Skipað að telja flaggstangirnar

For­stöðu­menn og for­stjórar danskra rík­is­fyr­ir­tækja og stofn­ana á vegum rík­is­ins (kirkjur þar með­taldar) hafa kannski margir hverjir gjóað augum á alm­an­akið í síð­ustu viku þegar þeir lásu bréf sem borist hafði frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu á Hall­ar­hólm­anum í Kaup­manna­höfn. Send­ingin fannst þeim meira í ætt við 1. apríl gabb en bréfið kom frá ráðu­neyt­inu þegar nokkrir dagar voru liðnir af árinu 2016. 

Fjár­mála­ráðu­neytið er reyndar ekki þekkt að gam­an­semi í bréfa­skriftum, þar er alvaran yfir­leitt ríkj­andi. Ein­hverjir for­stöðu­menn voru hand­vissir um að und­ir­menn þeirra hefðu soðið bréfið saman, þetta væri sak­laus hrekkur svona til að lífga upp á til­ver­una svona þegar hvers­dag­ur­inn væri tek­inn við eftir hátíð­arnar. Eftir sím­töl og tölvu­póst­send­ingar komust þó for­stöðu­menn og for­stjórar að því að starfs­menn þeirra hefðu ekki sent umrætt bréf, það væri komið frá hinu háa fjár­mála­ráðu­neyti. Og væri hreint engin grín­send­ing.

Telja og tilkynna

Bréf ráðu­neyt­is­ins var hvorki langt né flókið. Þar var ein­fald­lega að finna fyr­ir­mæli um að telja þær fánastangir sem til­heyra við­kom­andi stofnun og standa utandyra. Nið­ur­stöður taln­ing­ar­innar skyldu ber­ast ráðu­neyti fjár­mála eigi síðar en 11. jan­úar 2016. Enn­fremur að „verið sé að rann­saka venjur stofn­ana og fyr­ir­tækja ríks­ins varð­andi notkun þjóð­fán­ans.”

Á fánadögum á að flagga

Danski þjóð­fán­inn er tal­inn hinn elsti í heim­inum og Danir ákaf­lega stoltir af honum.

Svo­kall­aðir fána­dagar eru sautján tals­ins í Danmörku. Þá er til þess ætl­ast að danski þjóð­fán­inn blakti við hún á bygg­ingum rík­is­ins og sveit­ar­fé­lögin hafa einnig fylgt þeim sið, að minnsta kosti flest. Annars eru reglur um fán­ann, og notkun hans fáar og ein­faldar. Hann á að vera af til­tek­inni stærð (sem mið­ast við lengd flaggstangar), hlut­föllin í fán­anum ætíð hin sömu (28:37) og rauði lit­ur­inn mið­ast við lita­flokk­inn pant­one 186C. Fáninn á að vera úr polyester efni, og efn­is­magnið 130- 175 grömm á fer­metra. Fáninn á aldrei að snerta jörðu, hann má hanga uppi frá sól­ar­upp­rás til sól­ar­lags en þó lengur ef ljósi er varpað á hann, t.d. frá kast­ara.

Almennir borg­arar, og fyr­ir­tæki, mega flagga þegar þeim sýn­ist, svo fremi að áður­nefnum reglum sé fylgt. Oft er sagt um Dani að þeir séu mikil fána­þjóð og víst er um það að mjög víða má ætíð sjá Dannebrog, eins og hann heitir, blakta við hún. Danskir sum­ar­húsa­eig­endur eru dug­legir að flagga og sömu sögu er að segja af eig­endum smá­hýsa í garð­löndum (kolon­i­haver) þar þykir sjálf­sagt að draga fána að hún um leið og eig­endur koma á stað­inn. Á afmælum þarf skil­yrð­is­laust að flagga og þá ofast líka settir fánar við úti­dyr eða garð­hlið til að vísa gestum veg­inn. Engar reglur gilda um flaggstangir, eitt dönsku blað­anna nefndi þann mögu­leika að danska stjórnin ætl­aði sér að skipta út öllum flagg­stöngum rík­is­ins „á einu bretti ”. Benti jafn­framt á að slíkt væri hæpið því fánastangir í eigu hins opin­bera væru margs­konar og lengd, stað­setn­ing o.fl. helg­að­ist af aðstæðum, sem væru mjög mis­mun­andi. Eins­konar „fánastanga­stað­all” væri úti­lok­aður.

Tilgangur stangatalningar

Eins og áður var getið voru upp­lýs­ingar fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um til­gang flaggstanga­taln­ing­ar­innar mjög tak­mark­aðar. Dönsku fjöl­miðl­arnir hafa, síðan af mál­inu frétt­ist, ítrekað reynt að fá upp­lýst hjá ráðu­neyt­inu hvaða til­gangi taln­ing á þessum til­teknu eigum rík­is­ins þjóni. Engin svör hafa feng­ist umfram það sem í bréf­inu stendur.

Blaða­maður Berl­ingske lét sér detta í hug að kannski vildi fjár­mála­ráðu­neytið vita hvar danska ríkið stæði í sam­an­burði við önnur ríki að þessu leyti. Hann hringdi út og suður til fjöl­margra fjár­mála­ráðu­neyta víða um lönd. Engar upp­lýs­ingar um flaggstanga­eign ein­stakra ríkja gat hann grafið upp, slíkar upp­lýs­ingar væru ein­fald­lega ekki til fékk hann að vita. Sam­an­burður við önnur ríki gat því ekki verið skýr­ingin ályktaði blaða­maður Berl­ingske. Í laug­ar­dags­út­gáfu blaðs­ins (16. jan­úar) birt­ist við­tal við yfir­mann fjöl­miðla­deildar Fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þrátt fyrir margend­ur­teknar spurn­ingar feng­ust þar engin svör önnur en að taln­ing­ar­fyr­ir­skip­unin hefði til­gang og jafn­framt að sér hefði verið harð­bannað að segja meira um þetta mál.

Blaða­mann­inum hjá Berl­ingske datt þá í hug að kannski hefði borist fyr­ir­spurn frá ein­hverjum stjórn­mála­flokk­anna, sem spyrja um allt mögu­legt, og jafn­vel ómögu­legt. Af flokk­unum þótti blaða­mann­inum Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn lík­leg­astur en einn þing­maður hans minnt­ist fyrir skömmu á það í við­tali að engin þjóð í heim­inum væri jafn dug­leg að flagga þjóð­fán­anum og Danir. Blaða­full­trúi flokks­ins svar­aði strax að þetta væri ekki frá þeim komið en „okkur hefði alveg getað dottið þetta í hug”. Full­trúar ann­arra flokka neit­uðu sömu­leiðis allir að tengj­ast flaggstanga­taln­ingu. Ein­hverjir bentu á að ein­kenni­legt væri að skip­unin um taln­ingu kæmi frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, það sem við­kæmi þjóð­fán­anum heyrði undir ráðu­neyti dóms­mála.

Tilgátur um tilgang

Eftir að frétt­irnar um taln­ing­ar­fyr­ir­skip­un­ina birt­ust í fjöl­miðlum óskaði Berl­ingske eftir til­gátum les­enda um til­gang taln­ing­ar­innar. Fjöl­margar til­gátur bár­ust.

Einn les­andi sagði að nú, loks­ins, ætl­aði ríkið að gera gang­skör að því að end­ur­nýja fána­kost rík­is­ins. Enda ekki van­þörf á þar sem víða mætti sjá trosn­aða og jafn­vel upp­lit­aða fána hanga við hún. Ríkið ætl­aði örugg­lega að efna til alls­herjar fána­út­boðs og því nauð­syn­legt að vita hve marga fána þyrfti að kaupa. Þessi les­andi kvaðst jafn­framt hlakka til þess að sjá nýja og skarprauða fána prýða flaggstangir hins opin­bera.

Annar les­andi taldi að ríkið ætl­aði að útvega öllum stofn­unum rík­is­ins fána Evr­ópu­sam­bands­ins til þess að flagga með á sér­stökum ESB dögum.

Einn sem skrif­aði benti á að þarna væri ríkið ein­fald­lega að meta kostnað. Ekkert mál er að draga fán­ann upp að morgni, til dæmis klukkan átta þegar vinnu­dag­ur­inn byrjar, en ef hann á að hanga uppi til sól­ar­lags kostar það auka­vinnu, flestir fara jú heim klukkan fjögur eða fimm. „Það er nauð­syn­legt að vita hvað hlut­irnir kosta” sagði þessi les­andi.

Einn sem sendi Berl­ingske til­gátu sagði að sam­kvæmt fjár­lögum ættu allar stofn­anir að skera niður kostnað. „Kostn­aður er margs­konar” sagði les­and­inn, „það er mjög sýni­leg ákvörðun að fækka flagg­stöngum, og um leið fánum, og er klár­lega sparn­aður” sagði þessi les­andi. Hann benti líka að það yrði mjög tákn­rænt að stytta allar fánastangir rík­is­ins um tvö pró­sent, til sam­ræmis við stefnu stjórn­ar­innar um nið­ur­skurð.

Einn bréf­rit­ari taldi að Fjár­mála­ráðu­neytið hefði gert út mann­skap til að telja fánastangir tuga rík­is­stofn­ana. Sú taln­ing yrði borin saman við þær tölur sem stofn­unin gæfi upp og þannig væri taln­ingin í raun áreið­an­leika­próf. „Hver treystir upp­lýs­ingum frá stofnun sem getur ekki einu sinni talið fánastang­irnar á lóð­inni eða hús­inu?”

Tilgáta eins les­anda var að þeir hjá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu hefðu ákveðið að vera tím­an­lega með 1. apríl gabbið í ár en svo hefði einn starfs­maður óvilj­andi ýtt á „senda” hnapp­inn á lykla­borð­inu og þá varð ekki aftur snúið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár