Viðskiptavinir með mestu umsvifin hjá Arion banka fengu afslátt á hlutum í Simanum

Þegar bank­inn valdi þann hóp sem fékk að kaupa á lægra verði í aðdrag­anda útboðs var horft á umsvif og vilja til að kaupa óskráð bréf.

Þegar Arion banki valdi þann hóp sem fékk að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum í lok sept­em­ber á 2,8 krónur á hlut var horft til umsvifa við­skipta þeirra. Allir kaup­end­urnir eru við­skipta­vinir í einka­banka­þjón­ustu og mark­aðsvið­skiptum bank­ans. Auk þess var horft til þeirra sem höfðu lýst yfir áhuga á að kaupa í óskráðum félögum. Því fengu þeir við­skipta­vinir sem voru með mesta fjár­magnið í stýr­ingu for­gang á að kaupa hlut­inn. Þetta kemur fram í svari Arion banka við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Sala Arion banka á hlutum í Símanum í aðdrag­anda útboðs félags­ins, sem fram fór fyrr í októ­ber­mán­uði, hefur verið harð­lega gagn­rýnd að und­an­förnu. Ofan­greindir vild­ar­við­skipta­vinir bank­ans fengu að kaupa fimm pró­sent hlut á geng­inu 2,8 krónur nokkrum dögum áður en almennt útboð á hlutum í Símanum hófst. Fimmföld umfram­eft­ir­spurn var í útboð­inu og þeir sem fengu að kaupa í til­boðs­bók B þurftu að greiða 3,4 krónur á hlut fyrir bréf sín. Gengi Símans í dag, rúmri viku eftir að við­skipti með bréf í Símanum hófust, er 3,64 krónur á hlut. Hlutir vild­ar­við­skipta­vin­anna, þeirra sem eru með mest umsvif í einka­banka­þjón­ustu og mark­aðsvið­skiptum hjá Arion banka, hefur því hækkað um 30 pró­sent. Virði hlutar þeirra hefur auk­ist um 447 millj­ónir króna á einum mán­uði. Þessi hópur má selja bréf sín í jan­úar næst­kom­andi, eftir rúma tvo mán­uði.

Aðrir viðskiptavinir gagnrýna bankann

Gagn­rýnin hefur komið úr mörgum áttum. Þannig hafa aðrir við­skipta­vinir í einka­banka­þjón­ustu og mark­aðsvið­skiptum Arion banka, sem var ekki boðið að kaupa hluti í Símanum á þessu verði, haft sam­band við Kjarnann og lýst yfir megnri óánægju með verk­lag bank­ans. Þeir telja að bank­inn sé að mis­muna sínum eigin við­skipta­vinum með því að hand­velja hóp sem fái að kaupa bréf á afslátt­ar­verði. Aðrir leik­endur á fjár­mála­mark­aði, sér í lagi smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki, hafa einnig gagn­rýnt söl­una. Það skekki sam­keppn­is­stöðu ann­arra fyr­ir­tækja sem reki einka­banka­þjón­ustu eða sinni mark­aðsvið­skiptum ef stór banki sé að verð­launa sína við­skipta­vini umfram aðra. Þar sem stóru bönk­unum hafi verið falin end­ur­skipu­lagn­ing flestra þeirra fyr­ir­tækja sem rati á markað, og sjái nán­ast alltaf sjálfir um skrán­ingar á „sínum“ fyr­ir­tækjum, sé alltaf minni og minni hvati til þess að vera í þjón­ustu hjá öðrum aðilum.

Í grunn­inn snýr gagn­rýnin að því sem kalla má aðstöðumun. Valdir hópar sitja að betri tæki­færum til að hagn­ast en allir aðrir. Þessi gagn­rýni hefur ratað út í þjóð­fé­lagið þar sem mikil reiði er á meðal almenn­ings með hátt­ar­lag Arion banka í mál­inu. Sú reiði hefur skilað sér inn á stjórn­mála­sviðið þar sem hún náði fullum skrið­þunga þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði söl­una klúður, aðferð­ar­fræðin væri ólíð­andi og að engin þol­in­mæði væri fyrir slíku í sam­fé­lag­inu.

Lánaði fyrir hluta af kaupunum

Arion banki sagði frá því í gær að bank­inn hefði fjár­magnað kaup þess­arra við­skipta­vina að hluta. Það þýðir að umsvifa­miklu við­skipta­vin­irnir lögðu ein­ungis fram hluta þess fjár sem ódýru bréfin voru keypt fyrir. Bankinn þeirra lán­aði þeim fyrir rest­inni.

Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um hversu stórt hlut­fall af við­skipt­unum hefði verið fjár­magnað með þessum hætti. Arion banki vildi ekki svara því nánar en að segja að lít­ill hluti kaupanna hefði verið fjár­magn­aður af bank­anum.

Arion banki við­ur­kenndi í gær að ofan­greind sala til vild­ar­við­skipta­vina bank­ans skömmu fyrir útboð hefði ekki verið í lagi. Gagnrýni á söl­una hafi verið rétt­mæt og verk­lagi varð­andi sölu á stærri eign­ar­hlutum verði í kjöl­farið breytt.

Bankinn varði hins vegar sölu á fimm pró­sent hlut til hóps stjórn­enda Símans og með­fjár­festa þeirra, sem var hand­söluð í maí en til­kynnt um í ágúst. Sá hópur fékk að kaupa á 2,5 krónur á hlut og virði hlutar þeirra hefur því vaxið um hálfan millj­arð króna. Sölu­hömlur eru á hlutnum til jan­úar 2017. Arion banki telur að verðið hafi verið í takt við það verð sem mátti ætl­ast til við að fá fyrir Símann í maí 2015, þegar verðið var ákveðið.

Hann við­ur­kennir hins vegar að „óheppi­legt“ hafi verið að segja ekki frá sam­komu­lag­inu fyrr en 21. ágúst, þremur mán­uðum eftir að það var gert.

Nú er einnig komið í ljós að stjórn­endur Símans keyptu 0,5 pró­sent hlut til við­bótar við þau fimm pró­sent sem áður hafði verið greint frá, á sama verði. Samtals var keypti hóp­ur­inn því 5,5 pró­sent hlut. Miðað við gengi Símans í dag hefur virði hlutar þeirra hækkað um 46 pró­sent. Það gera um 670 millj­ónir króna.

Sölu­hömlur eru á fyrstu fimm pró­sent­unum til 1. jan­úar 2017. Stjórn­endur Símans mega hins vegar selja 0,5 pró­sent hlut sinn strax í mars á næsta ári, eftir rúma fjóra mán­uði.

Ekki sagt frá Árna og Hallbirni

Þótt Arion banki standi með þess­ari sölu, og segi hana hafa sam­rýmst mark­miðum bank­ans um að styrkja félagið, þá hefur hún einnig verið harð­lega gagn­rýnd. Fyrir utan verðið, sem lang­flestir við­mæl­endur Kjarnans í við­skipta­líf­inu segja að alltaf hafi blasað við að hafi verið mjög lágt, hefur sam­setn­ing fjár­fest­inga­hóps­ins verið gagn­rýnd. Sú leynd sem haldið var yfir hluta hans framan af hefur aukið á þá gagn­rýni.

Þegar til­kynnt var um söl­una, þann 21. ágúst síð­ast­lið­inn, var lögð mikil áhersla á að í hópnum væru erlendir fjár­festar með mikla reynslu af fjar­skipta­málum. Þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um hvernig sam­setn­ing hóps­ins væri gaf Síminn upp nokkur nöfn, þeirra á meðal nöfn erlendu fjár­fest­anna.

Í því svari var hins vegar ekki sagt hvernig fimm pró­sent hlut­ur­inn skipt­ist á milli stjórn­enda Símans, alþjóð­legra fjár­festa og ann­arra sem til­heyrðu hópnum. Þar var enn fremur til­greint að þrír einka­fjár­festar væru í honum: þeir Sig­ur­björn Þor­kels­son, sem starf­aði lengi sem yfir­maður hjá Lehman Brothers, var einn eig­andi Haga og stofn­aði fyrr á þessu ári verð­bréfa­miðl­un­ina Fossa mark­aði með nokkrum fyrrum lyk­il­starfs­mönnum úr Straumi, Stefán Ákason, fyrrum for­stöðu­maður skulda­bréfa­miðl­unar Kaup­þings, og Ómar Svav­ars­son, fyrrum for­stjóri Vodafone á Íslandi.

Íslendingarnir stærstir í hópnum

Síðar kom í ljós Sig­ur­björn var ekki einn á ferð­inni. Fjár­fest­ing hans var í gegnum félagið Æðanes ehf., sem er í eigu hans og tveggja með­fjár­festa hans: Árna Hauks­sonar og Hall­björns Karls­sonar. Í til­kynn­ingu Arion banka segir að aðkoma Sig­ur­bjarnar hafi legið fyrir þegar ákvörðun um söl­una til fjár­festa­hóps­ins var tekin „en aðkoma Árna og Hall­björns lá fyrir við frá­gang við­skipt­anna“. Samt var ekki til­kynnt um aðkomu þeirra þegar salan var gerð opin­ber 21. ágúst.

Arion banki segir að með við­skipt­unum hafi bank­inn viljað „styrkja félagið fyrir útboð og gera það sölu­væn­legra með því að fá í hluta­hafa­hóp­inn hluta af stjórn­enda­teymi Símans ásamt alþjóð­legum fag­fjár­festum með mikla reynslu af fjár­fest­ingum og fjar­skiptum í fjölda landa. Stjórn­endur Símans settu fjár­festa­hóp­inn saman en Arion banki gerði kröfu um að hann byggi yfir alþjóð­legri reynslu og tengslum“.

Nú er komið í ljós að Æðanes sé stærsti eig­and­inn innan fjár­festa­hóps­ins. Að félagið hafi keypt stærstan hluta af þeim fimm pró­sent hlut í Símanum sem seldur var á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Arion banki vildi hins vegar ekki upp­lýsa um hversu stór hlutur Æðarnes er þegar Kjarninn leit­aði eftir því. Það hafa Síminn og fjár­fest­arnir sjálfir heldur ekki viljað gera.

Sig­ur­björn, Árni og Hall­björn eru allir umsvifa­miklir fjár­festar á íslenskum mark­aði sem hafa náð miklum árangri í fjár­fest­ingum sínum eftir hrun, sér­stak­lega með kaupum á hlut í Högum í aðdrag­anda útboðs smá­söluris­ans árið 2011. Sá hlutur marg­fald­að­ist í verði. Og það er hægt að rök­styðja að Sig­ur­björn sé alþjóð­legur fjár­festir og að Árni hafi reynslu af fjar­skipta­mark­aði, en hann sat í stjórn Vodafone á árum áður. Gagn­rýn­is­raddir benda þó á að fjöldi ann­arra íslenskra fjár­festa geti flokk­ast sem alþjóð­legir fjár­festar og búi yfir ein­hverri reynslu af fjar­skiptum eða hafi tengst félögum sem stundi slíka þjón­ustu. Það hefur einnig aukið á tor­tryggni vegna aðkomu þeirra að Síminn upp­lýsti ekki um Árna og Hall­björn þegar til­kynnt var um söl­una og að í það var látið skína að erlendir fjár­festar væru leið­andi í fjár­festa­hópnum.

Arion banki segir að hann hafi ekki veitt neina fjár­mögnun til þessa fjár­festa­hóps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár