Virði hlutar þeirra sem fengu að kaupa á undan í Símanum hefur þegar hækkað í verði

Síminn, stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, verður skráður á hluta­bréfa­markað um miðjan októ­ber­mánuð. Í Aðdrag­anda þeirrrar skrán­ingar mun Arion banki, sem stofn­aður var eftir banka­hrun með inn­stæðum Íslend­inga og fékk m.a. það hlut­verk að end­ur­skipu­leggja mik­il­væg fyr­ir­tæki eins og Símann, selja hluta af eign sinni í félag­inu til áhuga­samra.

Á síð­ustu vikum hafa hins vegar valdir aðilar, hópur fjár­festa, yfir­stjórn­endur Símans og vild­ar­við­skipta­vinir Arion banka, fengið að kaupa hluti í Símanum á verði sem flestir virð­ast sam­mála um að verði mun lægra en skrán­ing­ar­gengi félag­inu. Miðað við þær upp­lýs­ingar sem birtar voru um hluta­fjár­út­boðið í Símanum í gær gæti virði þess hlutar sem nokkrir fjár­festar og stjórn­endur Símans fengu að kaupa í ágúst síð­ast­liðnum þegar verið búið að hækka um tæpan fjórð­ung þegar félagið verður skráð.

Risi á íslenskum fjarskiptamarkaði


Það er ekki langt síðan að Síminn lauk fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu. Það gerð­ist í júní 2013 þegar eig­endur óver­tryggðra skulda félags­ins, aðal­lega líf­eyr­is­sjóðir og Arion banki, breyttu skuldum sínum í hlutafé auk þess sem allar verð­tryggðar skuldir Símans voru end­ur­fjár­magn­aðar. Síminn var síð­asta stóra fyr­ir­tækið á Íslandi sem lent hafði í miklum erf­ið­leikum eftir hrunið vegna óhof­legrar skuld­setn­ingar sem fór í gegnum end­ur­skipu­lagn­ingu.

Það er engu logið um það þegar sagt er að Síminn, sem byggir á merg gamla Lands­sím­ans, sé stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins. Við­skipta­vinir félags­ins eru 115 þús­und alls og þar af eru 88 pró­sent ein­stak­lingar. Tæpur helm­ingur tekna Símans kemur frá þeim ein­stak­lingum. Félagið er leið­andi á fjar­skipta­mark­aði (í síma- og net­þjón­ustu) og, eftir sam­runa þess við SkjáEinn, er aug­ljóst að það ætlar sér stóra hluti á fjöl­miðla­mark­aði líka. Þar liggur áherslan á því að bjóða neyt­endum upp á ólínu­legt sjón­varp og efn­isveitur þar sem greitt er fyrir eftir notkun. Þetta við­skipta­módel mun ógna til­veru línu­legs áskrifta­sjón­varps þar sem dag­skrá er stillt upp í tíma­röð fyrir neyt­endur. Þá er Síminn einnig stærsti selj­andi snjall­síma á land­inu.

[caption id="attachment_26131" align="alignnone" width="663"] Siminn og Skipti, fyrrum móð­ur­fé­lag fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins, voru sam­einuð fyrr á þessu ári. Hér sést Orri Hauksson, for­stjóri Símans, taka niður Skipta-merkið af höf­uð­stöðvum sam­stæð­unnar.[/caption]

Og rekstur félags­ins hefur gengið vel eftir að það var end­ur­skipu­lagt í sam­starfi við stærstu kröfu­hafa þess. Eftir 50 millj­arða króna tap á árunum 2008 til 2013 hagn­að­ist félagið um 3,3 millj­arða króna í fyrra og um 1,3 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Eigið fé Símans er nú um 31,2 millj­arðar króna, sem er umtals­vert hærra en marka­svirði fyr­ir­tæk­is­ins miðað við það gengi sem hlutir í honum hafa verið seldir á und­an­farnar vikur.

Skráður á markað í október


Síminn verður skráður á markað í októ­ber og er gert ráð fyrir að fyrsti dagur við­skipta geti orðið 15. októ­ber. Í aðdrag­anda þeirrar skrán­ingar ætlar Arion banki, stærsti eig­andi Símans, að selja 18-21 pró­sent af hlut sínum í félag­inu.

Útboðið fer þannig fram að um tvær til­boðs­bækur verður að ræða. Í þeirri fyrri, til­boðs­bók A, geti þeir skráð sig sem vilja kaupa hlut fyrir 100 þús­und krónur og upp að tíu millj­ónum króna. Þetta eru litlir fjár­festar. Þeim býðst að bjóða á bil­inu 2,7 til 3,1 krónur á hlut. Tak­mark­aður hlutur er í boði og því gilda því vit­an­lega hæstu til­boð umfram önnur. Með örðum orðum ætti til­boð upp á 3,1 krónur á hlut að duga áhuga­sömum fjár­festi til að eign­ast hlut í Símanum í útboð­inu. Í gegnum þessa til­boðs­bók ætlar Arion banki að selja fimm pró­sent hlut í Símanum.

Seinni til­boðs­bókin, til­boðs­bók B, er fyrir þá sem ætla að kaupa fyrir meira en tíu millj­ónir króna. Í gegnum hana fer stóra útboðið fram, enda eru þar til sölu 13 til 16 pró­sent hlutur í Símanum.

Þeir sem taka þátt í þess­ari leið eru aðal­lega fag­fjár­festar, meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóðir. Í þess­ari leið er ekk­ert hámark á því hvað við­kom­andi fjár­festir getur skráð sig fyrir stórum hluta þess hluta­fjár sem er til sölu, en ef umfram­eft­ir­spurn verður, sem er oft­ast í íslenskum hluta­fjár­út­boðum, meðal ann­ars vegna eins­leits fjár­fest­inga­um­hverfis hag­kerfis í höftum, mun sú upp­hæð skerð­ast. Í þess­ari leið er ein­ungis lág­marks­verð, 2,7 krónur á hlut, en ekk­ert hámarks­verð. Allar líkur eru taldar á því að verðið fari að lág­marki rétt yfir þrjár krónur á hlut.

Arion banki er ekki að selja allt hlutafé sitt í Símanum í útboð­inu. Hann mun halda eftir 6,8 til 9,8 pró­sent hlut.

Stjórnendur og valdir fjárfestar fá að kaupa á lægra verði


Það vekur athygli að í ágúst siðast­lið­inum fékk félagið L1088 ehf. að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Sá hópur var settur saman af Orra Hauks­syni, for­stjóra Símans, og hann átti frum­kvæði að því að leita til Arion banka til að koma við­skipt­unum á. Að hópnum standa nokkrir erlendir fjár­festar með reynslu úr fjar­skipta­geir­anum og Orri. For­stjór­inn á alls 0,4 pró­sent hlut í Símanum sem hann fékk að kaupa á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Orri greiddi rúm­lega 100 millj­ónir króna fyrir hlut­inn.

[caption id="attachment_16722" align="alignnone" width="569"] Hösk­uldur Ólafsson er banka­stjóri Arion banka, stærsta eig­anda Símans. Bankinn hefur selt hluti í Símanum til val­ins hóps fjár­festa á und­an­förnum vikum.[/caption]

Aðrir í yfir­stjórn Símans fengu líka að kaupa hluti í eigin nafni. Eign þeirra er þó öllu minni, en stjórn­end­urnir keypta alls fyrir um 1,8 milljón króna í eigin nafni. For­stjór­inn Orri nýtti sér þennan rétt einnig. Eini með­limur yfir­stjórnar sem á við­bót­ar­hlut utan þess­arra kaup­rétta er Val­gerður H. Skúla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Sensa. Hún á hlut í gegnum eign­ar­halds­fé­lag sem er met­inn á um 33 millj­ónir króna miðað við það gengi sem stjórn­endur fengu að kaupa á.

Þessum kaupum fylgja ákveðnar sölu­hömlur. L1088 ehf, félag Orra og fjár­fest­anna, má ekki selja fyrr en í jan­úar 2017 og yfir­stjórn­end­urnir mega ekki selja fyrr en 1. mars 2016. Vert er að taka fram að sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá er L1088 ehf. í eigu lög­fræði­stof­unnar Lex og ekki er hægt að sjá hvernig eign­ar­hlutur félags­ins skipt­ist niður á raun­veru­lega eig­endur þess.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þessi við­skipti í frétta­skýr­ingu í ágúst síð­ast­liðnum.

Hluti stjórn­end­anna sem fengu að kaupa hafa ekki starfað hjá Símanum lengi, og voru raunar ráðnir til starfa þar eftir að fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu lauk. Orri var til að mynda ráð­inn for­stjóri í októ­ber 2013, eftir tölu­verða valda­bar­áttu í stjórn Símans, og Magnús Ragn­ars­son var ráð­inn í sitt starf í apríl 2014. Áður hafði hann verið aðstoð­ar­maður Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var hjá Símanum skömmu eftir að ákvörð­unin um að selja ofan­greindum hópi fimm pró­sent hlut var hand­salað að öllum fast­ráðnum starfs­mönnum myndi bjóð­ast að kaupa fyrir allt sex hund­ruð þús­und krónur á ári á geng­inu 2,5 krónur á hlut í þrjú ár. Þegar hafa 613 starfs­menn gert samn­inga um slík kaup fyrir sam­tals 1,1 millj­arð króna. Nýtt hlutafé verður gefið út vegna kaup­rétt­ar­á­ætl­unar starfs­manna. Við það þynn­ist hlutur ann­arra hlut­hafa, sem að mestu eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Bankinn selur völdum viðskiptavinum fyrir útboð


Síðari hluta sept­em­ber­mán­aðar, nokkrum dögum áður en fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð fer fram, fengu nokkrir valdir við­skipta­vinir Arion banka að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,8 krónur á hlut. Ekki hefur verið gefið upp hverjir fjár­fest­arnir eru. Þessi hópur má ekki selja hluti sína fyrr en 15. jan­úar 2016.

Flestir í við­skipta­líf­inu sem Kjarninn hefur rætt við eru sam­mála um að skrán­ing­ar­gengi Símans á markað verði yfir þremur krónum á hlut. Ef miðað er við til­boðs­bilið sem Arion banki setti á til­boðs­bók A, og lík­legt þykir að muni enda í efri mörkum þess, þá er mark­aðsvirði sím­ans 26 til 30 millj­arðar króna.

[caption id="attachment_12433" align="align­right" width="160"] Orri Hauksson, for­stjóri Símans.[/caption]

Miðað við sama bil hafa þeir fjár­festar og stjórn­endur Símans sem fengu að kaupa án aug­lýs­ingar fimm pró­sent hlut af Arion banka þegar aukið verð­gildi þess hlutar um 8-24 pró­sent. Hundrað millj­ón­irnar sem Orri Hauksson keypti fyrir eru þegar orðnar 108 til 124 millj­óna króna virði, rúmum mán­uði eftir kaupin.

Það hefur einnig vakið furðu margra á fjár­mála­mark­aði að Arion banki ákveði að selja völdum, ónefndum, við­skipta­vinum sínum annan fimm pró­sent hlut á verði sem að öllum lík­indum verður lægra en útboðs­gengi á hlutum í Símanum. Það er að minnsta kosti búist við umfram­eft­ir­spurn eftir hlutum, líkt og í lang­flestum hluta­fjár­út­boðum sem fram hafa farið á Íslandi eftir hrun. Ef skrán­ing­ar­gengi Símans verður við efri mörk þess bils sem er á til­boðs­bók A munu þessir hand­völdu við­skipta­vinir Arion banka þegar vera búnir að hækka virði eignar sinnar í Símanum um tæp ell­efu pró­sent.

Umdeildar aðferðir Arion banka


Arion banki hefur oft verið harð­lega gagn­rýndur á und­an­förnum árum fyrir það hvernig hann hefur staðið að því að losa um eignir sem færðar voru honum í vöggu­gjöf þegar bank­inn var stofn­aður af stjórn­völdum með handafli eftir hrun (verð­bréfa­eign Arion banka um mitt þetta ár var 111 millj­arðar króna). Sú gagn­rýni er tví­þætt: ann­ars vegar að valdir fjár­festar fái að kaupa hluti í þeim eignum, oft á lægra verði en aðrir, án þess að þær séu aug­lýstar, og hins vegar að bank­inn hangi allt of lengi á eignum í óskyldum rekstri.

[caption id="attachment_14919" align="alignnone" width="1024"] Bónus er stærsta mat­vöru­versl­un­ar­keðja lands­ins. Alls eru 29 Bón­usversl­anir reknar um allt land. Hagar eiga Bónus að fullu. Salan á hlut í Högum áður en útboð fór fram hefur verið gagn­rýnd tölu­vert á und­an­förnum árum. Þeir sem keyptu högn­uð­ust ævin­týra­lega á við­skipt­unum.[/caption]

Sala hans á hlut í smá­söluris­anum Högum til val­ins hóps fjár­festa á lágu verði í aðdrag­anda skrán­ingu þess félags á markað hefur oft verið nefnd ein bestu við­skipti eft­ir­hrunsár­anna, fyrir þá sem fengu að kaupa. Þeir högn­uð­ust enda um nokkra millj­arða króna án þess að taka neina áhættu í við­skipt­unum. Féð sem lagt var fram var tekið að láni. Þá hefur tregða bank­ans við að selja hluti sína í HB Granda, eina skráða sjáv­ar­út­vegs­fé­lags­ins, einnig verið nokkuð gagn­rýnd.

Arion banki hefur á móti sagt að und­ir­liggj­andi sé að hámarka virði þeirra eigna sem hann er að losa um. Sú aðferð­ar­fræði sem bank­inn beiti hafi skilað góðum árangri að því mark­miði. Varðandi sölu til val­inna fjár­festa ,til dæmis í Símanum, segir bank­inn að um áhuga­verða aðila hafi verið að ræða sem hann teldi að myndu styrkja félagið.

Umhverfi íslenskra banka ekki venjulegt umhverfi


Þessar skýr­ingar væru góðar og gildar í venju­legu umhverfi þar sem bankar í einka­eigu væru að losa um eignir. Það kæmi í raun engum við á hvaða verði þeir seldu þær eignir. Hlut­hafar þeirra myndu sjá til þess að veita þeim nægj­an­legt aðhald til að skila sér sem mestum arði.

En Ísland eft­ir­hrunsár­anna er ekk­ert venju­legt umhverfi. Í októ­ber 2008 voru búnir til þrír nýir bankar, meðal ann­ars Arion banki. Stjórn­völd færðu inn­stæður þjóð­ar­innar og inn­lendar eignir með handafli inn í þessa banka. Þeir fengu síðan það hlut­verk að end­ur­skipu­leggja íslenskt við­skipta­líf, en um 70 pró­sent þess átti í miklum erf­ið­leikum vegna skuld­setn­ingar eftir banka­hrun. Bank­arnir þrír fengu því þau fyr­ir­tæki sem þau hafa síðan end­ur­skipu­lagt fjár­hags­lega, oft með miklum mynda­brag, afhent frá stjórn­völdum.

Til við­bótar voru bank­arnir fjár­magn­aðir með ann­ars vegar inn­lánum Íslend­inga og hins vegar lánsfé frá rík­inu. Enn þann dag í dag hefur þeim öllum gengið hálf brösu­lega að ná sér í aðra fjár­mögnun en íslenskar inn­stæður, sem er ekki óeðli­legt í ljósi þess að hér hafa verið fjár­magns­höft frá 2008 og allt íslenska banka­kerfið fór á haus­inn þá afdrifa­ríku haust­mán­uði. Í til­felli Arion banka er til dæmis 58 pró­sent af öllum skuldum bank­ans inn­stæður við­skipta­vina hans. Á þessum inn­stæðum hvílir síðan rík­is­á­byrgð, þar til yfir­lýs­ing íslenskra stjórn­valda um slíka sem gefin var út í októ­ber 2008 verður form­lega dregin til baka.

Vegna þessa, og þar til að bank­arnir verða seldir til einka­að­ila, end­ur­greiði skuldir sínar við hið opin­bera og fjár­magni sig með öðrum hætti en sparifé lands­manna þá hefur verið rík­ari krafa á að þeir gæti jöfn­uðar, gagn­sæis og heið­ar­leika í sínum við­skiptum.

Til dæmis þegar þeir selja fyr­ir­tæki sem hrunið færði þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár