Af hverju fékk hópur að kaupa í Símanum áður en félagið er skráð á markað?

Greint var frá því í lok síð­ustu viku að Arion banki hefði selt fimm pró­sent hlut í Símanum til hóps fjár­festa sem settur hafði verið saman af Orra Hauks­syni, for­stjóra Símans, á rúm­lega 1,3 millj­arða króna. Á meðal þeirra sem eru í kaup­enda­hópnum eru nokkrir lyk­il­stjórn­endur innan Síma­sam­stæð­unnar, erlendir fjár­festar með reynslu af fjar­skipta­geir­anum, fyrrum for­stjóri Vodafone á Íslandi, gam­all starfs­maður Kaup­þings og fjár­festir sem farið hefur mik­inn í því að hagn­ast á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði eftir hrun.

Það er ýmis­legt við söl­una sem hefur vakið athygli.

Frumkvæðið kom frá Orra

Í fyrsta lagi voru kaupin ekki aug­lýst. Kjarninn beindi spurn­ingum til Arion banka, sem seldi hópnum hlut­inn, um hvernig við­skiptin hefðu komið til. Samkvæmt svörum hans kom frum­kvæðið að við­skipt­unum frá Orra Hauks­syni, for­stjóra Símans, sem sjálfur keypti 0,4 pró­sent hlut.

Í svörum bank­ans segir einnig að hann hafi séð ýmis­konar hag í þesum við­skiptum. Í fjár­festa­hópnum séu aðilar sem alla jafna fjár­festi ekki á Íslandi sem hafi auk þess mikla reynslu úr fjar­skipta­heim­inum. „Sú þekk­ing sem þeir koma með að rekstri Símans var einn af þeim þáttum sem bank­inn leit til við ákvörðun um söl­una. Félagið stendur sterkara eftir með bæði lyk­il­stjórn­endur og ein­stak­linga með alþjóð­lega reynslu úr fjar­skipta­heim­inum í hluta­hafa­hópnum,“ segir í svari bank­ans.

Kaupverðið talið lágt

Í öðru lagi hefur verðið sem hóp­ur­inn greiddi fyrir hlut­inn vakið athygli. Hópurinn keypti fimm pró­sent hlut­inn á 1.330 millj­ónir króna, eða 2,5 krónur á hlut. Samkvæmt síð­asta birta upp­gjöri Símans var eigið fé hans 29,9 millj­arðar króna. Miðað við kaup­verðið sem fjár­fest­arnir greiddu fyrir fimm pró­sent hlut er mark­aðsvirði félags­ins 26,6 millj­arðar króna, eða 0,89 sinnum eigið fé Símans. Það þýðir í raun að ef Siminn hætti starf­semi í dag, seldi allar eignir sínar á raun­virði og greiddi hlut­höfum út reiðufé þá myndi hóp­ur­inn inn­leysa hagnað up á um 165 millj­ónir króna.

Margir virð­ast telja að kaup­verðið, miðað við hefð­bundna mæli­kvarða, sé nokkuð lágt. Aðspurður hvernig það hafi verið ákveðið segir í svari Arion banka: „Kaup­verðið byggði á samn­inga­við­ræðum milli aðila þar sem m.a. var horft til verð­lagn­ingar sam­bæri­legra félaga út frá ýmsum mæli­kvörðum sem og ann­arra skil­mála söl­unnar, s.s. sölu­hömlur til 1. jan­úar 2017“.

Hærri margfaldari en í Vodafone

Til á ákveða hvert mark­aðs­verð félaga er nota fjár­festar oft ákveðna marg­fald­ara, t.d. á hagnað fyrir afskriftir, skatta og fjár­magns­kostnað (EBITDA). Eitt fjar­skipta­fé­lag er skráð í íslensku kaup­höll­ina, Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi. Mark­aðsvirði Vodafone er 14 millj­arðar króna,

eða 4,5 sinnum EBITDA-hagn­aður félags­ins á árinu 2014. Þegar lang­tíma­skuldum er bætt við kemur út að EBITDA-marg­fald­ari félags­ins er um 5,9.

Þá er mark­aðsvirði Fjar­skipta 1,6 sinnum eigið fé félags­ins. Til við­bótar eru ýmsir mark­aðs­að­ilar á því að virði Fjar­skipta sé van­metið.

IFS grein­ing

telur til að mynda að það ætti að vera 13 pró­sent hærra.

Síminn er félag með rúm­lega tvisvar sinnum meiri veltu og víð­fermari starf­semi en Vodafone. Það er því ekki að öllu leyti sam­bæri­legt við Vodafone. Félagið skuldar til að mynda 24 millj­arða króna í vaxtra­ber­andi skuldir, sem er mun meira en Vodafone. Að teknu til­liti til lang­tíma­skulda hans er virði hluta­fjár Símans 50,6 millj­arðar króna og EBITDA-marg­fald­ar­inn 6.1, sem er hærra en marg­fald­ari Vodafone.

Segir hlutinn hafa verið til sölu fyrir áhugasama

En af hverju var hlut­ur­inn ekki bara boð­inn hæst­bjóð­anda til sölu? Á það ekki að vera hlut­verk banka að fá sem best verð fyrir eignir sem þeir sitja uppi með eftir að hafa end­ur­skipu­lagt fyr­ir­tæki sem lentu í fjár­hags­erf­ið­leikum?

Arion banki segir að það hafi lengi legið fyrir að hlutur bank­ans í Símanum hafi verið til sölu. Því til stuðn­ings bendir bank­inn á und­ir­síðu á vef sínum þar sem eignir eru aug­lýstar til sölu. Á meðal þeirra hluta sem eru þar aug­lýstir er allur hlutur Arion banka í Símanum. Því hafi ekk­ert verið til fyr­ir­stöðu fyrir áhuga­sama kaup­endur að setja sig í sam­band við bank­ann og bjóða í eign­ina. Í þessu til­felli hafi frum­kvæðið komið frá fjár­festa­hópnum og það hafi verið mat bank­ans að um „áhuga­verða aðila væri að ræða Símann sem myndi styrkja félagið og voru skil­málar ásætt­an­legir bank­anum.

Hópur fékk að kaupa í Högum í aðdraganda skráningar

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem stjórn­endur og valin hópur fjár­festa fær að kaupa í félagi í aðdrag­anda skrán­ingar þess á markað á Íslandi eftir hrun. Og ekki í fyrsta sinn sem það ger­ist hjá Arion banka.

Í nóv­em­ber 2010 rann út óskuld­bind­andi frestur til að skila til­boðum í kjöl­festu­hlut í smá­söluris­anum Högum, sem Arion banki sat með í fang­inu eftir að undið hafði verið ofan af fjár­fest­inga­æv­in­týrum Baugs-fjöl­skyld­unnar, fyrrum eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Tíu aðilar, inn­lendir og erlendir, gerðu til­boð. Einn þess­arra aðila var Stefnir, sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki í eigu Arion banka. Yfirmenn Stefnis buðu í kjöl­farið fjár­est­unum Árna Hauks­syni og Hall­birni Karls­syni, að vera með í kaup­unum. Þeir buðu vini sínum til ára­tuga, Sig­ur­birni Þor­kels­syni, og Trygg­inga­mið­stöð­inni að vera með sér og saman mynd­uðu þessir aðilar félagið Hagamel.

Voga­bakki, fjár­fest­inga­fé­lag þeirra Árna og Hall­björns,hafði fjár­fest erlendis og gengið vel. Allar eignir þess voru utan hafta. Þeir vildu ekki þurfa að flytja neina pen­inga inn í gjald­eyr­is­höftin á þessum tíma og fengu því lánað fyrir kaup­unum hjá við­skipta­banka sínum.

Haga­melur leiddi hóp sem kall­að­ist Búvellir sem fékk að kaupa 34 pró­sent hlut í Högum á 10 krónur á hlut áður en félagið var sett á markað. Aðrir í Búvöllum voru líf­eyr­is­sjóðir og sjóðir í stýr­ingu hjá Stefni. Inni í sam­komu­lag­inu var líka for­kaups­réttur á 10 pró­sentum til við­bótar á geng­inu 11 krónur á hlut áður en restin af hlutafé Haga var skráð á markað í des­em­ber 2011. Þann for­kaups­rétt nýttu Búvellir sér. Félagið var síð­ast leyst upp og hver ein­ing hélt eftir það á sínum hlut. TM fór auk þess út úr Haga­mels­sam­starf­inu og eftir sátu þar þeir Árni, Hall­björn og Sig­ur­björn.

Hlutur þeirra var 8,2 pró­sent. Upp­runa­lega greiddi félagið fyrir hann 982 millj­ónir króna. Þegar Hagar voru skráðir á markað var byrj­un­ar­gengi bréf­anna 13,5 krónur á hlut. Áður en við­skipti hófust hafði því Haga­mels­hóp­ur­inn hagn­ast um 314 millj­ónir króna. Sá hagn­aður átti eftir að aukast mikið.

Til við­bótar fengu fimm lyk­il­stjórn­endur Haga gef­ins 1,4 pró­sent hlut í félag­inu frá Arion banka. Tveir þeirra, þeir Finnur Árnason for­stjóri og Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónuss, voru á meðal þriggja stjórn­enda sem höfðu áður selt hluti í Högum til félags­ins sjálfs á rúm­lega einn millj­arð króna. Þetta átti sér stað á árunum 2008 og 2009. Flestir stjórn­end­anna fimm hafa selt að minnsta kosti hluta þeirra bréfa sem þeir fengu gef­ins frá bank­anum.

Seldu með 2,3 milljarða króna hreinum hagnaði

Í byrjun árs 2014 fór Haga­mela­hóp­ur­inn að kanna þann mögu­leika á að selja hlut sinn í Högum. Af varð að félagið seldi um 6,6 pró­sent á geng­inu 42 krónur á hlut. Fyrir það feng­ust rúm­lega 3,2 millj­arðar króna.

Með söl­unni inn­leystu þeir um 2,3 millj­arða króna hreinan hagnað á fjár­fest­ingu sinni í félag­inu, en tæp þrjú ár voru þá frá því að þeir lögðu út í hana. Haga­melur hefur síðan minnkað stöðu sína hægt og rólega og á í dag 1,07 pró­sent hlut í Högum. Félagið er enn stærsti einka­fjár­festir­inn í félag­inu og mark­aðsvirði hlutar þess er um 492 millj­ónir króna miðað við gengi bréfa í Högum í dag, eða rúm­lega helm­ingur þeirrar upp­hæðar sem þeir fjár­festu upp­runa­lega í Högum.

Borgun seld á lágu verði

En það er ekki bara í við­skiptum með félög sem eru á leið á markað sem upp hafa komið aðdrottn­anir um rausn­ar­legt gjaf­mildi banka. Í

lok árs 2014 greindi Kjarninn

frá því í röð frétta­skýr­ingar að Lands­bank­inn, sem er í 98 pró­sent eigu íslenska ríkið, hafi selt 31,2 pró­sent hlut sinn í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun til félags­ins Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun slf.

Aðdrag­andi þeirra var þannig að kaup­end­urnir, fjár­festa­hópur leiddur af manni sem heitir Magnús Magn­ús­son og stjórn­endur Borgunar, hafi átt hug­mynd­ina að kaup­unum, hafi viðrað hana við stjórn­endur Lands­bank­ans sem leiddi til þess að hóp­ur­inn fékk í kjöl­farið að kaupa hlut­inn í Borgun. Þessi eign rík­is­bank­ans var ekki aug­lýst og öðrum áhuga­sömum kaup­endum var ekki gefið tæki­færi til að bjóða.

Verðið sem kaup­end­urnir greiddu fyrir hlut­inn þótti lágt bæði í inn­lendum og erlendum sam­an­burði. Félagið greiddi um 2,2 millj­arða króna fyrir hlut­inn en hagn­aður Borgunar í fyrra var um einn millj­arður króna.

Þegar kaup­verðið á hlutnum í Borgum er mátað við mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast oft við þegar þeir meta fjár­fest­inga­kosti virð­ist það vera lágt, bæði í sam­an­burði við virði erlendra greiðslu­korta­fyr­ir­tækja, virði ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja og félaga sem skráð eru á markað á Íslandi.

Hlut­hafar Borgunar greiddu sér svo út 800 millj­ónir króna í arð í febr­úar vegna rekst­urs fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2014. Nýju hlut­haf­arnir höfðu þá átt í Borgun í rúma þrjá mán­uði. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 2007 sem Borgun greiddi arð.

Sigurbjörn með aftur

Athygli vekur að Sig­ur­björn Þor­kels­son, sem var í Haga­mels­hópnum sem hagn­að­ist svo gríð­ar­lega vel á við­skiptum sínum með bréf í Högum, er lika í hópnum sem keypti hlut í Símanum í lok síð­ustu viku. Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hvernig hlut­irnir skipt­ast á milli þeirra aðila sem eru í hópnum að öðru leyti en að Orri Hauksson keypti 0,4 pró­sent hlut fyrir um 106 millj­ónir króna. Hann keypti mest allra stjórn­enda.

Aðrir í hópnum, sem eru bæði inn­lendir og erlendir aðilar, keyptu því uppi­stöð­una af því sem Arion banki seldi. Það eru fimm erlendir fjár­festar (Bertrand Kan, Joe Ravitch, Adam Samu­els­son, Troels Askerud og Kaj Juul-Pedersen) og þrír Íslend­ingar. Auk Sig­ur­björns eru það þeir Stefán Ákason, sem var for­stöðu­maður skulda­bréfa­miðl­unar Kaup­þings ( sem síðar varð Arion banki) fyrir hrun, og Ómar Svav­ars­son, fyrrum for­stjóri Fjar­skipta, Vodafone á Íslandi, og núver­andi fram­kvæmda­stjóri sölu- og ráð­gjafasviðs Sjóvá.

Kjarninn spurði Arion banka hvort það kæmi til greina að selja þessum hópi stærri hlut áður en að útboð­inu í haust kæmi. Í svari bank­ans segir að ekk­ert slíkt liggi fyrir. „En bank­inn skoðar alla ákjós­an­lega mögu­leika sem honum bjóð­ast við ráð­stöfun eigna sinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár