Bændur í Bandaríkjunum ósáttir við TPP-lokun Trumps

Land­búnaður í Banda­ríkjunum á mikið undir því að koma vörum á markað erlendis, ekki síst í Asíu, þar sem vöxtur hefur verið mikill. Með því að fara út úr TPP viðræðunum svonefndu er stöðu land­búnaðar í Banda­ríkjunum ógnað.

Hagsmuna­samtök bænda í Banda­ríkjunum eru ósátt við að Donald J. Trump hafi þegar ákveðið að draga Banda­ríkin út úr TPP-samningar­viðræðunum svonefndu, en markmiðið með þeim er að styrkja verslun og viðskipti á risavöxnu svæði í heiminum, sem teygir sig til Ameríku, Asíu og Ástralíu.

Ron Kirk, sem var yfir fríverslunar­samningum Bandaríkja­stjórnar á árunum 2009 til 2013, segir að ákvörðun Trumps sé mikið áfall fyrir landbúnað í Banda­ríkjunum og að hún muni hafa afleiðingar. Störf muni tapast og samkeppnis­skilyrði matvæla­fyrirtækja í landinu versna. „Ég skil ekki hver er hugsunin að baki þessari ákvörðun,“ segir í Kirk í viðtali við CNBC.

Stærstu landbúnaðar­ríki Banda­ríkjanna eru meðal annars Indíana, Ohio og Nebraska.

Samningurinn hefur ekki ennþá verið kláraður en hefur verið í vinnslu árum saman. Bloomberg greindi frá því í gær að stjórn­völd í Kína væru ánægð með ákvörðun Banda­ríkjanna þar sem samkeppnis­staða Kína gæti styrkst.

Miklir hagsmunir eru undir í þessum samningum enda svæðið mjög vaxandi. Meira en þriðjungur íbúa jarðar búa innan landanna sem eiga aðild að samningunum. Ásamt Banda­ríkjunum hafa Ástralía, Brunei, Kanada, Chile, Japan, Malasía, Mexíkó, Nýja Sjáland, Perú, Singapúr og Víetnam.

Kína á ekki aðild að samningunum en í ljósi þess að Banda­ríkin ætla sér ekki að halda áfram í viðræðunum þá gætu Kínverjar séð sér leik á borði, og styrkt stöðu sína á markaði enn frekar. Það sama má segja um Kanada en stjórn­völd þar hafa sagt að ástæðu­laust sé að hætta viðræðunum þrátt fyrir að Banda­ríkin ætli sér ekki áfram­haldandi þátttöku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár