Listamaður sýknaður af lögbroti í gjörningi í goshver

Marco Evaristti var sýkn­aður í gær í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands en honum var gefið að sök að hafa brotið lög um nátt­úru­vernd þegar hann hellti fimm lítrum af líf­rænum mat­ar­lit ofan í hver­inn Strokk.

Laus allra mála
Laus allra mála Þessa ljós­mynd birti Marco Evaristti á vef­síðu sinni og sýnir hún Strokk eftir að lista­mað­ur­inn hellti fimm lítrum af rauðu lit­ar­efni í hver­inn.

Síleski lista­mað­ur­inn Marco Evaristti braut ekki lög um nátt­úru­vernd þegar hann hellti fimm lítrum af líf­rænum mat­ar­lit ofan í hver­inn Strokk við Geysi í Blá­skóga­byggð þann 24. apríl í fyrra. Hann var ákærður fyrir að hafa raskað umhverfi hversis þegar hver­inn gaus rauð­lit­uðu vatni „...sem sat eftir í pollum og lita­blettir urðu eftir á stein­völum og hvera­hrúðri í kringum hann, þar sem lit­ar­efnið slett­ist á og sat eftir um nokkurn tíma,“ eins og segir í ákærunni.

„Ákæru­valdið vildi hins­vegar meina að auk þess að hafa brotið lög um nátt­úru­vernd þá hafi lista­mað­ur­inn með fram­ferði sínu ollið sjón­rænni röskun sem hafi haft nei­kvæð áhrif á gesti svæð­is­ins.“

Evaristti við­ur­kenndi að hafa hellt mat­ar­litnum ofan í hver­inn og kvaðst hafa verið einn að verki en sam­kvæmt honum var um að ræða „gjörn­ing, list­við­burð eða lands­lags­list, það er hann hafi notað lands­lag sem nokk­urs konar striga fyrir mál­verk. Fyrir honum hafi vakað að ann­ast umhverfið og nátt­úr­una, búa til fal­legt list­form og hafi hann við það notað efni sem með öllu hafi verið skað­laust nátt­úr­unni.“

Vildi vekja athygli á umhverfinu

Hann hafn­aði hins vegar því að hafa með þessum gjörn­ingi sínum raskað hvernum eða umhverfi hans og tók Evaristti fram að hann hafi vitað að lit­ar­efnið myndi hverfa á stuttum tíma. Ákæru­valdið vildi hins­vegar meina að auk þess að hafa brotið lög um nátt­úru­vernd þá hafi lista­mað­ur­inn með fram­ferði sínu ollið sjón­rænni röskun sem hafi haft nei­kvæð áhrif á gesti svæð­is­ins. Evaristti sagði hins­vegar að mark­mið hans með gjörn­ingnum hafi verið að vekja athygli á umhverf­inu.

Evaristti var hand­tek­inn og færður til yfir­heyrslu lög­reglu stuttu eftir að hafa hellt umræddu lit­ar­efni í hver­inn og boðið að ljúka mál­inu með því að greiða hund­rað þús­und krónur í sekt. Hann neit­aði hins vegar að greiða sekt­ina og sagð­ist ætla með málið fyrir dóm­stóla sem hann og gerði með fyrr­greindri nið­ur­stöðu. Lista­mað­ur­inn býr í Danmörku og hefur vakið athygli víða um heim fyrir gjörn­inga sína í nátt­úr­unni, meðal ann­ars í Noregi og Kanda.

Allur sak­ar­kostn­aður greið­ist úr rík­is­sjóði, þar með talin málsvarn­ar­laun skip­aðs verj­anda ákærða að upp­hæð 552.420 króna, að með­töldum virð­is­auka­skatti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár