Fyrsti hópurinn sem keypti í Símanum búinn að ávaxta hlut sinn um 36 prósent

Þeir fjár­festar sem skráðu sig fyrir hlut í Símanum í hluta­fjár­út­boði sem lauk í dag þurfa flestir að greiða 3,4 krónur fyrir hvern hlut sem þeir kaupa í félag­inu. Alls var 16 pró­sent hlutur seldur á því gengi en fimm pró­sent voru seld til minni fjár­festa á 3,1 krónur á hlut.

Mikil umfram­eft­ir­spurn var eftir bréfum í Símanum. Alls nam sölu­and­virði þess 21 pró­sent hlutar sem seldur var um 6,7 millj­örðum króna. Heild­ar­eft­ir­spurn var hins vegar 33 millj­arðar króna. Því var eft­ir­spurnin fimm sinnum meiri en fram­boðið. Verðið er hærra en flestir grein­ing­ar­að­ilar töldu að það yrði.

Í aðdrag­anda þess að hluta­fjár­út­boðið fór fram ákvað Arion banki, sem varð stærsti eig­andi Símans í kjöl­far fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar hans sem lauk árið 2013, að selja tíu pró­sent hlut til valdra aðila. Fyrst ákvað bank­inn að selja hópi stjórn­enda Símans, og fjár­festa­hópi sem for­stjóri félags­ins hafði sett saman, fimm pró­sent hlut á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Þessi við­skipti áttu sér stað í lok ágúst­mán­aðar, rúmum mán­uði áður en hluta­fjár­út­boð Símans fór fram. Miðað við það gengi sem var á þorra þess hluta­fjár sem Arion banki seldi í útboð­inu, 3,4 krónur á hlut, hefur þessi hópur þegar ávaxtað fjár­fest­ingu sína um 36 pró­sent á rúmum mán­uði. Það þýðir að hlutur sem var keyptur á 100 millj­ónir króna er nú orðin 136 millj­óna króna virði. Þó er vert að taka fram að hóp­ur­inn skuld­batt sig til að selja ekki hlut­inn strax.

Síðari hluta sept­em­ber var síðan greint frá því að valdir við­skipta­vinir Arion banka hefðu fengið að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,8 krónur á hlut. Þessi við­skipti áttu sér stað nokkrum dögum áður en hluta­fjár­út­boð Símans hófst. Ekki hefur verið upp­lýst um hverjir það voru sem fengu að kaupa á þessum afslátt­ar­kjörum. Hlutur þeirra hefur hins vegar ávaxt­ast um 21,5 pró­sent á þessum fáu dögum sem liðnir eru frá því að þeir keyptu hann. Þessi hópur má ekki selja hluti sína fyrr en 15. jan­úar 2016.

Fyrstir inn á lágu verði


Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um þær sölur sem áttu sér stað í aðdrag­anda skrán­ing­ar­innar á und­an­förnum vikum. Í frétta­skýr­ingu hans sem birt­ist 25. ágúst var aðdrag­andi kaupa stjórn­enda­hóps­ins og með­fjár­festa þeirra rakin.

Í ágúst var greint frá því að félagið L1088 ehf. hafi fengið að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Sá hópur var settur saman af Orra Hauks­syni, for­stjóra Símans, og hann átti frum­kvæði að því að leita til Arion banka til að koma við­skipt­unum á. Að hópnum standa nokkrir erlendir fjár­festar með reynslu úr fjar­skipta­geir­anum og Orri. For­stjór­inn á alls 0,4 pró­sent hlut í Símanum sem hann fékk að kaupa á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Orri greiddi rúm­lega 100 millj­ónir króna fyrir hlut­inn.

Aðrir í yfir­stjórn Símans fengu líka að kaupa hluti í eigin nafni. Eign þeirra er þó öllu minni, en stjórn­end­urnir keypta alls fyrir um 1,8 milljón króna í eigin nafni. For­stjór­inn Orri nýtti sér þennan rétt einnig. Þessum kaupum fylgja ákveðnar sölu­hömlur. L1088 ehf, félag Orra og fjár­fest­anna, má ekki selja fyrr en í jan­úar 2017 og yfir­stjórn­end­urnir mega ekki selja fyrr en 1. mars 2016.

Hluti stjórn­end­anna sem fengu að kaupa hafa ekki starfað hjá Símanum lengi, og voru raunar ráðnir til starfa þar eftir að fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu lauk. Orri var til að mynda ráð­inn for­stjóri í októ­ber 2013, eftir tölu­verða valda­bar­áttu í stjórn Símans, og Magnús Ragn­ars­son var ráð­inn í sitt starf í apríl 2014. Áður hafði hann verið aðstoð­ar­maður Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var hjá Símanum skömmu eftir að ákvörð­unin um að selja ofan­greindum hópi fimm pró­sent hlut var hand­salað að öllum fast­ráðnum starfs­mönnum myndi bjóð­ast að kaupa fyrir allt sex hund­ruð þús­und krónur á ári á geng­inu 2,5 krónur á hlut í þrjú ár. Þegar hafa 613 starfs­menn gert samn­inga um slík kaup fyrir sam­tals 1,1 millj­arð króna. Nýtt hlutafé verður gefið út vegna kaup­rétt­ar­á­ætl­unar starfs­manna. Við það þynn­ist hlutur ann­arra hlut­hafa, sem að mestu eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Síðari hluta sept­em­ber­mán­aðar, nokkrum dögum áður en fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð fer fram, fengu nokkrir valdir við­skipta­vinir Arion banka að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,8 krónur á hlut. Ekki hefur verið gefið upp hverjir fjár­fest­arnir eru. Þessi hópur má ekki selja hluti sína fyrr en 15. jan­úar 2016.

Fimmföld eftirspurn


Margir við­mæl­endur Kjarnans innan við­skipta­lífs­ins settu spurn­ingar við þessa aðferð­ar­fræði við sölu á tíu pró­senta hlut í Símanum. Umfram­eft­ir­spurn yrði nær örugg­lega eftir hlutum í félag­inu í hluta­fjár­út­boði og því þyrfti ekki að selja með afslætti til hand­val­inna aðila í aðdrag­anda þess.

Það varð líka raunin. Tæplega fimm þús­und fjár­festar ósk­uðu á end­anum eftir því að eign­ast hlut í félag­inu í hluta­fjár­út­boð­inu sem lauk í gær. Eft­ir­spurnin var fimm sinnum meiri en fram­boðið og því þurfti að skerða áskriftir stórs hluta þeirra sem vildu eign­ast í félag­inu.

Til sölu var fimm pró­sent hlutur á geng­inu 2,7 til 3,1 krónur á hlut og allt að 16 pró­sent hlutur á að minnsta kosti 2,7 krónur á hlut. Nið­ur­staðan varð sú að minni hlut­ur­inn fór á 3,1 krónur á hlut og 16 pró­sent hlut­ur­inn seld­ist fyrir 3,4 krónur á hlut. Miðað við með­al­gengi útboðs­ins er mark­aðsvirði Símans 32 millj­arðar króna.

Áætlað er að við­skipti með hluti í Símanum muni hefj­ast á Aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands á fimmtu­dag­inn í næstu viku, þann 15. októ­ber. Áhuga­vert verður að sjá hvernig gengi bréfa hans þró­ast í við­skiptum fyrstu dag­anna eftir skrán­ingu, sér­stak­lega í ljósi þeirrar miklu eft­ir­spurnar eftir bréfum í Símanum sem birt­ist í nýaf­stöðnu hluta­fjár­út­boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár