Árni og Hallbjörn keyptu í Símanum en upplýsa ekki um stærð hlutarins

Fjár­fest­arnir Árni Hauksson, Hall­björn Karlsson og Sig­ur­björn Þor­kels­son voru meðal þeirra sem keyptu fimm pró­senta hlut í Símanum í ágúst síð­ast­liðnum, þegar nokkrir stjórn­endur og fjár­festar eign­uð­ust í fyr­ir­tæk­inu fyrir hluta­fjár­út­boð sem lauk í gær. Þeir vilja ekki upp­lýsa um hversu stóran hlut þeir eiga í félag­inu L1088 ehf., en það félag á aftur fimm pró­senta hlut í Símanum eftir við­skiptin í ágúst.

Hópurinn sem keypti fimm pró­senta hlut í ágúst, leiddur af Orra Hauks­syni for­stjóra félags­ins, keypti á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Í almennu hluta­fjár­út­boði sem lauk í gær greiddu flestir 3,4 krónur á hlut, eða 36 pró­sentum meira en í við­skipt­unum í ágúst. Það þýðir að hlutur sem var keyptur á 100 millj­ónir króna er nú orðin 136 millj­óna króna virði. Þó er vert að taka fram að hóp­ur­inn skuld­batt sig til að selja ekki hlut­inn strax.

Kjarninn hefur áður greint frá að í fjár­festa­hópi Orra Hauks­sonar hafi verið fram­kvæmda­stjórar Símans, fimm erlendir ein­stak­lingar auk Sig­ur­björns Þor­kels­sonar, sem starf­aði lengi sem yfir­maður hjá Lehman Brothers og var einn eig­andi Haga og stofn­aði verð­bréfa­miðl­un­ina Fossa mark­aði fyrr á þessu ári, Stefán Ákason, fyrrum for­stöðu­maður skulda­bréfa­miðl­unar Kaup­þings, og Ómar Svav­ars­son, fyrrum for­stjóri Vodafone á Íslandi.

Árni og Hall­björn keyptu kjöl­festu­hlut í Högum fyrir skrán­ingu félags­ins á hluta­bréfa­markað í lok árs 2011. Þá keyptu þeir á geng­inu tíu krónur á hlut, undir útboðs­gengi félags­ins sem hækk­aði síðan enn meira í Kaup­höll­inni og marg­fald­aði virði eignar Árna og Hall­björns.

Mikil umfram­eft­ir­spurn var í útboði á hluta­bréfum Arion banka í Símanum í gær, en til sölu var 21 pró­sent hluta­fjár. Áætlað er að við­skipti hefj­ist með bréf félags­ins í Kauphöll fimmtu­dag­inn 15. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár