Eftir 50 milljarða tap skilar Skipti í fyrsta sinn hagnaði frá hruni

Skipti, móð­ur­fé­lag Símans og fleiri fyr­ir­tækja, hagn­að­ist um 3,3 millj­arða króna eftir skatta á síð­asta ári. Á tíma­bil­inu 2008 og til loka árs 2013 tap­aði félagið sam­tals 50 millj­örðum króna. Þetta er því í fyrsta sinn sem þetta stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins skilar hagn­aði síðan að efna­hags­hrunið átti sér stað á Íslandi haustið 2008.

Rekstr­ar­tekjur Skipta, sem eru að 99 pró­sent leyti sölu­tekjur, voru 30,3 millj­arðar króna í fyrra og juk­ust lít­il­lega á milli ára, eða um 1,3 pró­sent. Þær tekjur er þó langt frá því sem þær voru þegar best lét. Árið 2009 voru rekstr­ar­tekjur félags­ins til að mynda 40,3 millj­arðar króna, eða tíu millj­örðum króna hærri en í fyrra.

Ástæður þessa eru helst þær að fyr­ir­tæki sem tölu­verða veltu hafa verið seld út úr sam­stæð­unni. Á þessu tíma­bili hefur mark­aðs­hlut­deild Símans á far­síma­mark­aði einnig dreg­ist umtals­vert saman.

Stærstu eig­endur Skipta eru Arion banki (38,32 pró­sent) og íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Stefnt er að því að skrá felagið á markað í nán­ustu fram­tíð. Undir Skipti heyra Síminn, Skjárinn, Míla, Sensa, Rad­íó­miðlun, Staki og Talenta.

Tap undanfarinna ára vegna niðurfærslu viðskiptavildar

Hið mikla tap sem hefur verið á rekstri Skipta und­an­farin ár er að stóru leyti til­komin vegna þess að við­skipta­vild félags­ins hefur verið skrúfuð niður um 33 millj­arða króna frá árs­lokum 2008. Á árinu 2013, sama ári og fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu Skipta lauk, bók­færði félagið til að mynda 17 millj­arða króna tap þrátt fyrir að hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta hefði verið 8,3 millj­arðar króna. Stærsta breytan í þeirri nið­ur­stöðu var nið­ur­færsla upp

á við­skipta­vild upp á 14 millj­arða króna.

Orri Hauksson, for­stjóri Skipta, sagði við Kjarnann í mars 2014 að þessi mikla við­skipta­vild hefði aðal­lega verið til­komin vegna einka­væð­ingar Símans árið 2005. „Þá varð til stærð í bók­hald­inu vegna þess að félagið var keypt á yfir­verði og hún fékk nafnið við­skipta­vild. Hún óx síðan eitt­hvað aðeins vegna kaupa á öðrum félögum“.

Ríkið græddi vel á sölu Símans

Sala íslenska rík­is­ins á hlutafé sínu í Símanum sum­arið 2005 mun lík­lega fara í sögu­bæk­urnar sem ein bestu við­skipti sem fram­kvæmd hafa verið á Íslandi. Exista og við­skipta­legir með­reið­ar­sveinar þess áður stór­tæka fjár­fest­ing­ar­fé­lags, sem síðar maga­lenti stór­kost­lega, keyptu Símann undir hatti félags sem fékk nafnið Skipti á upp­hæð sem í dag myndi vera um 140 millj­arðar króna.

Kaupin voru fjár­mögnuð með lánum og skuld­unum sem stofnað var til vegna þeirra var dembt aftur inn í rekst­ur­inn með því að sam­eina Skipti og Símann í svoköll­uðum öfugum sam­runa. Vegna þess háa verð­miða sem greiddur var fyrir Símann varð við­skipta­vild Skipta mjög há. Ofan af henni hefur þurft að vinda á und­an­förnum árum eftir að raun­veru­leik­inn tók við af sýnd­ar­veru­leika fyr­ir­hrunsár­anna.

Engin nið­ur­færsla varð á við­skipta­vild Skipta á árinu 2014 heldur stóð hún í stað. Svo virð­ist því sem að félagið sé búið að færa hana niður í takti við raun­veru­leik­ann sem það starfar í.

Reksturinn í jafnvægi

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna afkomu Skipta er haft eftir Orra að rekst­ur­inn hafi verið í ágætu jafn­vægi á árinu. „Tekjur juk­ust lít­il­lega og og EBITDA stendur í stað milli ára. Efna­hags­reikn­ingur félags­ins hefur gjör­breyst í kjöl­far end­ur­skipu­lagn­ingar og skilar fyr­ir­tækið nú hagn­aði í fyrsta sinn frá hruni. Hann nemur 3,3 millj­örðum króna. Fjár­fest­ingar á árinu námu 4,5 millj­örðum króna og eru þær mestu um ára­bil. Við lögðum áherslu á að halda áfram að skipu­leggja starf­sem­ina til fram­tíðar og und­ir­búa félagið fyrir skrán­ingu í kaup­höll. Tilkynnt var um sam­ein­ingu rekstrar Símans og Skipta á árinu og sam­þykkti Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­ein­ing­una í árs­byrjun 2015. Þá hefur verið skerpt á upp­lýs­inga­tækn­inni með því að sam­eina UT starf­semi Símans við Sensa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár