Hvers vegna styðja Íslendingar viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum?

Í tæp­lega eitt og hálft ár hefur Ísland ásamt vest­rænum banda­mönnum innan NATO tekið þátt í tak­mörk­uðum við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi. Þær þving­anir voru sam­eig­in­leg við­brögð við inn­rás Rússa í Úkraínu, her­töku Krím­skaga og stuðn­ingi þeirra við aðskiln­að­ar­sinna í aust­ur­hluta Úkraínu. Þar hafa nú á annað ár geysað blóð­ugir bar­dagar sem lítt sér fyrir end­ann á, þrátt fyrir að tvisvar hafi verið samið um vopna­hlé sem eru kennd við Minsk.

Und­an­farið hefur hins vegar reynt á sam­stöðu Íslend­inga með vest­rænum banda­mönnum sínum vegna þess­ara við­skipta­þving­ana. Fyrst um sinn virt­ist ríkja breið póli­tísk sam­staða allra flokka um málið, en þegar Rússar létu nýlega loks sverfa til stáls og settu við­skipta­bann á íslenskar vörur runnu tvær grímur á ein­hverja—og svo virð­ist sem hin póli­tíska sam­staða sé að riðl­ast.


Ástæðan er töpuð við­skipti með mak­ríl við Rússa sem þeir svart­sýn­ustu telja geta numið tugum millj­arða. Á móti hefur verið bent á mik­il­vægi þess að Ísland rjúfi ekki sam­stöðu um þær aðgerðir sem m.a. Banda­ríkja­stjórn kall­aði eftir frá NATO-ríkjum. Þær snú­ist um grund­vall­ar­at­riði – varð­andi full­veldi, sjálf­stæði og að landa­mæri séu virt – sem eru smá­ríkjum eins og Íslandi hvað mik­il­væg­ust.

[caption id="attachment_37243" align="alignnone" width="1024"] Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra um borð í banda­rískri her­flug­vél við loft­rým­is­gæslu við Ísland.
Mynd: USAFE AFAFRICA[/caption]

Forsaga málsins – hvernig kom það til?


Hér má spyrja nokk­urra spurn­inga: Hvers vegna tóku Íslend­ingar jafn afdrátt­ar­lausa afstöðu og raun ber vitni og fór fram eitt­hvað mat á afleið­ingum þess­arar þátt­töku? Voru íslensk stjórn­völd mögu­lega of upp­tekin við að leita nýrra banda­manna og van­ræktu um leið að marka skýr­ari stefnu gagn­vart þeim sem fyrir voru?


Hafa ber í huga að rík­is­stjórn­inni var mikið í mun að sverja af sér öll tengsl við ESB á þeim tíma sem Úkra­ínu­málið kom upp. Hafði Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra skapað sér erf­iða stöðu með því að vísa til ábyrgðar ESB á því hvernig komið væri fyrir Úkraínu. Sagði hann m.a. í ræðu­stól á Alþingi að þeir sem stjórn­uðu þar í landi þyftu að „svara til saka“ fyrir það sem þeir hefðu gert þjóð sinni.


En skömmu síðar varð tals­verður við­snún­ingur og fór Gunnar Bragi í opin­bera heim­sókn til Úkraínu og lýsti yfir ein­dregnum stuðn­ingi við bar­átt­una gegn Rússum. Svo áber­andi var þessi fram­ganga að ýmsum þótti und­ar­legt að Ísland stæði utan við gagn­að­gerðir Rússa, sem hófust þegar á síð­asta ári.


NATO hefur fylgt Úkra­ínu­mál­inu fast eftir frá byrjun. Á ráð­herra­fundi NATO-ríkj­anna vorið 2014 var gefin út afger­andi yfir­lýs­ing um and­stöðu við aðgerðir Rússa og stuðn­ing við Úkra­ínu­stjórn. Lögð var fram áætlun á vett­vangi NATO-Úkraínu nefnd­ar­innar (sem starfað hefur frá 1997) hvernig staðið skyldi að aðgerðum.


Í yfir­lýs­ingu leið­toga­fundar Norður-Atl­ants­hafs­ráðs­ins í Wales í sept­em­ber 2014 var lögð áhersla á sam­stöðu banda­lags­ríkj­anna á ögur­stundu, með vísan m.a. í stofnsátt­mála banda­lags­ins og stofnsátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Á fund­inum hvatti Barack Obama til sam­stöðu og sagði m.a. að Atl­ants­hafs­banda­lagið væri alger­lega sam­einað í stuðn­ingi við full­veldi Úkraínu, sjálf­stæði, óskert landa­mæri og rétt þeirra til að verj­ast.


Almennt hefur það verið metið svo að Ísland fari ein­fald­lega ekki gegn stefnu Banda­ríkj­anna og NATO sökum sterkra sögu­legra tengsla, hins tví­hliða varn­ar­samn­ings og her­stöðv­ar­innar fyrr­ver­andi—nema eitt­hvað mikið komi til. Þrátt fyrir óljósa stefnu núver­andi rík­is­stjórnar í utan­rík­is­málum mátti greina á þessum tíma áhuga á að efla tengslin við Banda­ríkin, eftir ákveðið tóm­læti í sam­skiptum ríkj­anna og evr­ópu­sækni fyrri rík­is­stjórna.


Að sitja undir slíkri áeggjan for­seta Banda­ríkj­anna um stuðn­ing og sam­stöðu, gagn­vart hinum ógn­andi til­burðum Rússa, hefur verið íslenskum ráða­mönnum sem þar voru við­staddir mikil hvatn­ing. Má ætla að þarna hafi menn einnig séð kær­komið tæki­færi til þess að koma með öfl­ugri hætti inn í NATO-sam­starfið, þar sem Íslend­ingar hafa þótt mega standa sig betur hvað varðar fram­lög, enda var til­kynnt um aukin fram­lög í frétta­til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins af leið­toga­fund­inum.


Var jafn­framt sagt frá því að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra hefði vottað stuðn­ing og sam­stöðu með stjórn­völdum í Úkraínu, for­dæmt fram­ferði Rúss­lands­stjórnar í land­inu og ólög­mæta inn­limun Krím­skaga. Afdrátt­ar­laus­ara verður það varla.


Í kjöl­farið fund­uðu utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­ríkj­anna og lýstu yfir ánægju með nið­ur­stöðu leið­toga­fund­ar­ins þar sem sam­staða banda­lags­ríkja var áréttuð með skýrum hætti. Við­bragðs­á­ætl­anir banda­lags­ins voru efldar og ákvarð­anir teknar um aukna við­veru í aust­an­verðri Evrópu.


Eftir fund­inn lýsti Gunnar Bragi áhyggjum sínum og sagði rúss­nesk stjórn­völd hafa þver­brotið alþjóða­lög með inn­limun Krím­skaga í Rússland og stefna Rúss­lands hafi grafið undan stöð­ug­leika í allri álf­unni. Hann vís­aði í því sam­hengi til Eystra­salts­ríkj­anna, sem öll eiga landa­mæri að Rúss­landi. Að þar væri fólki veru­lega órótt og Íslend­ingar stæðu þétt að baki grönnum sínum og kröfum um að full­veldi þeirra væri ávallt að fullu virt.

[caption id="attachment_37244" align="alignnone" width="1024"] Barack Obama í Eist­landi nokkrum dögum fyrir leið­toga­fund NATO í Wales haustið 2014. MYND: Johan Viirok[/caption]

Stjórn­völd hafa hingað til metið það svo, m.a vegna stöðu okkar í NATO, að þar væru meiri hags­munir í húfi en svo þeim væri fórnað vegna glat­aðra útflutn­ings­við­skipta, jafn­vel þar sem millj­arða útflutn­ingur er í spil­inu. Hin póli­tíska ákvörðun og ábyrgð má segja að byggi á grunni sam­starfs ríkj­anna innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, en ESB sé fram­kvæmd­ar­að­ili efna­hags­hluta aðgerð­anna. Ísland ásamt öðrum samt­arfs­ríkjum ESB, tengj­ast þeim síðan í ljósi víð­tæks sam­starfs á sviði efna­hags- og utan­rík­is­mála.


Það er því mjög vill­andi nálgun að Ísland fylgi ein­hverjum ESB aðgerðum í blindni. Ísland tók sér stöðu strax í upp­hafi með vest­rænum ríkjum í aðgerðum sem Banda­ríkin með full­tingi NATO-ríkja voru for­víg­is­menn að. Það var rök­rétt ákvörðun hvað sem segja má um almenn lausa­tök á utan­rík­is­stefn­unni.

NATO – ríkir samstaða um aðgerðir?

Það er þó svo að NATO er langt í frá að vera hafið yfir gagn­rýni. Í augum margra nota Banda­ríkja­menn NATO sem tæki til að ná saman evr­ópskum banda­mönnum, sem gætu lagt til aðstoð við hern­að­ar­að­gerðir jafn­vel langt utan Evrópu. Um leið og hinar beinu efna­hags­legu refsi­að­gerðir Vest­ur­landa gegn Rússum eru með stuðn­ingi NATO-ríkja þá eru það hern­að­ar­legar aðgerðir sem snúa mest að banda­lag­inu sjálfu.


Tekið er fram í áætl­unum NATO að reynt verði eftir fremsta megni að beita frið­sam­legum lausnum. Þó hefur ýmsum þótt yfir­menn banda­lags­ins ganga hart fram í að gera sem mest úr þeirri ógn sem stafar af Rússum í Úkraínu. Má hugs­an­lega túlka hina hörðu afstöðu sem til­raun til að sanna að banda­lagið sé ekki mátt­laust fyr­ir­bæri þegar kemur að her­vörnum – eins og stundum er haldið fram.


Þó almenn sam­staða ríki meðal banda­lags­þjóða um stuðn­ing við Úkraínu, þá settu t.d. Þjóð­verjar í upp­hafi spurn­inga­merki við þessa hörðu fram­göngu NATO í mál­inu. Hún hefur farið fyrir brjóstið á þýskum stjórn­völdum sem töldu sig hafa upp­lýs­ingar sem stöng­uð­ust á við þá mynd sem NATO mál­aði af ástand­inu. Var­færn­ari afstaða Þýska­lands lit­að­ist hins vegar að sama skapi af bæði sögu­legum þáttum, svo og af miklum við­skipta­hags­munum við Rússland.


Þol­in­mæði Þjóð­verja fór þó mjög þverr­andi þegar leið á síð­asta ár, enda Pútín ítrekað orðið upp­vís að því að bein­línis ljúga blákalt framan í Merkel Þýska­landskansl­ara. Þjóð­verjar leika nú leið­andi hlut­verk í við­bragðs­á­ætlun banda­lags­ins og manna m.a. fyrstu útfærslu hraðlið­sveita NATO við landa­mæri Úkraínu.

Getur Ísland bakkað út?

Á það hefur verið bent að jafn­vel þótt við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum hafi tak­markað vægi þá skipti sam­staða Vest­ur­landa miklu máli. Hún felur í sér þá póli­tísku yfir­lýs­ingu að Evrópa, Norður Ameríka og fleiri vest­ræn ríki ætli að standa saman og blikna ekki gagn­vart auk­inni útþenslu Rússa og ógn­unum þeirra gagn­vart nágrönnum sínum. Það sem vakir fyrir Pútín er vænt­an­lega stinga í auma punkta eins og hið veik­burða Ísland. Með því nær hann að veikja sam­stöð­una og aðgerð­irnar í heild.


Erfitt er að segja nákvæm­lega til um afleið­ingar þess að Íslend­ingar myndu með form­legum hætti segja sig frá aðgerðum gegn Rússum. Búast mætti við miklum úlfa­þyt og þrýst­ingi meðal banda­lags­ríkja ef þeir gerðu sig lík­lega til að rjúfa sam­stöð­una. Og ef Íslend­ingar létu sér ekki segj­ast yrði það þeim dýrt – bæði póli­tískt og efna­hags­lega – hefði mikil og afger­andi áhrif innan NATO og jafn­vel EES. Á það ber einnig að líta að óskýr afstaða kynni að nægja til að skaða orð­sporið á þessum vett­vangi.

[caption id="attachment_37245" align="alignnone" width="1024"] Her­æf­ingar undir merkjum Úkraínu, NATO og Banda­ríkja­manna í tengslum við “Partners­hip for Peace” sam­starfið árið 2011. MYND: DVIDSHUB[/caption]

Vinátta – hagsmunabandalög – traust milli ríkja


Um vin­áttu ríkja er deilt og því má halda fram að ríki eigi sér ekki vini aðeins hags­muni. Það má alveg setja spurn­inga­merki við gagn­rýn­is­laust fylgilag við Banda­ríkja­menn á grund­velli vin­áttu því Íslend­ingar hafa slæma reynslu af því að treysta slíkum sam­skiptum. Í raun byggð­ist sam­band ríkj­anna á gagn­kvæmum hags­munum og Banda­ríkja­menn munu, að hætti stór­velda, ávallt geta látið sína hags­muni ganga fyrir.


Þarna er því mjög mik­il­vægt að gera grein­ar­mun á slíku tví­hliða hags­muna­banda­lagi sem báðir aðilar hagn­ast á – og marg­hliða samn­ings- eða stofn­ana­bundnu sam­komu­lagi. Þetta á við um NATO sam­starfið—sem jafn­vel getur falið í sér skýr­skotun til alþjóða­laga. Í slíku sam­starfi skiptir öllu máli að banda­menn geti treyst á stuðn­ing og sam­stöðu.


Hvað sem fylg­is­spekt við stór­veldi eins og Banda­ríkin eða ESB líður er mjög mik­il­vægt að Íslend­ingar sýni nágrönnum sínum á Norð­ur­löndum stuðn­ing, því þar er þróun mik­il­vægs og víð­tæks örygg­is­mála­sam­starfs í húfi. Það er stað­reynd að Rússar hafa haft uppi ógn­andi til­burði við nágranna sína þar og einnig gagn­vart Eystra­salts­ríkj­unum, sem hafa sterka teng­ingu við Ísland vegna sjálf­stæð­is­bar­áttu þeirra eftir fall Sov­ét­ríkj­anna.


Hér er aðal­at­riðið að Íslend­ingar skorist ekki undan stuðn­ingi og gagn­kvæmum vörnum sem er grund­vall­ar­at­riðið í NATO. Ef ekki er vilji til þátt­töku, annað hvort í til­teknum aðgerðum eða bara hrein­lega með úrsögn, þá ætti það að vera á víð­tækum mál­efna­legum grunni fremur en vegna tíma­bund­inna erf­ið­leika við sölu fiskaf­urða.


Íslend­inga bíða mjög krefj­andi verk­efni við að tryggja betur stöðu sína með til­liti til öryggis- og varn­ar­mála. Ef vikið er frá grund­vall­ar­stefnu í utan­rík­is­málum með skyndi­á­kvörð­unum er voð­inn vís. Orðspor í alþjóða­sam­skiptum tekur ára­tugi að byggja upp og mik­il­vægt er að horfa til heild­stæðra hags­muna, bæði við­skipta­legra og póli­tískra þegar ákvarð­anir eru teknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár