Er þjóðaröryggi Íslendinga einskis virði?

Und­an­farið hefur verið tek­ist á um stuðn­ing Íslands við við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum. Mál­flutn­ingur hags­muna­að­ila hefur verið hávær og mikið gert úr fjár­hags­legu tjóni þeirra. En er þjóðar­ör­yggi Íslands einskis virði?

Und­an­farnar vikur hefur verið tek­ist á um þátt­töku Íslands í við­skipta­þving­unum vest­ur­veld­anna gagn­vart Rússum í kjöl­far fram­ferðis þeirra í Úkraínu. Mikið hefur borið á mót­mælum útvegs­manna vegna afleið­inga þess­ara aðgerða, við­skipta­banns sem Rússar settu á Íslenskar vörur rúmu ári eftir að við­skipta­bannið hófst og meints tjóns af völdum þess.

Hags­muna­sam­tök sjáv­ar­út­vegs­ins hafa staðið sig vel og reynt að gera sem mest úr tjón­inu til að knýja á um ein­hverjar bætur frá rík­inu. Þar er rétt að skoða hvort ekki þurfi að koma til ein­hverjar aðgerðir til að bæta ein­stökum byggðum það tjón sem þær kunna að verða fyrir, eins og stjórn­völd hafa þegar ljáð máls á. Það er hins vegar áhyggju­efni hvernig mál­flutn­ingur sem bygg­ist á miklum rang­færslum hefur náð eyrum stjórn­mála­manna, jafn­vel þeirra sem ættu að sjá hlut­ina í stærra sam­hengi en for­ystu­menn til­tek­inna fyr­ir­tækja eða atvinnu­greina gera.

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur gert vel í að svara þessum rang­færslum lið fyrir lið og hefur jafn­framt gefið út mats­skýrslu þar sem farið er heild­rænt yfir hags­muni Íslands í mál­inu. Þar eru metnir þeir efna­hags­legu þættir sem máli skipta, en einnig þeir utan­rík­is­póli­tísku þættir sem m.a. varða full­veldi Íslands og utan­rík­is­ráð­herra hefur rétti­lega bent á að erfitt sé að meta til fjár – en verða að vera með í dæm­inu eigi að fást skyn­sam­leg nið­ur­staða. Þessir þættir varða t.a.m. nauð­syn­legar varnir Íslands sem nágranna- og sam­starfs­ríki tryggja. Hið full­valda ríki Ísland getur ekki verið hlut­laus þiggj­andi í þeim efnum, slíkar varnir eru dýrar og munu því ávallt kosta ein­hverjar efna­hags­legar fórnir.

Takmarkaðir viðskiptahagsmunir orðnir að þjóðarhagsmunum

Vara­for­maður utan­rík­is­mála­nefndar alþingis sagði í útvarps­fréttum nýlega að hún teldi rétt að end­ur­skoða stuðn­ing Íslands við við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum. Af máli hennar mátti skilja að ekki hefði gætt nægi­legrar for­sjálni þegar lagt var að stað og að nú væri staðan sú að þjóð­ar­búið væri að tapa stórum upp­hæðum vegna glat­aðra við­skipta­tæki­færa. Jafn­framt sagði hún nauð­syn­legt fyrir „okkur“ að opna hug­ann og mik­il­vægt væri að skoða málið í stærra sam­hengi, þ,á.m. að ekki væri nauð­syn­legt fyrir Íslend­inga að fylgja eftir aðgerðum á vegum ESB sem við hefðum engum skyldum við að gegna.

Þessi ummæli eru í sam­ræmi við mál­flutn­ing for­svars­manna sjáv­ar­út­vegs­ins und­an­farnar vikur og við þau er margt að athuga. Fyrir utan að end­ur­óma beinar rang­færslur úr umræð­unni, sem m.a. sendi­herra Banda­ríkj­anna hafði séð sig knú­inn til að leið­rétta, er þing­mað­ur­inn og þeir sem hún virð­ist ganga erinda fyrir að snúa hlut­unum á hvolf. Hvernig getur það verið stórt sam­hengi að skoða málin út frá efna­hags­legum for­sendum ákveð­inna fyr­ir­tækja, en ekki hags­munum íslensku þjóð­ar­innar og rík­is­ins í heild? Það gengur ekki upp nema að látið sé sem utan­rík­is­póli­tískir hags­munir séu ekki til, öryggi, full­veldi, virð­ing fyrir alþjóða­lögum og sam­staða með banda­lags­ríkjum séu bara eitt­hvað tákn­rænt fyr­ir­bæri eða skrúð­mælgi á hátíða­stundum.

Gamalgróinn hugsunarháttur

Það er að vissu leyti rétt að ekki hafi verið skoðað nægi­lega vel hverjar afleið­ingar þátt­töku Íslands yrðu. En jafn­framt má segja að það sjón­ar­mið mót­ist af því að þar skipti aðeins máli þau verð­mæti sem telja megi í seldum tonnum af fiski og engu skipti ann­ars konar verð­mæti.

Ástæða þess­ara við­horfa gæti verið sú að það eimi enn eftir af þeim aðstæðum sem hér ríktu lengi vel, þegar sama­sem­merki var milli íslensks sjáv­ar­út­vegs og efna­hags­á­stands­ins á Íslandi. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn var upp­haf og endir alls, sann­kallað fjöregg þjóð­ar­innar. Vissu­lega er sjáv­ar­út­vegur mik­il­væg atvinnu­grein og getur verið um tals­verð verð­mæti að ræða vegna tap­aðra mark­aða á fiskaf­urðum. Jafn­framt getur það raskað atvinnu­mögu­leikum í ein­stökum greinum eða byggð­ar­lögum.

Utan­rík­is­stefna Íslands getur þó ekki staðið og fallið með því hvernig vinnslu og sölu á til­teknum sjáv­ar­af­urðum er háttað og þaðan af síður hvort afkoma ein­stakra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja fer úr stór­gróða í gróða. Séu hlut­irnir settir í stærra sam­hengi er langur vegur frá því að efna­hags­málin standi og falli með sölu á fiski til Rúss­lands. Staða Íslands, öryggi og full­veldi, getur hins vegar staðið og fallið með mark­vissri utan­rík­is­stefnu.

Það er skilj­an­legt að hags­muna­gæslu­menn fyr­ir­tækj­anna tali með þeim hætti að afleið­ingar af tap­aðri fisk­sölu einka­fyr­ir­tækja séu þjóð­ar­hag­munir en þegar máls­met­andi fólk á borð við vara­for­mann utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis Íslend­inga gerir slíkt ­– gengur í raun erinda þess­ara þröngu sjón­ar­miða – steðjar raun­veru­leg hætta að þjóð­ar­hag.

Það er jafn­framt umhugs­un­ar­efni að kjör­inn full­trúi í slíkri nefnd, sem ætti að vera öllum hnútum kunn­ugur í utan­rík­is­málum, fari með jafn mikið fleipur um blint fylgilag við ESB þegar ljóst er frá byrjun að við­skipta­þving­an­irnar eru að und­ir­lagi Banda­ríkja­manna með full­tingi NATO ríkja, þótt ESB sé þarna auð­vitað virkur ger­andi.

Þau rök sem tals­maður útgerð­ar­innar til­tekur um að Ísland hafi ávallt staðið í við­skiptum við Rússa (Sov­ét­ríkin) án þess það hafi haft áhrif á veru okkar í NATO, eru einnig úr lausu lofti gripin. Banda­ríkin, NATO ríki og Sov­ét­menn hafa alla tíð átt í margs­konar við­skiptum hvað sem kalda stríð­inu leið og Íslend­ingar þar með líka. Þá var ein­fald­lega ekki um neinar við­skipta­þving­anir að ræða og því ekki hægt að bera stöð­una saman á þennan hátt.

Þá var Ísland ómissandi hlekkur í varn­ar­keðju Banda­ríkj­anna á Norður-Atl­ants­hafi. Þegar Íslend­ingum þótti nóg komið af yfir­gangi Breta í land­helg­is­deil­unum á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar nægði að stappa niður fæt­inum til að Banda­ríkja­menn sussuðu á Breska heims­veldið. Raun­veru­leik­inn er nú annar og Ísland hefur ekki lengur þann frí­miða í hönd­unum sem tryggði aðgang að ókeypis varn­ar­sam­starfi.

Það er jafn­framt dálítið ein­kenni­legt hvernig andúð á ESB verður til þess að fólk er til­búið að líta svo á að óvinir ESB séu þar með orðnir vinir þeirra. Einnig eru þeir til sem segja Rússa vera í fullum rétti í Úkraínu og ekk­ert sem rétt­læti afskipti Vest­ur­landa þar. Því er til að svara að hvaða skoðun sem við höfum á fram­ferði Rússa og Banda­ríkja­manna verður að móta afstöðu Íslands í mál­inu út frá heild­rænu hags­muna­mati, en ekki per­sónu­legum skoð­unum á Pútín, ESB eða Banda­ríkj­unum.

Rök útgerð­ar­manna og einnig land­bún­að­ar­ráð­herra um gagns­leysi við­skipta­þving­ana eru einnig van­hugsuð. Þau taka ekki mið af þeirri þróun sem orðið hefur í beit­ingu slíkra aðgerða. Áður fyrr tíðk­að­ist að beita við­skipta­banni heilt yfir og skoða lítið ein­stök áhrif gagn­vart til­teknum hópum eins og almennum borg­urum. Við­skipta­þving­anir eru aldrei galla­lausar en þeim er nú beitt gagn­vart Rússum á mark­vissan hátt, gegn til­teknum aðilum sem til­heyra valda­stétt­inni í kringum Pútín og reynt er að gæta þess að áhrif verði sem minnst á rúss­neskan almenn­ing.

Krefjandi verkefni framundan í öryggismálum Íslands

Íslend­ingar standa frammi fyrir mjög krefj­andi aðstæðum í örygg­is­málum. Grund­vall­ar­at­riði þar er þátt­taka í NATO þar sem frí­mið­inn er ekki lengur í gildi og hefur á und­an­förnum árum bein­línis verið lagt að Íslend­ingum að auka fram­lagið. Því er ljóst að auka þarf fram­lag til alþjóð­legs öryggis- og varn­ar­mála­sam­starfs, bæði á vett­vangi NATO og á grund­velli sam­starfs Norð­ur­landa.

Íslend­ingar eru almennt mjög upp á önnur ríki komnir hvað varðar að tryggja öryggi sitt og verður það best gert með sam­starfi við vest­ræn ríki. Það breytir hins vegar ekki þeirri stað­reynd að Ísland getur gert mun betur. Framlög til öryggis- og varn­ar­mála eru væg­ast sagt skorin við nögl og langt frá því sem landið getur borið – og langt frá því sem lýst hefur verið yfir á alþjóða­vett­vangi að stefnt sé að. En það er þó ekk­ert nýtt að ekki fari saman orð og efndir í þeim efnum, sbr. við­var­andi lág fram­lög Íslands til þró­un­ar­mála.

Hvaða skoðun sem fólk hefur á NATO og Banda­ríkj­unum er því mik­il­vægt að líta raun­sætt á aðstæður. Hver sem þró­unin verður, t.d. að örygg­is­mála­sam­starf við Norð­ur­landa­þjóðir verði aukið á kostnað NATO sam­starfs­ins, ríður enn meira á að koma þar fram sem ábyrgur og áreið­an­legur banda­maður. Vel stað­sett land­svæði, þekk­ing og trú­verðug stefna í anda vest­rænna lýð­ræð­is­sam­fé­laga er í raun það eina sem Ísland hefur mark­vert fram að færa í slíku sam­starfi. Tæki­fær­is­mennska í alþjóða­sam­skiptum gerir slíkt fram­lag auð­veld­lega verð­lítið.

Ísland sem smá­ríki þarf skjól banda­manna en það er ekki sama á hvaða for­sendum það er og vara­samt að reyna að byggja slíkt sam­band á hags­mun­unum einum saman, eins og reynslan hefur kennt Íslend­ingum. Virk aðild að alþjóða­sátt­málum og virð­ing fyrir alþjóða­lögum, full­veldi og landa­mærum er grund­vall­ar­at­riði fyrir smá­ríki. Ef Íslend­ingar vilja geta treyst á þessar stoðir verða þeir að fylkja sér með þeim ríkjum sem vilja standa vörð um þær. Þá dugar ekki henti­stefna sem byggir á þröngum stund­ar­hags­munum ein­stakra hópa heldur þarf að horfa til langs tíma með hag íslensku þjóð­ar­innar að leið­ar­ljósi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár