Segir græðgi og sjálftökustemningu í kringum hreyfinguna

Fráfar­andi formaður Eflingar segir félagið vera eins og ríki í ríkinu. Það sé sjálfs­þjónandi fyrirbæri með áskrift af peningum og að margir sjái tækifæri fyrir sjálfa sig í þeirri stöðu.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem sagði af sér formennsku í Eflingu í síðustu viku, segir græðgi og sjálfstökustemnginu í kringum hreyfinguna. „Þessi hreyfing er náttúru­lega ríki í ríkinu. Þetta er ekki opinber stofnun og engin sem kemur og segir að það þurfi að fara í niður­skurð eða annað slíkt. Hún er bara sjálfs­þjónandi fyrirbæri sem er áskrifandi að peningum.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali við hana í Kjarnanum sem birtist á laugardag. Þá steig hún fram í fyrsta sinn síðan að hún tilkynnti um uppsögn og sagði sína hlið á málinu í viðtali.

Á meðal þess sem Sólveig Anna ræddi um var sú gagnrýni sem hópur fólks sem ráðinnvar inn til Eflingar eftir að hún og Viðar Þorsteinsson, nú fyrr­verandi framkvæmda­stjóri, tóku við stjórnar­taumunum en var síðar látið fara. Maxim Baru, fyrr­verandi sviðs­stjóri félags­sviðs Eflingar, sakaði þau til að mynda um útlendinga­andúð og í opnu bréfi sem Christina Milcher, fyrr­verandi starfs­maður Eflingar, skrifaði til þeirra sagði hún þau hafa beitt sig einelti og ofbeldi.

Ungt, lífsleitt millistéttarfólk

Sólveig segir þennan hóp hafa verið ungt, lífsleitt milli­stéttar­fólk sem tilheyri ekki stétt vinnu­aflsins og aðhyllist anarkó-syndikalisma. „Þetta er fólk sem gat ekki og ætlaði sér aldrei að virða lýðræðis­lega ferla innan félagsins. Það var með sín eigin hliðar­markmið. Það er alveg augljóst að þetta fólk hefur ekki notið neinnar velgengni í sínum verkefnum í þessu samfélagi hér.“

Samt sem áður er um að ræða fólk sem hún réð til starfa. Sólveig Anna segir að það hafi gerst á fölskum forsendum. „Ég réði Maxim Baru vissulega til starfa. Hann bara laug á ferilskránni og ég hef gögn sem sýna fram á það. Ég fór að fá aðstoðar­beiðnir frá fólki í Kanada frá fólki og samtökum sem höfðu lent í þessum manni þar sem hann réð sig til starfa. Á sex mánuðum var hann búinn að rústa öllu þar. Ég er með öll þessi gögn.

Þetta fólk er líka uppfullt af þessari græðgi og sjálftöku­stemningu sem er svo tryllingsleg í kringum þessa hreyfingu. Þessi hreyfing er náttúru­lega ríki í ríkinu. Þetta er ekki opinber stofnun og engin sem kemur og segir að það þurfi að fara í niður­skurð eða annað slíkt. Hún er bara sjálfs­þjónandi fyrirbæri sem er áskrifandi að peningum. Maxim Baru og hans fólk, þau bara spottuðu þetta. Hann var hálauna­stjórnandi hjá okkur og fór að ráða hirð í kringum sig. Erlenda fólkið sem hefur verið með gagnrýni á okkur er að uppistöðu úr þeirri hirð.“

Segir tilganginn annarlegan

Í síðustu viku birtist frétt á RÚV þar sem ​​fjallað var um kvartanir fyrr­verandi starfs­fólks um slæman starfs­anda, mikla starfsmanna­veltu og ámælis­verða hegðun Viðars gagnvart kvenkyns starfs­fólki. Þar sagði meðal annars að Viðar hefði með símtali sagt upp starfs­manni þar sem hann var rúmfastur í öndunar­erfiðleikum vegna COVID.

Sólveig Anna segir ótrúlegt að RÚV fari fram með nafn­lausar ásakanir gagnvart nafn­greindri manneskju eins og þar hafi verið gert gagnvart Viðari. „Það var búið að reyna allt sem hægt var að gera til að takast á við stórkostleg vandamál sem komu strax í ljós frá fyrsta degi hjá þessum starfs­manni. Það var búið að fara í kostnaðar­samar aðgerðir fyrir félagið til að vinna úr alvarlegum vanda­málum sem framferði starfs­mannsins orsakaði inni á vinnu­staðnum. Það var búið að leggja í kostnaðar­sama ráðgjöf fyrir starfs­manninn. Það var vilji til staðar hjá okkur að finna starfs­manninum annað hlutverk innan félagsins en eftir samtöl þá varð ekki úr því og því var viðkomandi sagt upp. Þetta gerðist vissulega í COVID og það getur verið að viðkomandi hafi verið veikur þegar uppsögnin átti sér stað, en þetta átti sér langan aðdrag­anda.“

Sólveig Anna segir að það sé ekki satt sem fram komi í frétt RÚV, að henni hafi verið sýndar ásakanir sérstak­lega fram­settar af átta konum. „Mér var af mannauðs­stjóra sýndar kvartanir í mars. Þær voru ódagsettar. Það voru engin nöfn sem fylgdu með. Það var engin leið til dæmis að sjá hvers kyns þeir sem settu fram kvartanirnar voru. Þetta var einfald­lega samansafn kvartana um mál sem geta komið upp á vinnu­stöðum. Að láta það líta út að þarna sé eitthvað sem eigi sér stað með kynbundnum hætti er ótrúlegt.“

Hún hafi samt sem áður tekið þetta alvarlega. Hún hafi litið svo á að þarna væri um endurgjöf vegna starfa Viðars að ræða og að hún hafi komið henni á framfæri við hann. „Svo átta ég mig á því að þessar umkvartanir sem mér voru sýndar þarna, þeim var safnað saman af óánægðum stjórn­anda. Svo er þetta sett fram í kjölfarið með þessum hætti til mín. Annarlegur tilgangur segir ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár