Fjármálaráðherra segir Símasöluna klúður - Bankasýslan getur ekki svarað

Það er ólíð­andi að fáir útvaldir búi að sér­kjörum á sölu Arion banka í hlutum í Símanum. Engin þol­in­mæði er fyrir slíku í sam­fé­lag­inu og málið er klúður.

Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og frétta­stofa RÚV greinir frá. Hann bendir á að sem fjár­mála­ráð­herra hafi hann ekki beina aðkomu að mál­inu heldur sé það í höndum Banka­sýslu rík­is­ins. Hann hafi þó skoðun á mál­inu. „Það er alveg aug­ljóst og ætti að vera mönnum ljóst, að það er engin þol­in­mæði fyrir því í íslensku sam­fé­lagi að það fái ein­hverjir að sitja að sér­kjörum þegar að menn eru að höndla með verð­mæti. Og í þessu til­viki þá er það mjög sterk upp­lifun manna að það hafi fáir útvaldir fengið að búa að sér­kjörum,“ segir Bjarni í sam­tali við frétta­stofu RÚV.

Eitt af því sem taka eigi frá hru­nár­unum sé að gæta þurfi að jafn­ræði og gagn­sæi þegar verið sé að höndla með jafn mikil verð­mæti eins og eru undir í mál­inu. „Og ég verð að lýsa ákveð­inni furðu á því að þegar að svona stór við­skipti eiga sér stað þá séu með mjög skömmu milli­bili hægt að finna kaup­endur að sama hlutnum, eða hlut í sama félag­inu, þar sem að munar jafn miklu og á við hér, þ.e.a.s. yfir 30% munur þegar að hlut­ur­inn fer í sölu. Þannig að mér finnst þetta vera ákveðið klúður þetta mál,“ segir Bjarni.

Bankasýslan á engin svör


Síminn var skráður á hluta­bréfa­markað í síð­ustu viku, í kjöl­far almenns útboðs Arion banka á 21 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu. Áður hafði bank­inn selt fimm pró­senta hlut til stjórn­enda Símans og með­fjár­festa ann­ars vegar og vild­ar­við­skipta­vina bank­ans hins vegar á um 30 pró­sent lægra gengi en raunin varð í útboð­inu. Fram hefur komið að hóp­ur­inn sem keypti fyrstur, leiddur af Orra Hauks­syni for­stjóra Símans, hafi sam­an­staðið af inn­lendum og erlendum fjár­festum auk fram­kvæmda­stjórum hjá Símanum. Meðal fjár­festa í hópnum voru Árni Hauksson og Hall­björn Karlsson. Þeir keyptu kjöl­festu­hlut í Högum af Arion banka fyrir skrán­ingu félags­ins á hluta­bréfa­markað í lok árs 2011.

Arion banki hefur verið gagn­rýndur fyrir hvernig staðið var að söl­unni. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, sendi Banka­sýslu rík­is­ins spurn­ing­ar­lista í níu liðum þar sem meðal ann­ars var spurt hvort salan hafi mögu­lega falið í sér mark­aðs­mis­notkun. Banka­sýslan fer með 13 pró­senta hlut í Arion banka.

Banka­sýslan kom fyrir fjár­laga­nefnd í gær og sagð­ist ekki búa yfir upp­lýs­ingum til að svara spurn­ingum þing­manns­ins. Í frétt RÚV um málið segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Banka­sýsl­unni verður skoðað hvort og þá hvernig hægt sé að afla þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár