Þegar ríkt fólk er handvalið til að græða peninga

Þeir við­skipta­vinir einka­banka­þjón­ustu og mark­aðsvið­skipta Arion banka sem fengu að kaupa hlut í Símanum á und­ir­verði geta nú selt bréfin með hund­ruð millj­óna króna hagn­aði. Um er að ræða best stæðu við­skipta­vini bank­ans.

Í gær, 15. jan­úar 2016, mátti hópur vild­ar­við­skipta­vina Arion banka selja fimm pró­sent hlut sinn í Símanum. Hlutinn fékk hóp­ur­inn að kaupa á und­ir­verði nokkrum dögum áður en bank­inn seldi hluti í félag­inu í útboði. Miðað við gengi bréfa í Símanum í byrjun dags í gær nemur hagn­aður þessa hóps 343 millj­ónum króna. Þann hagnað gátu umræddir vild­ar­við­skipta­vinir leyst út ef þeir vildu.

Hópurinn sem fékk að kaupa þennan hlut var hand­val­inn. Um var að ræða þá við­skipta­vini bank­ans sem eru með mesta fjár­magnið í stýr­ingu hjá bank­anum. Ríkustu við­skipta­vin­irnir, sem borga hæstu þókn­ana­tekj­urnar, fengu að kaupa á þessu verði. Aðrir ekki.

Arion banki lánaði til kaupanna að hluta

Hópurinn fékk að kaupa hlut­inn á 2,8 krónur á hlut. Í útboð­inu, sem fór fram nokkrum dögum síðar, var fimm­föld umfram­eft­ir­spurn. Arion banki fjár­magn­aði kaup við­skipta­vin­anna að hluta. Ekki hefur feng­ist upp­gefið hversu stór þessi hópur er né hverjir það eru sem til­heyra honum.

Miðað við upp­hafs­gengi bréf­anna á mark­aði í gær, sem var 3,44 krónur á hlut, hafði virði hlutar hóps­ins hækkað um 343 millj­ónir króna. Á 92 dögum hafði þessi óskil­greindi hópur rík­ustu við­skipta­vina einka­banka­þjón­ustu og mark­aðsvið­skipta Arion banka, sem var val­inn til kaupa á félagi sem bank­inn var sjálfur að selja í útboði sem hann sá sjálfur um, grætt 3,7 millj­ónir króna á dag.

Þessi sala var harð­lega gagn­rýnd í haust, meðal ann­ars á Alþingi. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði söl­una vera klúður sem engin þol­in­mæði væri fyrir í sam­fé­lag­inu. Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýsla rík­is­ins sem fer með 13 pró­sent eign­ar­hlut íslenska rík­is­ins í Arion banka, sagð­ist hafa fullan skilning á þeirri umræðu sem fram færi í sam­fé­lag­inu vegna söl­unnar. Hann vildi þó ekki setj­ast í dóm­ara­sæti í mál­inu. Aðrir við­skipta­vinir í einka­banka­þjón­ustu og mark­aðsvið­skiptum hjá bank­anum, sem fengu ekki að kaupa í Símanum á sér­kjörum, voru ekki síður ósáttir með að hann sé að mis­muna sínum eigin við­skipta­vinum með þessum hætti.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði söl­una vera klúður sem engin þol­in­mæði væri fyrir í sam­fé­lag­inu.

Aðrir leik­endur á fjár­mála­mark­aði, sér í lagi smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki, hafa einnig gagn­rýnt söl­una. Það skekki sam­keppn­is­stöðu ann­arra fyr­ir­tækja sem reki einka­banka­þjón­ustu eða sinni mark­aðsvið­skiptum ef stór banki sé að verð­launa sína við­skipta­vini umfram aðra. Þar sem stóru bönk­unum hafi verið falin end­ur­skipu­lagn­ing flestra þeirra fyr­ir­tækja sem rati á markað, og sjái nán­ast alltaf sjálfir um skrán­ingar á „sínum“ fyr­ir­tækjum, sé alltaf minni og minni hvati til þess að vera í þjón­ustu hjá öðrum aðilum.

Varað við ástandinu í skýrslu 2013

Sá aðstöðu­munur sem er uppi milli stóru bank­anna og ann­arra fyr­ir­tækja á fjár­mála­mark­aði er ekki nýr af nál­inni. Og við honum hefur verið varað mjög harka­lega áður, án þess að það hafi skilað árangri.

Í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, Fjár­mála­mark­aður á kross­götum, frá árinu 2013 var sér­stakur kafli helg­aður áhyggjum af yfir­burða­stöðu við­skipta­banka á mark­aðnum. Þar sagði að minni fjár­mála­fyr­ir­tæki sem stundi verð­bréfa­þjón­ustu hafi bent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu á að almennt gæti að þeirra mati mik­ils afls­munar milli verð­bréfa­fyr­ir­tækja og banka. Sam­keppn­is­staða minni fjár­mála­fyr­ir­tækja væri veik og það væri mikið áhyggju­efni. „Bank­arnir séu í yfir­burða­stöðu þar sem þeir séu í aðstöðu til að bjóða við­skipta­vinum upp á alhliða við­skipti. Þeir gnæfi yfir aðra sam­keppn­is­að­ila sé litið til stærðar efna­hags­reikn­ings og umsvifa. Í krafti stærðar geti þeir boðið þjón­ustu, verð og skil­mála sem minni fyr­ir­tæki eigi erfitt með að keppa við. Heild­ar­þjón­usta bjóði jafn­framt upp á þá hættu að einn þjón­ustu­þáttur sé not­aður til að nið­ur­greiða aðra þjón­ustu­þætti þar sem sam­keppni er meiri. Þá hafa verð­bréfa­fyr­ir­tækin áhyggjur af því hvernig við­skipta­bankar komi fram gagn­vart aðilum sem minni fjár­mála­fyr­ir­tækin eru að leit­ast við að fá til sín í við­skipti. Bank­arnir hafi sterk ítök í mörgum fyr­ir­tækjum, hvort heldur sem er vegna viða­mik­illar skuld­setn­ingar eða í gegnum eign­ar­hald.“

Við­mæl­endur Kjarnans í banka­kerf­inu og við­skipta­líf­inu segja að lítið hafi dregið úr þess­ari yfir­burð­ar­stöðu síðan að skýrslan kom út.

Auk þess kvarta margir yfir því að tæki­færi minni fjár­mála­fyr­ir­tækja, og í raun allra á mark­aði nema stóru bank­anna þriggja, til að ná til sín stórum við­skipta­vinum í einka­banka­þjón­ustu eða mark­aðsvið­skipti séu nán­ast engin. Það sé ekki hægt að keppa við þau fjár­fest­inga­tæki­færi sem sam­legðin hjá stóru bönk­unum býður þeim upp á.

Það dæmi sem flestir við­mæl­endur minn­ast á sem skýrasta dæmið um þetta er ofan­greind sala Arion banka á fimm pró­sent hlut í Símanum til valdra við­skipta­vina sinna nokkrum dögum fyrir almennt útboð á bréfum í félag­inu á nið­ur­settu verði.

Samkeppniseftirlitið segir ástæðu til að hafa áhyggjur

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að það sé klárt að þau áhyggju­efni sem eft­ir­litið dró fram í skýrsl­unni árið 2013 séu að veru­legu leyti enn til staðar. „Það er ástæða til þess að hafa áhyggjur af því hvernig aðstæður minni keppi­nauta eru á mark­aðnum og þar með nýrra aðila til að koma inn á hann. Það er mik­il­vægt að bank­arnir passi upp á að skilja á milli ólíkra hags­muna sinna þegar þeir eru að eiga við­skipti við fyr­ir­tæki. Sú hætta, að þeir beiti afls­munum sínum og skerði með því sam­keppn­is­stöðu minni aðila, er aug­ljós­lega fyrir hendi. Bank­arnir eru í þeirri stöðu að vera að bjóða upp á alhliða fjár­mála­þjón­ustu á meðan að minni fyr­ir­tæki hafa ekki kost á því með sam­bæri­legum hætti. Þeir þurfa að fara mjög var­lega í að blanda mis­mun­andi við­skipta­hags­munum sínum saman og nýta sér við­skipta­tengsl á einu sviði til að afla sér við­skipta á öðrum.“

Ráð­staf­anir Arion banka voru að þessu leyti ekki til þess fallnar að draga úr þeirri tor­tryggni í garð við­skipta­bank­anna þriggja, sem á liðnum árum hafa end­ur­spegl­ast í kvört­unum og ábend­ingum til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Aðspurður hvort Sam­keppn­is­eft­ir­litið sé að rann­saka þessa stöðu segir Páll Gunnar að salan Arion banka á hluta­bréfum í Símanum til val­inna við­skipta­vina sé ekki sér­stak­lega til skoð­unar. Eft­ir­litið eigi þó í reglu­legum sam­ræðum við fjár­mála­mark­að­inn um þetta ástand. „Bank­arnir verða að passa afar vel upp á að hátt­semi þeirra raski ekki sam­keppni og aðferðir að þessu tagi geta vissu­lega gert það vegna þess að þarna er hugs­an­lega verið að afla við­skipta­tengsla með aðferðum sem sett hafa verið spurn­inga­merki við eins og umræðan ber vott um. Ráð­staf­anir Arion banka voru að þessu leyti ekki til þess fallnar að draga úr þeirri tor­tryggni í garð við­skipta­bank­anna þriggja, sem á liðnum árum hafa end­ur­spegl­ast í kvört­unum og ábend­ingum til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.“

Stjórnendur og meðfjárfestar keyptu líka fyrir útboð

Líkt og flestir vita sem fylgst hafa með sölu á hlut Arion banka í Símanum fyrir útboð vita þá voru vild­ar­við­skipta­vinir Arion banka ekki þeir einu sem fengu að kaupa. Hópur stjórn­enda, undir for­ystu for­stjór­ans Orra Hauks­sonar, og nokkrir inn­lendir og erlendir fjár­festar fengu einnig að kaupa fimm pró­sent hlut í félagið áður en almennt útboð fór fram. Þeir fengu að kaupa á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Um þau kaup var til­kynnt í ágúst. Á meðal þeirra sem voru í hópnum voru íslenskir fjár­festar með litla sér­þekk­ingu á fjar­skiptum. Sá hópur, sem sam­anstendur Sig­ur­birni Þor­kels­syni, Árna Hauks­syni og Hall­birni Karls­syni, keypti raunar stærstan hluta þess sem Arion banki ákvað að selja á þeim tíma.

Arion banki hefur greint frá því að sam­komu­lagið við fjár­festa­hóp­inn sem keypti fyrst hafi verið gert í maí. Bankinn segir að sú töf sem orðið hafi á að upp­lýsa um kaupin hafi verið „óheppi­leg“. Verð­matið hafi á þeim tíma, í maí, verið svipað og á Vodafone, hinu skráðu fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu.

Stjórn­endur Símans keyptu einnig 0,5 pró­sent hlut til við­bótar við þau fimm pró­sent sem áður hafði verið greint frá, á sama verði. Samtals keypti hóp­ur­inn því 5,5 pró­sent hlut. Miðað við gengi Símans í dag hefur virði hlutar þeirra hækkað um 38 pró­sent. Sölu­hömlur eru á fyrstu fimm pró­sent­unum til 1. jan­úar 2017. Stjórn­endur Símans mega hins vegar selja 0,5 pró­sent hlut sinn strax í mars á þessu ári, eftir rúma fjóra mán­uði.

Arion varði ákvörðunina

Arion banki varði framan af ákvörðun sína um að selja báðum þessum hópum hluti í Símanum áður en útboð fór fram. Halldór Bjarkar Lúð­vígs­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­banka­sviðs bank­ans, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið 13. októ­ber þar sem kall­aði gagn­rýni á hana „eft­irá­speki“. Í grein­inni sagði m.a. „Þeir sem gagn­rýna mik­inn hagnað af þess­ari fjár­fest­ingu horfa fram hjá því að ekki er um inn­leystan hagnað að ræða og ómögu­legt að sjá fyrir hvert hluta­bréfa­verðið verður.“

Tíu dögum síðar sendi Arion banki frá sér til­kynn­ingu þar sem bank­inn við­ur­kenndi að gagn­rýni á söl­una til vild­ar­við­skipta­vina hefði verið rétt­mæt. Bankinn sagði að ekki hafi verið að „veita við­skipta­vinum afslátt frá verð­inu heldur[...]að gefa þeim kost á að kaupa nokkru stærri hlut en ella[...]Sú gagn­rýni að ekki hafi allir setið við sama borð hefur ekki farið fram­hjá stjórn­endum bank­ans. Ekki var heppi­legt að selja til við­skipta­vina bank­ans svo skömmu fyrir útboðið á gengi sem svo reynd­ist nokkuð lægra en nið­ur­staða útboðs­ins. Bankinn van­mat hina miklu eft­ir­spurn sem raun varð á. Þessi til­högun er til skoð­unar í bank­anum og verður tekið mark á gagn­rýn­inni“.

Arion banki taldi hins vegar, og telur enn, að salan á fimm pró­sent hlut til stjórn­enda Símans og með­fjár­festa þeirra hafi verið rétt­mæt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár