Félag Eyþórs keypti kröfu á annað félag Eyþórs vegna Moggakaupa af dótturfélagi Samherja

Fyrr á þessu ári keypti félag í eigu Eyþórs Arnalds kröfu sem dóttur­félag Samherja átti á annað félag í eigu Eyþórs vegna viðskipta með hlut í Morgun­blaðinu. Ekki er ljóst hvort félag Eyþórs greiddi eitthvað fyrir kröfuna.

Eyþór Arnalds er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og sömuleiðis af óljósum ástæðum einn stærsti eigandi útgáfufélags Morgunblaðsins.
Eyþór Arnalds er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og sömu­leiðis af óljósum ástæðum einn stærsti eig­andi útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fyrr á þessu ári náðist samkomulag á milli félagsins Ramses II, sem er í fullri eigu borgar­fulltrúans Eyþórs Arnalds, og félagsins Kattar­nefs, sem er dóttur­félag Samherja, um að annað félag í eigu Eyþórs, sem heitir Ramses, keypti kröfu sem Kattarnef átti á Ramses II.

Um er að ræða kröfu vegna skuldabréfa­láns sem Kattarnef veitti Ramses II til kaupa á eignar­hlut í Þórsmörk, móður­félagi útgáfu­félagsins Árvakurs, sem gefur út Morgun­blaðið, mbl.is og fleiri miðla.

Þetta má lesa í ársreikningi Ramses II fyrir árið 2020, sem orðinn er aðgengi­legur á vef Skattsins. Ekki kemur fram hversu mikið Ramses greiddi Kattar­nefi fyrir kröfuna, ef eitthvað.

Vert er að taka fram að Kattarnef var búið að afskrifa kröfuna sem félagið átti á félag Eyþórs. Það var gert árið 2019 og þýðir að Kattarnef hefur ekki gert sér vonir um að nokkuð myndi innheimtast af láninu sem félag Eyþórs fékk á sínum tíma til að kaupa hlut í Þórsmörk.

„Skuldabréfalán félagsins féllu á gjaldaga á árinu. Á árinu 2021 náðist samkomulag við kröfuhafa um að móður­félag félagsins keypti kröfuna af lánveitendum,“ segir í ársreikningi Ramses II. Þar segir einnig að gjald­fallnar afborganir félagsins hafi numið alls 386,8 milljónum króna.

Eyþór hefur ekki brugðist við spurningu Kjarnans, sem lögð var fram í gær, um hvort félag hans hafi greitt dóttur­félagi Samherja eitthvað fyrir kröfuna, en eins og áður hefur komið fram var um að ræða svokallað seljendalán, sem Samherji veitti félagi Eyþórs til kaupa á hlut Samherja í útgáfu­félagi Morgun­blaðsins. Einungis einn gjalddagi var á láninu, í mars í fyrra.

Eyþór sagði við Kjarnann í október í fyrra að honum þætti ólíklegt að eignar­hluturinn í útgáfu­félagi Morgun­blaðsins færðist aftur til Samherja í ljósi þess að lánið væri gjald­fallið, en það hafði þá komið fram í ársreikningi Ramses II fyrir árið 2019.

Hann sagði hlut sinn í útgáfu­félaginu til sölu sem fyrr og að seljendalán eins og það sem hann hefði fengið frá Samherja væru algeng aðferð þegar um áhættu­fjár­festingu væri að ræða og óvissa ríkti um verðmæti þess hlutar sem keyptur er.

Eyþór var ekki byrjaður í borgar­pólitíkinni þegar hann varð hluthafi í útgáfu Morgun­blaðsins og vék úr stjórn Árvakurs eftir að hann fór í framboð sem oddviti Sjálfstæðis­flokksins.

Á stjórnmála­sviðinu í borginni hafa þó ítrekað verið settar fram áleitnar spurningar um það af hverju hann hafi eignast svo stóran hlut í einu stærsta fjölmiðla­fyrirtæki landsins.

Greint var frá því að Eyþór hefði stigið inn sem kjöl­festu­fjár­festir í Árvakri í byrjun apríl árið 2017, en þá keypti hann 18,43 pró­sent hlut sem Sam­herji átti í gegn­um fé­lagið Katt­­ar­­nef ehf. og til við­bótar keypti hann 6,14 pró­sent hlut Síld­­ar­vinnsl­unn­ar hf. og 2,05 pró­sent hlut Vís­is hf. í útgáfu­fé­lag­inu, alls 26,62 pró­sent á þeim tíma.

Sá hlutur hefur síðan rýrnað vegna ítrekaðra hlutafjár­innspýtinga annarra hluthafa Þórs­merkur og er Eyþór Arnalds í dag eigandi 13,41 prósents hlutar í útgáfu­félaginu. Sá eignar­hlutur var metinn á 82,4 milljónir króna um síðustu áramót og hefur lækkað um meira en 100 milljónir króna í virði frá árslokum 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár