„Góða fólkið“ versta orð ársins í Þýskalandi

Dómnefnd þýskra málvísinda- og blaða­manna hafa valið „Góða fólkið“ sem óyrði, eða „Unwort“ ársins. „Með því að ásaka einhvern um að vera partur af „Góða fólkinu“ eru umburðar­lyndi og hjálpsemi máluð upp sem heimska og barna­skapur“ segir í umsögn dómnefndar.

„Unwort“
„Unwort“ Hugtakið nota þjóð­verjar yfir slæm eða léleg orð sem kom­ast í tísku.

„Góða fólkið“ eða „Gutmensch“ hefur verið valið óorð ársins 2015 í Þýska­landi, að mati dómnefndar þýskra málvísinda- og blaða­manna. Eins og dómnefndin kom að hefur orðið lengi verið í notkun, en fékk nýtt notkunar­gildi á síðasta ári, sérstak­lega í samhengi við umræður um flótta­mannamál.

„Með því að ásaka einhvern um að vera partur af „Góða fólkinu“ eru umburðar­lyndi og hjálpsemi máluð upp sem heimska og barna­skapur.“

„Þeir sem fengu stimpilinn „Góða fólkið“ árið 2015 voru sérstak­lega þeir sem vildu hjálpa flótta­fólki og börðust gegn árásum á flóttamanna­búðir“ segir í tilkynningunni. „Með því að ásaka einhvern um að vera partur af „Góða fólkinu“ eru umburðar­lyndi og hjálpsemi máluð upp sem heimska og barna­skapur.“

Brautryðjandinn Elliði Vignisson

Hugtakið hefur mikið verið notað á Íslandi undan­farin misseri, og hófst almenn notkun þess með pistli sem Elliði Vignisson skrifaði í október árið 2014 með fyrir­sögninni „„Góða fólkið“ og umræðan“. Þar uppnefnir Elliði þá sem gagnrýna Vigdísi Hauks­dóttur, og segir m.a. varðandi umræður um innflytjendamál:

„Þeir sem ræða innflytjendamál og þá sérstak­lega málefni hælis­leitenda tipla á bæði hálum og þunnum ís. „Góða fólkið“ mætir allri slíkri umræðu með ásökunum um nasisma, rasisma og útlendinga­hatur.“

Var pistill Elliða mikið ræddur þegar hann birtist. Fékk hann bæði miklar undir­tektir í ýmsum hópum, en margir hafa gagnrýnt Elliða, og bent á að með pistlinum hafi Elliði í raun lagst gegn þeim pól gagn­rýninnar umræðu sem hann væri ósammála.

Hér er frétt Spiegel um málið, og hér má lesa pistil Elliða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár