Af hverju er konan nakin?

Við erum enn jafn furðu­lostin yfir þessu mál­verki eins og þegar fólk sá það fyrst í París 1863. Hvað er eig­in­lega að ger­ast á þess­ari mynd? Af hverju er konan nakin? Ef þú átt leið um París skaltu gera þér ferð á Orsay-safnið og upp­lifa und­rið, eitt­hvert áhrifa­mesta og umdeildasta lista­verk sög­unnar: Le Déjeuner sur l´herbe eftir Manet. Málverk sem markar upp­haf nútíma­list­ar­innar.

Édouard Manet

Édourad Manet (1832-1883) vildi róta upp og ögra sam­tíma sínum með þessu verki og tókst það. For­svars­menn Paris Salon sýn­ing­ar­innar, sem þá réðu öllu lista­lífi borg­ar­innar, höfn­uðu mynd­inni. Gagn­rýnendum fannst hún rudda­leg, skrítin, óskilj­an­leg, jafn­vel klunna­leg, illa máluð og ókláruð. Fjar­vídd­inn gengur alls ekki upp, konan í bak­grunni er of stór og virð­ist svífa um í lausu lofti, skóg­ur­inn og skuggar er óraun­veru­legir og pens­il­strok­urnar grófar. En hún er heill­andi og hún fékk fólk til að hugsa, sem var einmitt meg­in­til­gang­ur­inn. Málverk sem veldur heila­brotum og örvar ímynd­un­ar­aflið. Manet vildi fá fólk til að hugsa – ekki bara horfa.

Þrátt fyrir að vera brodd­borg­ari var Manet upp­reisn­ar­seggur sem sagði sig frá hinu prúð­búna yfir­stétt­ar­lífi og gerð­ist leið­togi, lærifaðir og stofn­andi hinnar rót­tæku impressjónista-hreyf­ingar sem skorði sam­tíma sinn á hólm með nýjum og fram­úr­stefnu­legum verkum. Manet fór samt alltaf sínar eigin leiðir og fór því á skjön við sína eigin hreyf­ingu; vildi aldrei til­heyra einum eða neinum.

Heill­andi , fagur, mælskur. Hann átti sviðið þegar hann gekk inn á Café Guerbois við Clichy breið­göt­una í París, þar sem ungt og rót­tækt fólk safn­að­ist saman í kringum hann og hlust­aði á hvatn­inga­ræður hans um að koll­varpa þyrfti öllu í lista­líf­inu og fara nýjar leiðir.

Nektin

Tveir full­klæddir og nakin kona sem horfir á okkur dul­ar­fullum augum. Fötin hennar liggja í gras­inu. Var hún synda, baða sig eða er hún nýbúin að njóta ásta? Nest­i­skarfan er dottin um koll, ávextir og brauð hafa dreifst um jörð­ina. Og þessi dul­ar­fulla kona í bak­grunn­inum – er hún raun­veru­leg? Engill? Hlut­föllin og lit­irnir stang­ast á við heilda­mynd­ina. Það er eins og þetta sé alls engin skógur, miklu frekar leik­mynd eða þá ein­hvers konar draumur. Annar mað­ur­inn er með vefja­hött sem fólk gekk með inn­an­dyra á þessum árum, en aldrei úti.

Þetta er stór mynd – 208 x 264 sm – og hún er til­komu­mikil, með miklar sögu­legar, goð­sögu­legar og trú­ar­legar til­vís­anir.

Og af hverju er konan nakin?

Margir voru hneyksl­aðir en rit­höf­und­ur­inn Émile Zola kom vini sínum til bjargar og benti á að Louvre safnið væri upp­fullt af slíkum myndum, þar sem fólk væri ýmist klætt eða nakið. Nekt væri ekki eitt­hvað nýtt í lista­sög­unni. En hér var samt eitt­hvað nýtt á ferð – sam­hengið var ann­ars­konar. Eitthvað dásam­legt blygð­un­ar­leysi í gangi; myndin fyndin og ögrandi, upp­full af frelsi og fjöri.

Impressjónist­arnir vildi mála og lof­sama lífið. Í stað þessa að mála guði og kónga mál­uðu þeir venju­legt fólk að skemmta sér, á barnum, að dansa. Verkin áttu að gera eitt­hvað annað og meira en varpa fram mynd – þau áttu að miðla hug­hrifum, stemn­ingu, veðri, lykt, hljóðum, birtu. Listin átti að hrista upp í koll­inum. Og þess vegna er konan nakin. Manet gaf aldrei neitt upp varð­andi þessa mynd. Hún er skilin eftir handa áhof­and­anum.

Goðsögur og raunveruleikinn

Það er ýmis­legt við þessa mynd sem bendir til þess að hún hafi skipt höf­und­inn veru­legu máli. Lands­lagið minni á Ile Saint-Oeuen við Genn­evillier, æsku­stöðvar Manet. Per­són­urnar á mynd­inni eiga sér aug­ljósar fyr­ir­myndir. Manet not­aði gjarnan módel þegar hann gerði myndir sínar og nakta konan er greini­lega Victorine Meurent sem var í sér­legu upp­á­haldi hjá honum og bregður líka fyrir í Olympíu, sem varð ekki síður umdeilt og frægt mál­verk. Maðurinn sem situr hægra meg­inn er Eguéne Manet, bróðir mál­ar­ans og vinstra meg­inn situr síðan mágur hans, Ferdin­and Leenhoff. Þetta er því fjöl­skyldu­mynd.

En hún sýnir ýmis­legt fleira. Konuna gagn­vart mann­inum, nekt og klæðnað, hið ljósa og bjarta gangvart hinu dökka og svarta (svarti lit­ur­inn var eft­ir­lætis litur Manet, þótt hann hefði verið á bann­lista impressjónist­anna), staða konunna er ekki hin sama og mann­anna. Ásjóna hennar og augntillit er óljóst: er hún að horfa á okkur, fram­hjá okkur eða í gegnum okkur?

Hádeg­is­verð­ur­inn í gras­inu ruddi nýjar brautir, spengdi upp gömul við­mið. Myndin er upp­slátt­ur­inn að nútíma­list­inni. Listin var farin að slíta sig frá yfir­vald­inu, kirkj­unni, rík­inu, yfir­stétt­inni og hætt að þjóna neinum, nema þá list­inni sjálfri. Art pour la art. Verkið er samt með miklar rætur í for­tíð­inni. Manet sótti mikið í gömlu meist­ar­ana og var heill­að­iur af ítölsku end­ur­reisn­inni. Á þeim tíma öðl­uð­ust mál­arar frelsi til þess að mála eitt­hvað annað og meira en bara ein­tómar bibl­íu­myndir og sóttu mikið í gríska goð­sagna­heim­inn. Þeir fóru að mála nátt­úr­una, nekt­ina, gróf­leik­ann og feg­urð­ina, dauð­ann og lífið, fylltu mál­verkin sín af dul­ar­fullum til­vís­unum.

Manet til­eink­aði sér tækni og hug­myndir gömlu, ítölsku meist­ar­ana, sér í lagi Raphael og Titian. Sem nem­andi í École des Beaux-Arts var hann vanur að teikna og mála verk þess­ara mál­ara og kunni því verk og þeirra hand­bragð utan­bókar.

Skóg­ur­inn, nektin, hádeg­is­verð­ur­inn – aug­ljósar til­vís­anir í þessa meist­ara: Dóm Parísar eftir Raphael, Sveita­konsert­inn eftir Titian og Freist­ing­una eftir Giorgione. Verk sem öll voru til sýnis í Louvre-safn­inu.

Áhrif og viðtökur

Það er enn verið að þrasa og fjasa um Hádeg­is­verð­inn. Sumum finnst það nið­ur­lægj­andi fyrir konur. Finnst nakta konan vera vænd­is­kona, leik­fang þess­ara drukknu sprelli­gosa sem sitja hjá henni og gefa sig ekk­ert að henni. Hádeg­is­verð­ur­inn gæti vel verið sóða­legur fundur í Bois de Boulogne skóg­inum sem liggur vestan megin við París og hefur alla tíð verið þekktur fyrir vænd­is­starf­semi.

Aðrir tala hins vegar um að mál­verkið upp­hefji kon­una, feg­urð­ina og frelsið. Það sé ein­hver gegnum gang­andi gleði í þessu mál­verki. Gagn­rýnendur voru furðu lostnir og klór­uðu sér í koll­inum, ýmist yfir sig hrifnir eða hneyksl­aðir. Allir glímdu við gát­una miklu í verk­inu: Af hverju eru konan nakin?

Það er hver í sínum heimi á þess­ari mynd. Mönnunum virð­ist standa á sama um nekt kon­unnar. Hvert og eitt þeirra horfir í sína átt, engin tengsl eða sam­skipti. Engin ástæða, bara eitt­hvert kæru­leys­is­legt flipp eins og málar­inn vilji koma þessum einu, ein­földu skila­boðum áleiðis: Það er gaman að vera til! Maðurinn að leika sér í nátt­úr­unni. Að borða, baða sig, elskast, leika sér. Myndin á samt ekki að boða eða vísa í neitt – hún er bara það sem hún er. Og ekk­ert annað. Það voru boð­orð Manet sem smit­uðu síðan næstu kyn­slóðir sem eftir komu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár