Arion banki segir að gagnrýni á sölu í Símanum til vildarviðskiptavina hafi verið réttmæt

Íslenskir fjár­festar með litla sér­þekk­ingu á fjar­skiptum keyptu stærstan hluta þeirra bréfa sem seld voru á geng­inu 2,5. Sú sala var ákveðin í maí en til­kynnt í ágúst.

Stjórn­endur Arion banka við­ur­kenna að sala á fimm pró­sent hlut í Símanum til við­skipta­vina bank­ans skömmu fyrir útboð á verði sem reynd­ist vera nokkuð lægra en nið­ur­staða útboðs­ins, hafi ekki verið heppi­leg. Gagnrýni á þá sölu hafi verið rétt­mæt og verk­lagi varð­andi sölu á stærri eign­ar­hlutum verði í kjöl­farið breytt.

Varðandi sölu á fimm pró­sent hlut til hóps sem Orri Hauksson, for­stjóri Símans, setti saman, á verði sem var langt undir útboðs­gengi, þá leit Arion banki hins vegar„aldrei svo á að verið væri að selja hluti í Símanum með afslætti.“ Í gagn­rýni á þá ráð­stöfun hafi verið horft frámhjá þróun hluta­bréfa­mark­aðs­ins frá því að sölu­verðið var ákveðið snemma á þessu ári.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Arion banki sendi frá sér í dag.

Sala til stjórnenda ákveðin í maí

Til­kynn­ingin sem Arion banki sendi er ítar­leg­asta svar við þeirri gagn­rýni sem dunið hefur á bank­anum vegna sölu á tíu pró­sent hlut í Símanum í aðdrag­anda útboðs og skrán­ingar hans á markað. Fyrst fékk hópur stjórn­enda Símans, og með­fjár­festa þeirra, að kaupa fimm pró­sent hlut á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Um þau kaup var til­kynnt í ágúst. Í lok sept­em­ber, nokkrum dögum fyrir útboð, seldi Arion banki síðan völdum við­skipta­vinum sínum, sem hafa ekki verið nafn­greindir, annan fimm pró­sent hlut á geng­inu 2,8 krónur á hlut. Með­al­verð í útboði Símans var 3,33 krónur á hlut og í dag er gengi bréfa hans um 3,7 krónur á hlut.

Arion greinir nú frá því að sam­komu­lagið við fjár­festa­hóp­inn sem keypti fyrst hafi verið gert í maí. Arion banki segir að sú töf sem orðið hafi á að upp­lýsa um kaupin hafi verið „óheppi­leg“. Verð­matið hafi á þeim tíma, í maí, verið svipað og á Vodafone, hinu skráðu fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu. Síðan þá hafi hluta­bréf í Vodafone hækkað um 23 pró­sent.

Nú er einnig komið í ljós að stjórn­endur Símans keyptu 0,5 pró­sent hlut til við­bótar við þau fimm pró­sent sem áður hafði verið greint frá, á sama verði. Samtals var keypti hóp­ur­inn því 5,5 pró­sent hlut. Miðað við gengi Símans í dag hefur virði hlutar þeirra hækkað um 47 pró­sent. Það gera rúm­lega 680 millj­ónir króna.

Sölu­hömlur eru á fyrstu fimm pró­sent­unum til 1. jan­úar 2017. Stjórn­endur Símans mega hins vegar selja 0,5 pró­sent hlut sinn strax í mars á næsta ári, eftir rúma fjóra mán­uði.

Ekki sagt frá Árna og Hallbirni

Þegar til­kynnt var um söl­una, þann 21. ágúst síð­ast­lið­inn, var lögð mikil áhersla á að í hópnum væru erlendir fjár­festar með mikla reynslu af fjar­skipta­málum. Þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um hvernig sam­setn­ing hóps­ins væri gaf Síminn upp nokkur nöfn, þeirra á meðal nöfn erlendu fjár­fest­anna.

Í því svari var hins vegar ekki sagt hvernig fimm pró­sent hlut­ur­inn skipt­ist á milli stjórn­enda Símans, alþjóð­legra fjár­festa og ann­arra sem til­heyrðu hópnum. Þar var enn fremur til­greint að þrír einka­fjár­festar væru í honum: þeir Sig­ur­björn Þor­kels­son, sem starf­aði lengi sem yfir­maður hjá Lehman Brothers, var einn eig­andi Haga og stofn­aði fyrr á þessu ári verð­bréfa­miðl­un­ina Fossa mark­aði með nokkrum fyrrum lyk­il­starfs­mönnum úr Straumi, Stefán Ákason, fyrrum for­stöðu­maður skulda­bréfa­miðl­unar Kaup­þings, og Ómar Svav­ars­son, fyrrum for­stjóri Vodafone á Íslandi.

Síðar kom í ljós Sig­ur­björn var ekki einn á ferð­inni. Fjár­fest­ing hans var í gegnum félagið Æðanes ehf., sem er í eigu hans og tveggja með­fjár­festa hans: Árna Hauks­sonar og Hall­björns Karls­sonar. Í til­kynn­ingu Arion banka segir að aðkoma Sig­ur­bjarnar hafi legið fyrir þegar ákvörðun um söl­una til fjár­festa­hóps­ins var tekin „en aðkoma Árna og Hall­björns lá fyrir við frá­gang við­skipt­anna“. Samt var ekki til­kynnt um aðkomu þeirra þegar salan var gerð opin­ber 21. ágúst.

Íslensku fjárfestarnir með stærstan hluta

Arion banki segir að með við­skipt­unum hafi bank­inn viljað „styrkja félagið fyrir útboð og gera það sölu­væn­legra með því að fá í hluta­hafa­hóp­inn hluta af stjórn­enda­teymi Símans ásamt alþjóð­legum fag­fjár­festum með mikla reynslu af fjár­fest­ingum og fjar­skiptum í fjölda landa. Stjórn­endur Símans settu fjár­festa­hóp­inn saman en Arion banki gerði kröfu um að hann byggi yfir alþjóð­legri reynslu og tengslum“.

Þar segir líka að Æðanes sé stærsti eig­and­inn innan fjár­festa­hóps­ins. Félagið hafi keypt stærstan hluta af þeim fimm pró­sent hlut í Símanum sem seldur var á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Sig­ur­björn, Árni og Hall­björn eru allir umsvifa­miklir fjár­festar á íslenskum mark­aði, en Árni sat í stjórn Vodafone á árum áður og hefur þar með ein­hverja reynslu af fjar­skipta­mark­aði. Þess vegna hefur sú ákvörðun Arion banka að selja þessum hópi fjár­festa hlut í Símanum á verði sem var langt undir útboðs­verði verið harð­lega gagn­rýnd. Eðli­leg­ast væri að allir fjár­festar sætu við sama borð í þeim málum.

Arion banki telur hins vegar ekki rétt að tala um að hóp­ur­inn hafi fengið afslátt á hlut sínum. Bankinn segir að fáir myndu halda því fram „nú í októ­ber að ein­stak­lingur, sem seldi sinn hlut í Vodafone í maí, hefði verið að gefa kaup­and­anum 20 pró­sent afslátt,“ og vísar þannig í að hlutir í Vodafone hafa hækkað um 20 pró­sent síðan í maí.

Salan á hlut í Símanum í samræmi við stefnu stjórnar

Arion banki seldi einnig fimm pró­sent hlut til val­inna við­skipta sinna á verði sem var við lægri enda verð­bils útboðs á bréfum Símans nokkrum dögum áður en það fór fram. Í til­kynn­ing­unni sem send var í dag kemur fram að bank­inn fjár­magn­aði hluta þess­ara við­skipta, en hann segir að það hafi verið lít­ill hluti. Það þýðir að fjár­fest­arnir sem fengu að kaupa greiddu ekki að öllu leyti fyrir hlut­inn. Arion banki lán­aði þeim.

Bankinn segir aðekki hafi verið að „veita við­skipta­vinum afslátt frá verð­inu heldur[...]að gefa þeim kost á að kaupa nokkru stærri hlut en ella[...]Sú gagn­rýni að ekki hafi allir setið við sama borð hefur ekki farið fram­hjá stjórn­endum bank­ans. Ekki var heppi­legt að selja til við­skipta­vina bank­ans svo skömmu fyrir útboðið á gengi sem svo reynd­ist nokkuð lægra en nið­ur­staða útboðs­ins. Bankinn van­mat hina miklu eft­ir­spurn sem raun varð á. Þessi til­högun er til skoð­unar í bank­anum og verður tekið mark á gagn­rýn­inni“.

Þrátt fyrir það er það nið­ur­staða stjórn­enda Arion banka er að salan á 31 pró­sent hlut bank­ans í Símanum, meðal ann­ars til ofan­greinda hópa, hafi verið „í sam­ræmi við þá stefnu stjórnar bank­ans að yfir­teknum félögum í óskyldum rekstri skuli eftir föngum vera komið í sem breið­ast eign­ar­hald og þau skráð í kaup­höll“.

Gagnrýni á á söl­una til vild­ar­við­skipta­vina bank­ans sé rétt­mæt og verk­lagi verði breytt í kjöl­farið.Bankinn virð­ist hins vegar ekki telja að gagn­rýni á söl­una til fjár­festa­hóps­ins sem fékk að kaupa í maí, sem sam­an­stóð af stjórn­endum Símans, nokkrum alþjóð­legum fjár­festum með reynslu af fjar­skiptum en að stærstum hluta af inn­lendum fjár­festum með litla slíka reynslu, eigi við rök að styðj­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár