Arion banki býður 18 til 21 prósent til sölu í Símanum í almennu útboði

Stjórn Símans hf. hefur ákveðið að óska eftir því við Nasdaq Iceland að hluta­bréf félags­ins verði tekin til við­skipta á Aðal­mark­aði. Síminn væntir þess að við­skipti geti haf­ist 15. októ­ber næst­kom­andi, að því er segir í til­kynn­ingu frá Símanum og Arion banka.

Arion banki býður 18-21% til sölu í almennu útboði

Áður en kemur að skrán­ingu Símans mun fara fram almennt útboð á hluta­bréfum í félag­inu dag­ana 5. til 7. októ­ber þar sem Arion banki hf. býður til sölu 18 til 21 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu. „Miðað við lág­marks­verð útboðs­ins nemur heild­ar­stærð þess 4,7 til 5,5 millj­örðum króna og svarar það til um 26 millj­arða króna mark­aðsvirðis alls hluta­fjár í Símanum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Tvær til­boðs­bækur verða í boði fyrir fjár­festa. Í til­boðs­bók A verður fjár­festum boðið að skrá sig fyrir kaupum að and­virði á bil­inu frá 100 þús­und krónum og upp í 10 millj­ónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verð­bil­inu 2,7 til 3,1 króna á hlut en eitt end­an­legt útboðs­gengi í til­boðs­bók A verður ákvarðað af selj­anda í lok útboðs, að því er segir í til­kynn­ing­unni. Í til­boðs­bók B verður tekið við áskriftum að and­virði yfir 10 millj­ónum króna. „Þar verður lág­marks­verð 2,7 krónur á hlut og ekk­ert hámarks­verð til­greint af selj­anda en eitt end­an­legt útboðs­gengi í til­boðs­bók B verður ákvarðað af selj­anda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðs­gengi í til­boðs­bók A,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Orri Hauksson, for­stjóri Símans, fagnar áfang­anum og segir Símann vera í góðri stöðu til að stíga þetta skref „Síminn er með traustar rætur í íslensku sam­fé­lagi og sterka stöðu á þeim mörk­uðum sem fyr­ir­tækið starfar á. Skráning félags­ins í kaup­höll er mik­il­vægt skref fyrir félagið, starfs­fólk og hlut­hafa. Við teljum að félagið sé vel í stakk búið til skrán­ingar og und­ir­búið fyrir þær áskor­anir og aðhald sem skrán­ingu fylgir.”

Hösk­uldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, segir að skrán­ing Símans sé í sam­ræmi við þá stefnu bank­ans að stuðla að skrán­ingu félaga á markað og koma þannig beint að upp­bygg­ingu hluta­bréfa­mark­að­ar­ins, en hann hrundi nær alveg til grunn þegar bank­arnir féllu, haustið 2008. „Arion banki hefur lagt ríka áherslu á upp­bygg­ingu hluta­bréfa­mark­að­ar­ins hér á landi með því að stuðla að skrán­ingu nýrra félaga í kaup­höll­ina. Það er því ánægju­legt að á fjórum árum hefur Arion banki haft umsjón með skrán­ingu sjö félaga. Síminn er þriðja félagið sem við fleytum á markað í ár með almennu útboði í aðdrag­anda skrán­ingar. Það hefur verið ánægju­legt að vinna með Símanum að und­ir­bún­ingi þess­ara tíma­móta, því þarna er á ferð­inni mik­il­vægt og öfl­ugt félag á sviði fjar­skipta og tækni, með mikla sögu og sterkt vöru­merki. Síminn verður góð við­bót við íslenska hluta­bréfa­mark­að­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár