvort lagðar séu áherslur á slíkt. En með því að safna þessum gögnum getum við að ein­hverju leyti séð hvar hindr­an­irnar liggja og hvað megi betur fara. Nú erum við aftur komin á fullt við að und­ir­búa næstu árlegu ráð­stefnu."

Herbúningar í vinnunni og mikill agi

„Það er mjög sér­stök upp­lifun að vinna í þessu umhverfi. Nær allir vinnu­fé­lagar mínir mæta til dæmis í her­bún­ingum í vinn­una á meðan ég er bara í venju­legum fötum,” segir Guðrún og bætir við að vinnu­brögðin séu sum­part ólík því sem hún átti að venj­ast. „Þau nota aðrar aðferðir en maður er vanur, sem ég hef lært mjög mikið af. Þau eru praktísk í hugsun og vinna á mjög skil­virkan hátt. Þetta er afskap­lega agað umhverfi og það eru engar afsak­anir ef þú skilar ekki af þér verk­efnum á réttum tíma,” segir hún. „En stundum vantar líka að hugsa aðeins út fyrir kass­ann. Þess vegna held ég að það sé mjög gott að her­menn og óbreyttir borg­arar vinni saman til að við­halda jafn­vægi.”

Vinnu­dag­ur­inn er oft­ast nær frá 8:30 til 17:30 og skrif­stofan er í höf­uð­stöðvum NATO í Brussel. Guðrúnu finnst gaman í vinn­unni og seg­ist læra eitt­hvað nýtt á hverjum degi.

„Þetta er mjög krefj­andi vinna og það eru ótrú­leg for­rétt­indi að fá að vinna að ein­hverju sem ég trúi á og hef brenn­andi áhuga fyrir,” segir hún. „Svo lengi sem ég fæ að gera það er ég ánægð.”

Guðrún er eini Íslend­ing­ur­inn innan her­mála­deildar NATO, þar sem starfa rúm­lega 400 manns. Svo er hún kona, en mik­ill meiri­hluti starfs­manna eru karl­menn.

Vantar kraft í innleiðingu jafnréttismála

Fólk rekur upp svo­lítið stór augu þegar það heyrir hvaðan ég er,” segir hún. „Og svo er ég oft eina konan á fundum, sem var svo­lítið skrýtið fyrst. En hlut­fall kvenna í her­liðum aðild­ar­ríkj­anna er 10,3 pró­sent og það end­ur­spegl­ast að ein­hverju leyti hér. Þetta er mjög karllægt umhverfi.”

Hún segir áherslur NATO í jafn­rétt­is­málum hafa auk­ist á und­an­förnum árum og finnur mik­inn stuðn­ing við mála­flokk­inn innan stofn­un­ar­innar. Í raun er meiri áhersla á jafn­rétti kynj­anna heldur en hana grun­aði í fyrstu.

„En það er enn langt í land þó að áherslur hafi verið auknar. Helsta áskor­unin í mál­flokknum er að þrátt fyrir margar mjög fínar stefnur og álykt­anir, þá hefur inn­leið­ing verið rosa­lega hæg og oft vantað mik­inn kraft í fram­kvæmd­irnar,” segir hún. „Í grunn­inn er þetta spurn­ing um for­gangs­röðun og það á við um allar alþjóða­stofn­anir sem vinna að þessum málum. Fólk þarf að átta sig á að þetta skipti máli og þá fyrst kemur vilji og fjár­magn til að hrinda hlutum í fram­kvæmd.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár